Innlent

Erum alvöru afl

„Ég er hrærður og þakklátur. Þetta mikla fylgi sem mælist með okkur í tveimur könnunum á sama degi hefur komið af sjálfu sér. Við erum rétt að byrja. Úr því að þetta fer svona af stað þá finnst mér líklegt að við eigum eftir að bæta við okkur,“ segir Þráinn Bertelsson, fyrsti maður í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Þráinn segir það hafa verið rétt mat að þörf sé fyrir framboð eins og Borgarahreyfinguna. „Mér þykir vænt um þetta traust og þau skilaboð að við erum alvöru framboð. Fólk er að senda þau skilaboð að það vill okkar rödd í umræðuna.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×