Innlent

Eigandi Vatnsstígsins: Hústökufólkið er þarna á mína ábyrgð

Breki Logason skrifar
Hústökufólkið við störf í dag.
Hústökufólkið við störf í dag. MYND/ANTON

Ágúst Friðgeirsson eigandi Vatnsstígs fjögur þar sem hópur fólks hefur sest að í dag segir fólkið vera þar á sína ábyrgð. Húsið er rafmagnslaust og vatnslaust og því getur skapast mikil eldhætta þar inni. Hann segir að til standi að rífa húsið en hann þurfti að loka því fyrir skömmu vegna kakkalakka sem höfðu sest þar að. Ágúst hefur áður þurft að hafa afskipti af forsprakka hópsins sem hefur sest að í húsinu við hliðina á, sem einnig er í eigu Ágústar.

Hústökufólkið segist með þessu vera að koma í veg fyrir að miðbærinn verði eyðilagður og hugðist stofna félagsmiðstöð, þar sem stunda átti róttæka pólitíska starfsemi og annað sem fólki dytti í hug.

Ágúst segir að Haukur nokkur sem frægastur er fyrir að hafa dregið Bónusfánann að húni á Alþingishúsinu sé í forsvari fyrir hópinn. „Hann var til vandræða fyrr í vetur þegar hann tók sér bólfestu í húsinu þarna við hliðina á sem ég á líka."

Ágúst sem staddur er erlendis sagðist hafa heyrt af þessu fyrst í fjölmiðlum en þá hafi hann haft samband við lögreglu og beðið þá um að taka á þessum málum eins og hann orðar það.

Ágúst segir ástæðulaust að skemma húsið þó til standi að rífa það. „Þetta var í útleigu en ástandið á því var orðið lélegt og við lentum í vandræðum með kakkalakka þarna. Ég lét hreinsa það með eitrun sem dugði ekki til og því ákváðum við að loka því."

Hann segir hópinn vera að sækjast eftir athygli en það sé þarna á sína ábyrgð og því vilji hann það út. „Útigangsmenn hafa sótt þarna og við höfum verið látnir vita af því að þeir séu á okkar ábyrgð. Því höfum við komið reglulega og hreinsað þarna út, ég sé engan mun á þessu fólki og einhverjum útigangsmönnum."

Fréttastofa hafði samband við lögreglu fyrir stundu en hún hefur ekkert aðhafst í málinu. Þeir vita af fólkinu og fylgjast með ástandinu.








Tengdar fréttir

Hústökufólk á Vatnsstíg

Um 200 manns höfðu komið sér fyrir innandyra og utan við mannlaust hús við Vatnsstíg og neituðu að yfirgefa það síðdegis þrátt fyrir tilmæli eigenda. Óskað hefur verið eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja hústökufólkið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×