Fleiri fréttir

Vilja flytja ferðamenn í Surtsey

Kristín Jóhannsdóttir, markaðsfulltrúi, hefur fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, sótt um leyfi til Surtseyjarstofu að fá að flytja um hundrað ferðamenn út í Surtsey í sumar. Surtsey, sem er á heimsminjaskrá, hefur verið friðuð síðan 1965 í þágu rannsókna en hugmyndin er að flytja ferðamenn­ina með þyrlu frá Heimaey.

Borgarafundur um menntamál

Fimmtudaginn, 16. apríl, næstkomandi mun fjöldi hagsmunasamtaka námsmanna á Íslandi standa fyrir borgarafundi um menntamál. Tilgangurinn er að veita íslenskum námsmönnum og starfsfólki innan menntakerfisins tækifæri á að kynna sér áherslur flokkanna og taka afstöðu fyrir komandi alþingiskosningar.

Lýðræðishreyfing Ástþórs uppfyllir ekki skilyrði

Framboðslistar Lýðræðishreyfingar Ástþórs Magnússonar uppfylla ekki skilyrði kosningalaga í neinu kjördæmi og hafa yfirkjörstjórnir veitt hreyfingunni frest til að bæta úr ágöllum, ýmist til kvölds eða til morguns. Bæði vantar meðmælendur og galli er á samþykki frambjóðenda.

Nokkrir fengið stöðu grunaðra hjá sérstökum saksóknara

Nokkrir einstaklingar hafa fengið stöðu grunaðra í rannsókn sérstaks saksóknara bankahrunsins. Menn hafa þegar verið kallaðir inn til yfirheyrslu. Tugir mála eru til rannsóknar hjá saksóknaranum og Fjármálaeftirlitinu.

Aldrei sótt um leyfi til niðurrifs

Aldrei var sótt um leyfi til að rífa húsið við Vatnsstíg 4. Tuttugu og tveir voru handteknir þar í morgun, fyrir húsbrot. Lögregla notaði vélsög á leið sinni inn í húsið og reif út glugga. Lögreglan beitti piparúða. Húsið hafði staðið autt í næstum tvö ár þegar hústökufólk kom að. Heimspekingur segir þetta átök milli þeirra sem vilja nýta það sem ónýtt er og hinna sem vilja vernda eignarrétt.

Samtök Fjármálafyrirtækja vara við spilliforriti á netinu

Að undanförnu hefur borið á spilliforriti á Netinu, svokölluðum Nadebanker Trójuhesti, sem dreifir sér í gegnum veraldarvefinn, fylgist með tölvunotkun og sækir upplýsingar í tölvur notenda í þeim tilgangi að misnota þær. Spilliforritinu virðist m.a. ætlað að komast yfir aðgangsupplýsingar netbankanotenda. Ekkert fjárhagstjón hefur orðið hér á landi til þessa af völdum Nadebanker, en reynslan frá nágrannaríkjum Íslands kennir að mikilvægt er að gæta fyllsta öryggis við netnotkun til að koma í veg fyrir slíkt.

Öllum hústökumönnunum sleppt

Lögreglan hefur sleppt úr haldi öllum þeim 22 hústökumönnum sem voru handteknir í húsi við Vatnsstíg í morgun. Aðgerðir lögreglunnar voru umfangsmiklar og þurfti hún að brjóta sér leið inn í húsið til þess að ná fólkinu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu slösuðust tveir lögreglumenn lítillega og jafnframt slösuðust einhverjir mótmælendur.

Rannsakendur verða að gæta orða sinna

„Ég er sammála því að þeir sem að eru að rannsaka mál eða koma að rannsókn máls verða að gæta orða sinna þegar þeir ræða um hugsanlega sök einhvers sem á hlut að máli," segir Eiríkur Tómasson lagaprófessor

Hústökumaður: Neysluréttur ofar eignarétti

„Þeir komnir með nýjan piparúða," segir stjórnleysinginn Arnar Birgisson sem var einn af 22 hústökumönnum sem voru handteknir við Vatnsstíg í morgun. Hann lýsir ótrúlegri baráttu við lögregluna þar sem stjórnleysingjarnir víggirtu sig á efri hæð hússins við Vatnsstíg. Aðeins viku áður höfðu þau þrifið húsið og opnað byltingamiðstöð ungs fólks.

Ákærður fyrir að skjóta 60 milljónum undan skatti

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hafa skotið 60 milljónum króna undan skatti í sjálfstæðum atvinnurekstri sínum. Maðurinn er grunaður um að hafa skotið 26 milljónum undan á árinu 2006 og um 34 milljónum árið 2007. Þá er maðurinn grunaður um að hafa ýmist staðið skil á röngum virðisaukaskattsskýrslum á sama tíma eða ekki staðið skil á skýrslunum.

Ræða um skaðabótaábyrgð barna

Skaðabótaábyrgð barna verður umfjöllunarefni á málsstofu Umboðsmanns barna og lagadeildar Háskóla Íslands sem fram fer í Lögbergi í hádeginu á föstudag.

Tveir lögreglumenn slösuðust á Vatnsstíg

Tveir lögreglumenn slösuðust minniháttar þegar lögreglan réðst til atlögu við hústökufólkið í morgun. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa hefur frá varðstjóra liggur ekki fyrir hvernig meiðsl þeirra komu til, hvort það hafi verið vegna átaka þegar hústökufólkið var handtekið eða hvort það hafi verið þegar lögreglan var að vinna að því að komast inn í húsið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni liggur þó fyrir að einhverjir mótmælendurnir grýttu grjóti í lögreglumenn á meðan að aðgerðir þeirra stóðu yfir.

Hústökumennirnir fá eigur sínar til baka

Hústökumenn fengu að taka persónulegar eigur sínar úr húsinu við Vatnsstíg en iðnaðarmenn eru þar að störfum. Þeir eru að loka húsinu til þess að ekki verði farið aftur inn í það.

Á þriðja tug mótmælir fyrir framan lögreglustöðina

Mótmælendur komu saman til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötuna um hálftvöleytið í dag. Ástæðan fyrir mótmælunum er handtaka hússtökufólksins á Vatnsstíg fyrr í dag. Alls voru 22 handteknir í aðgerðum lögreglunnar sem voru umfangsmiklar. Lögreglan beitti þar vélsög og kúbein til þess að brjóta sér leið upp á aðra hæð hússins við Vatnsstíg. Að sögn lögreglunnar eru á milli 20 - 30 manns fyrir framan lögreglustöðina og fara mótmælin þar friðsamlega fram.

Boða til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina

Stjórnleysingjar hafa boðað til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötuna en tilkynningar um það má finna á tveim heimasíðum, önnur þeirra er vefritið NEI.

Farið yfir lög og reglur um hælisleitendur

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að fara yfir lög og reglur um hælisleitendur í ljósi alþjóðlegra skuldbindinga og dóms Hæstaréttar frá 12. mars síðastliðnum þegar dómurinn felldi úr gildi synjun Útlendingaeftirlitsins á hælisumsókn manns frá Márataníu.

Formgallar á tveimur framboðum

Yfirkjörstjórnir í öllum kjördæmunum sex vegna komandi alþingiskosninga munu í dag úrskurða hvaða framboðslistar teljist gildir og hvort öðrum listum verði gefinn kostur á að bæta úr ágöllum. Formgallar hafa komið fram á framboðum Borgarahreyfingarinnar og Lýðræðishreyfingarinnar.

Stefnt að því að rjúfa þing í dag eða á morgun

Stjórnarskipunarfrumvarpið var kallað inn í nefnd á Alþingi í nótt þótt annarri umræðu um málið væri ekki lokið, til að freista þess að ná samkomulagi við Sjálfstæðisflokinn um afgreiðslu málsins. Átján mál eru á málaskrá þingsins í dag, sem forseti Alþingis vonast til að hægt verði að afgreiða sem lög áður en dagurinn er liðinn.

Rónarnir skárri en stjórnleysingjarnir- MYNDIR

„Það er enginn frjáls!" öskraði einn mótmælandanna út um gluggann á annarri hæð á Vatnsstíg í morgun. Á sama tíma mátti sjá sérsveitarmenn á hæðinni fyrir neðan vopnaðir skjöldum. Mótmælendur voru búnir að stífla þröngan stiga upp á aðra hæð, það var svo illmögulegt að komast upp að lögreglan notaðist við vélsagir og kúbein.

Eva Joly fullkomlega vanhæf

Eva Joly er fullkomlega vanhæf til að koma að rannsókn sérstaks saksóknara. Þetta segir Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður. Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður, vekur máls á rannsókn bankahrunsins í grein í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann að í kjölfar bankahrunsins virðist sem flestum þyki eðlilegt að lýsa því yfir opinberlega að stjórnendur fjármálafyrirtækja og svokallaðir auðmenn séu glæpamenn.

Alls 22 handteknir á Vatnsstíg

Sextán mótmælendur voru handteknir í aðgerðum lögreglu á Vatnsstíg í morgun og hafa þá alls 22 verið teknir.

Blaðamanni meinaður aðgangur að svæðinu

Haukur Már Helgason ritstjóri dagblaðsins Nei var meinuð aðganga að svæðinu við Vatnsstíg þar sem hann er ekki með blaðamannaskirteini útgefið af Blaðamannafélagi Íslands.

Meina lögreglu útgöngu

Hópur fólks sem fylgist með aðgerðum lögreglu hefur virst meina lögreglu útgöngu þegar hún hugðist aka burtu með hústökufólk sem hún hafði handtekið.

Lögregla braust upp á efstu hæð - fimmtán handteknir

Lögreglumenn hafa brotist upp á efstu hæð hússins við Vatnsstíg þar sem hústökufólk hafði komið sér fyrir. Fólkið segir húsið hafa verið mannlaust og því geti það allt eins notað það sem félagsmiðstöð. Lögregla hóf í morgun aðgerðir til þess að reka fólkið út á grundvelli kæru frá eiganda hússins. Fimmtán hafa verið handteknir.

Peningadrusluaumingjar! - við komum aftur!

„Peningadrusluaumingjar! Þið getið bara hætt og farið. Við komum bara aftur og aftur.“. Þetta sagði einn hústökumanna við Vatnsstíg nú fyrir stundu þar sem lögreglan er við það að brjóta sér leið inn í húsið. „Við komum hingað til að gefa húsinu líf og svona komið þið fram við okkur,“ kallaði annar hústökumaður út um glugga á efri hæð hússins.

Fagráð vill séra Gunnar ekki til baka

Fagráð um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar er mótfallið því að séra Gunnar Björnsson sóknarprestur í Selfossprestakalli snúi aftur til starfa í kjölfar þess að hann var sýknaður af ásökunum um kynferðisbrot.

Námskeið í neytendarétti hjá NS

Neytendasamtökin standa á morgun fyrir námskeiði í heimilisbókhaldi og neytendarétti. Um er að ræða kennslu í heimilisbókhaldi og áætlanagerð auk þess sem farið verður yfir réttindi og skyldur neytenda.

Húsið við Vatnsstíg rýmt - tugir lögreglumanna í aðgerðinni

Lögregla hefur látið til skarar skríða gegn hústökumönnum við Vatnsstíg og eru tugir lögreglumanna á staðnum. Að sögn varðstjóra er búið að handtaka nokkra einstaklinga en hústökufólkið hefur vígbúist í húsinu og hyggst ekki hverfa á braut átakalaust.

Hált á Holtavörðuheiði og víðar

Á Vesturlandi eru hálkublettir í Svínadal en hálka á Holtavörðuheiði og á Laxárdalsheiði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á örfáum köflum en snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði. Vonast er til að Hrafnseyrarheiði verði fær fyrir hádegi.

Hælisleitendur mótmæla við Alþingishúsið

Hópur mótmælenda ætlar frá deginum í dag að taka sér stöðu fyrir framan Alþingi til þess að vekja athygli á stöðu hælisleitenda hér á landi. Flestir þeirra sem ætla að mótmæla eru sjálfir í stöðu hælisleitenda.

Erum alvöru afl

„Ég er hrærður og þakklátur. Þetta mikla fylgi sem mælist með okkur í tveimur könnunum á sama degi hefur komið af sjálfu sér. Við erum rétt að byrja. Úr því að þetta fer svona af stað þá finnst mér líklegt að við eigum eftir að bæta við okkur,“ segir Þráinn Bertelsson, fyrsti maður í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Góð vísbending

„Þetta er ánægjuleg vísbending og reynslan kennir manni að hafa verður fyrir hlutunum og heyja kosningabaráttu af krafti fram á síðasta dag,“ segir Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar.

Tengdir fasteignum, fiski og fjármálum

Flest hlutafélög sem alþingismenn tengjast beint starfa í fasteignaviðskiptum, fjármálaþjónustu eða fiskeldi og fiskveiðum samkvæmt svokallaðri ÍSAT-skráningu. Þetta kemur fram í skýrslu sem Creditinfo gerði fyrir Fréttablaðið um þátttöku þingmanna í atvinnulífinu og vitnað var til í blaðinu í gær.

Ísland-Palestína: Össur heiðursgestur á aðalfundi

Félagið Ísland-Palestína boðar til aðalfundar í Norræna húsinu miðvikudag 15. apríl kl. 20. Í upphafi aðalfundar mun Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flytja stutt ávarp en hann er heiðursgestur fundarins.

Sagði Sigmund grínista ársins

Ástþór Magnússon frá Lýðræðishreyfingunni sagði að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins ætti að fá verðlaun fyrir að vera grínisti ársins. Þessi orð lét Ástþór falla eftir að Sigmundur sagði Framsóknarflokkinn allataf hafa verið á móti stríði. Rætt var um aðkomu Íslands að stríðsrekstri á Borgarafundi í beinni útsendingu á Rúv.

Oddvitar allra flokka vilja afnema bankaleynd

Oddvitar allra flokka í Reykjavíkurkjördæmi norður eru sammála um að afnema eigi bankaleynd hér á landi. Þetta kom fram á opnum Borgarafundi sem nú er í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Illugi Gunnarsson oddviti Sjálfstæðismanna segir þó að hér verði að vera réttarríki.

Röskva fagnar úrræðum ríkisstjórnarinnar

Röskva, fagnar þeim úrræðum sem ríkisstjórnin hefur kynnt til að fyrirbyggja atvinnuleysi meðal stúdenta í sumar. Röskva lýsir yfir ánægju með að ríkisstjórnin hafi sýnt það í verki að hún situr ekki aðgerðarlaus og orðið við kröfum stúdenta, sem hafa verið uppi lengi en orðið æ háværari á undanförnum vikum.

Eigandi Vatnsstígsins: Hústökufólkið er þarna á mína ábyrgð

Ágúst Friðgeirsson eigandi Vatnsstígs fjögur þar sem hópur fólks hefur sest að í dag segir fólkið vera þar á sína ábyrgð. Húsið er rafmagnslaust og vatnslaust og því getur skapast mikil eldhætta þar inni. Hann segir að til standi að rífa húsið en hann þurfti að loka því fyrir skömmu vegna kakkalakka sem höfðu sest þar að. Ágúst hefur áður þurft að hafa afskipti af forsprakka hópsins sem hefur sest að í húsinu við hliðina á, sem einnig er í eigu Ágústar.

Ákvæði um stjórnlagaþing fellt út

Stjórnarflokkarnir og Framsóknarflokkurinn létu undan hótunum Sjálfstæðismanna um að tala um stjórnarskrána fram að kosningum og féllust á að fella ákvæði um stjórnlagaþing út úr stjórnlagafrumvarpinu á Alþingi í dag.

Hústökufólk á Vatnsstíg

Um 200 manns höfðu komið sér fyrir innandyra og utan við mannlaust hús við Vatnsstíg og neituðu að yfirgefa það síðdegis þrátt fyrir tilmæli eigenda. Óskað hefur verið eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja hústökufólkið.

Sjá næstu 50 fréttir