Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvergi verði slegið af í baráttunni gegn umferðarslysum Í nýrri ályktun frá Umferðarráði er bent á að það sem af sé ári hafi þrír einstaklingar látist í umferðarslysum. „Það er óásættanlegt,“ segir einnig. „Þrátt fyrir að fjöldi látinna í umferð hafi verið með lægsta móti á síðasta ári er full ástæða til að halda vöku sinni og slá hvergi af í baráttunni gegn umferðarslysum,“ segir einnig. 20.2.2009 13:45
ESB-aðild hefur lítil áhrif á yfirráðarétt orkuauðlinda Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, segir að ekki sé hægt að halda fram hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi hafa veruleg áhrif á stöðu landsins og möguleika varðandi yfirráðarétt og nýtingu jarðrænna auðlinda. Þetta kom fram í erindi Guðna á aðalfundi Samorku um íslenskar orkulindir og ESB. 20.2.2009 13:30
Sýndarsjúklingurinn Hermann á ferð og flugi á morgun Sýndarsjúklingurinn Hermann verður fluttur frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi á morgun með sjúkrabifreið yfir á Háskólatorg. Flutningarnir munu verða strax upp úr hádegi og má reikna með ýmsum uppátækjum í Hermanni. 20.2.2009 13:14
Ingi Björn snýr aftur Ingi Björn Albertsson, fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram til Alþingis á nýjan leik en hann sat í átta ár þingi frá 1987 til 1995. Ingi Björn hyggst taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en framboðsfrestur rennur út í dag. 20.2.2009 13:10
Gefur kost á sér í kraganum Íris Björg Kristjánsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-5. sæti á prófkjörslista Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. 20.2.2009 13:01
Skúli vill 1. eða 2. sætið í Suðurkjördæmi Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, hefur ákveðið að gefa kost á sér 1. - 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. 20.2.2009 12:42
Bankarnir sýna Alþingi óvirðingu Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kvartaði undan því á Alþingi í morgun að enn hafi ekki borist svör við tveggja mánaða gamalli fyrirspurn frá henni um bifreiðahlunnindi fyrrverandi og núverandi starfsmanna bankanna. Hún sagði bankanna sýna Alþingi óvirðingu. 20.2.2009 12:29
Reiknað með að búðarþjófnaðir kosti níu milljarða á árinu Áætlað er að stolið verði fyrir um sjö milljarða króna úr verslunum á Íslandi á þessu ári og að kostnaður fyrirtækjanna vegna þessa verði um níu milljarðar króna. 20.2.2009 12:05
Í framboð fyrir VG Brynja Björg Halldórsdóttir býður sig fram í 3.-4. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík. Hún er formaður Ungra Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu og leggur mesta áherslu á kvenfrelsismál, umhverfisvernd, og málefni ungs fólks. 20.2.2009 11:43
ASÍ ekki treystandi fyrir verðlagseftirliti Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri 10-11, segir að Alþýðusambandi Íslands sé ekki treystandi fyrir verðlagseftirliti. Hann segir að enn einu sinni hafi starfsmenn verðlagseftirlits ASÍ gerst uppvísir að því að skrá hjá sér röng verð í verðkönnun. 20.2.2009 11:33
Sambýlismaðurinn laus úr gæsluvarðhaldi Sambýlismaður konunnar sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði fyrr í mánuðinum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar grunaður um aðild að andláti konunnar. Sá grunur stendur enn að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar. Ekki liggur fyrir niðurstaða krufningar. 20.2.2009 11:31
Hæfniskröfur rýmkaðar og aðstoðarbankastjóra bætt við Meirihluti viðskiptanefndar Alþingis leggur til í nefndaráliti að stöðu aðstoðarseðlabankastjóra verði bætt við frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á yfirstjórn Seðlabankans og stjórn peningamála. Gert er ráð fyrir að hann verði staðgengill seðlabankastjóra. Hæfniskröfur stjórnenda bankans verða rýmkaðar. Þetta kom fram í máli Álfheiðar Ingadóttur, formanns nefndarinnar, á Alþingi í dag. 20.2.2009 11:19
Fjöldi atvinnulausra nálgast 16 þúsund Atvinnuleysi heldur áfram að aukast hröðum skrefum og nú eru 15.816 manns atvinnulausir á landinu öllu sem er um 8,5% af áætluðu vinnuafli á árinu. 20.2.2009 10:21
Kanna áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur formann sjö manna vinnuhóps sem ætlað er að meta meta sérstaklega áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna. Skipunin er í samræmi við ríkisstjórnarinnar frá því fyrr í mánuðinum. 20.2.2009 10:08
Óskar gagnrýndur af flokksbróður Friðrik Jónsson, formaður Framsóknarflokksins á Akranesi og frambjóðandi um oddvitasæti flokksins í Norðvesturkjördæmi, gagnrýnir harðlega Óskar Bergsson, flokksbróður sinn og formann borgarráðs, fyrir að hafa sýnt dómgreindarskort vegna móttöku sem hann hélt fyrir framsóknarmenn í Ráðhúsinu og varðandi málefni Eyktar. 20.2.2009 09:34
Evrópusambandið getur breytt löggjöf á sviði fiskimála Stefán Már Stefánsson prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands segir að evrópusambandið geti breytt löggjöf á sviði fiskimála að vild með auknum meirihluta. Þetta var meðal þess sem kom fram í hádegisverðarerindi Stefáns á vegum Lögfræðingafélags Íslands í vikunni. Þetta kemur fram á fréttavef Landssambands íslenskra útvegsmanna í dag. 20.2.2009 09:33
Fimm fjórhjólum stolið í Grindavík Lögreglunni á Suðurnesjum hefur borist tilkynning um innbrot í fjórhjólaleigu í Grindavík og að þaðan hafi verið stolið fimm fjórhjólum af gerðinni Bombardier, gulum og svörtum að lit. 20.2.2009 07:34
Allt að 348% verðmunur á pasta í könnun ASÍ Mikill munur var á verðlagningu milli verslana þegar Alþýðusamband Íslands kannaði verð matvöru á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudaginn eða allt að 348%. 20.2.2009 06:49
Björn Jörundur áfram dómari í Idol Ari Edwald forstjóri 365 segir að Björn Jörundur Friðbjörnsson muni halda áfram sem einn af dómurum í þáttunum Idol Stjörnuleit sem sýndir eru á Stöð 2. Hann segir Björn Jörund hafa fullvissað stjórnendur fyrirtækisins um að aðstæður sínar hafi breyst frá því fyrir tæpu ári síðan og fyrirtækið styðji hann í því að vera á réttri braut. 19.2.2009 19:30
Í framboð fyrir framsókn Margrét Þóra Jónsdóttir býður sig fram í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norð-vestur kjördæmi. Margrét er 39 ára Akurnesingur og hefur tekið þátt í bæjarmálum á Akranesi síðustu 7 ár. 19.2.2009 19:55
Býður sig fram í Reykjavík Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins ætlar að bjóða sig fram í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningunum 25.apríl. 19.2.2009 19:02
Steingrímur velur alla stjórnarmenn Landsvirkjunar Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, mun sem fjármálaráðherra velja alla fimm stjórnarmenn Landsvirkjunar á aðalfundi eftir sex vikur. Líklegt er að næsta stjórn þurfi bæði að fjalla um nýjar virkjanir og orkusölu til stóriðju, sem Vinstri grænir hafa barist hart gegn. 19.2.2009 19:00
Umferðaröryggisgjald á fölskum forsendum Sérstakur skattur sem lagður er á alla bíleigendur til að auka umferðaröryggi verður tekinn yfir í ríkishítina og framlög til umferðaröryggis skorin niður sem honum nemur. Bíleigendur verða hins vegar áfram látnir borga skattinn. 19.2.2009 19:00
Enn slæmt aðgengi að Egilshöll Foreldrar barna sem æfa íþróttir í Egilshöll óttast að þau slasi sig á leið inn í húsið þar sem aðgengi er slæmt. Það hefur staðið til að laga það í nokkra mánuði en enn gerist ekkert. 19.2.2009 18:31
Gestastofa Tónlistarhússins kostaði 120-160 milljónir Heildarkostnaður við gerð gestastofu Tónlistarhúsins er á bilinu 120 til 160 milljónir króna. Þar af voru greiddar um 40 milljónir í arkitektakostnað. Til stóð að rífa húsið þegar verkefninu lyki. 19.2.2009 18:30
Sigríður Ingibjörg í framboð fyrir Samfylkingu Sigríður Ingibjörg Ingadóttir ætlar að gefa kost á sér í 3.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Í yfirlýsingu frá Sigríði segist hún vilja taka þátt í að móta farsælt og sterkt jafnaðar- og lýðræðissamfélag sem einkennist af lýðræðislegum vinnubrögðum, jafnrétti og sanngirni að norrænni fyrirmynd. 19.2.2009 17:45
Upplýsir ekki hvort Eykt hafi stutt sig Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, upplýsir ekki hvort verktakafyrirtækið Eykt hafi stutt sig í prófkjörsbaráttu Framsóknarflokksins árið 2006. Óskar telur nauðsynlegt að leikreglur kjörinna fulltrúa séu skýrar. 19.2.2009 17:38
Lúðvík sækist ekki eftir endurkjöri Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sækist ekki eftir endurkjöri í komandi þingkosningum. Hann hefur átt sæti á Alþingi í fjórtan ár. 19.2.2009 17:27
Eyþór með meiri stuðning en Árni Matt Stuðningsmenn Eyþórs Arnalds létu í vikunni Capacent Gallup framkvæma skoðanakönnun á meðal kjósenda í Suðurkjördæmi. Í könnunni kemur fram mjög eindreginn stuðningur við Eyþór á meðal íbúa kjördæmisins. 19.2.2009 17:12
Miskabætur vegna ofsókna hækkaðar Karlmaður sem ofsótti tvo starfsmenn Fjölskylduþjónustunnar var dæmdur í tíu mánaða fangelsi en miskabætur voru hækkaðar úr þrjú hundruð þúsund upp í sex hundruð þúsund krónur í Hæstarétti Íslands. Maðurinn hafði haft ítrekað í ógeðfelldum hótunum við starfsmennina en barn hins dæmda hafði verið tekið af honum og var í fóstri. 19.2.2009 16:57
Hæstiréttur mildar dóm yfir tíræðum kynferðisbrotamanni Hæstiréttur mildaði í dag refsidóm yfir tíræðum karlmanni af Reykjanesi vegna kynferðisbrots sem maðurinn framdi gagnvart barnabarni sínu á árunum 1995-2004. Hæstiréttur dæmdi manninn í tveggja ára fangelsi en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt hann í fjögurra ára fangelsi. 19.2.2009 16:44
Logi býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar Logi Már Einarsson, arkitekt, hefur ákveðið að bjóða sig fram þriðja sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hann hvetur kjósendur til þess að velja konu í annað af tveimur efstu sætunum. 19.2.2009 15:40
Ari biður griða fyrir Björn Jörund „Þetta er strákur sem á í vandræðum með vímuefni," segir Ari Matthíasson, fyrrum framkvæmdarstjóri SÁÁ, um fíkniefnahneykslið sem Björn Jörundur Friðbjörnsson lenti í þegar endurrit af samtali hans við dæmdan fíkniefnasala varð opinbert. 19.2.2009 15:39
Tryggvi Þór sækist eftir þingsæti Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor í Hagfræði við Háskóla Íslands, hefur ákveðið að sækjast eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu alþingiskosningar. 19.2.2009 15:30
Viljayfirlýsing um Tónlistarhúsið undirrituð Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framkvæmdir við Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Menntamálaráðuneyti og Reykjavíkurborg eru sammála um mikilvægi þess að framkvæmdum við húsið verði fram haldið. 19.2.2009 15:17
Styðja hugmyndir Ástu um jafna kynjaskiptingu Stjórn Kvenréttindafélags Íslands tekur heilshugar undir hugmyndir Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að stjórnmálaflokkarnir setji sér reglur er varða kynjaskiptingu á framboðslistum, þannig að skipting kvenna og karla verði sem jöfnust. 19.2.2009 13:47
Benedikt vill forystusæti í Norðausturkjördæmi Benedikt telur að virkni hins almenna kjósanda í umræðunni síðustu mánuðina beri að túlka sem ákall eftir lýðræðisumbótum og að vaxandi þungi virðist vera í kröfunni um að stjórnmálamenn axli ábyrgð. Samfylkingin sé lýðræðislegur jafnaðarmannaflokkur og eigi ótvírætt að vera í fararbroddi siðbótar íslenskra stjórnmála. Því sé opið prófkjör hjá Samfylkingunni í kjördæminu sjálfsögð tilraun til að bjóða áhugafólki um félagshyggju og samfélagslegt réttlæti að taka þátt í endurnýjun forystusveitar flokksins í kjördæminu. 19.2.2009 13:37
Fékk 1500 þúsund í bætur vegna vinnuslyss Héraðsdómur hefur dæmt Síld og fisk ehf. til að greiða fyrrum starfsmanni sínum Ewu Zubrzycka rúmar 1500 þúsund krónur með vöxtum vegna slyss sem varð þegar að Ewa skar sig á kjötsög í vinnunni. 19.2.2009 13:28
Hverfislöggæslu haldið áfram Hverfislöggæslustöðvar verða áfram með fast aðsetur í þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Hugmyndir um að leggja niður hverfislöggæslustöðvar í Breiðholti og Grafarvogi sem lagðar voru fram af hálfu lögreglunnar voru nýverið verið kynntar borgarstjóra. 19.2.2009 13:11
Fimmtán ára dæmdur fyrir kynferðisbrot Fimmtán ára gamall piltur var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot í Héraðsdómi Reykjaness í gær. 19.2.2009 13:11
63 menn munu djöflast gegn persónukjöri Hópur 63 sérhagsmunagæslumanna mun reyna allan djöfulskap til að koma í veg fyrir að hægt verði að bjóða upp á persónukjör í komandi þingkosningum. Þetta fullyrtu þeir Eiríkur Bergmann Einarsson og Jón Baldvin Hannibalsson um síðustu helgi. Þetta virðist nú vera að koma á daginn. 19.2.2009 13:08
Borgarráð: Framkvæmdum við Tónlistarhúsið framhaldið Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að framkvæmdum við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði framhaldið. Bókunin var samþykkt samhljóða í ráðinu, að sögn Óskar Bergssonar formanns borgarráðs. Sameiginleg yfirlýsing ríkis og borgar um framkvæmdina verður kynnt síðar í dag. 19.2.2009 12:52
Slá milljónir af söluverði eigna Raunverulegt íbúðaverð á höfuðborgarsvsæðinu er mun lægra en mælingar Fasteignamatsins sýna. Dæmi eru um að seljendur slái jafnvel tugi milljóna af söluverði dýrra eigna. 19.2.2009 12:32
Útilokar ekki þingframboð „Ég hef ekkert íhugað þetta sérstaklega," svarar bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirsson hvort hann hyggi á framboð til Alþingis fyrir hönd Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. 19.2.2009 12:21
Konur áberandi hjá VG í Reykjavík Útlit er fyrir að það verði spennandi barátta um efstu sæti á listum Vinstri grænna fyrir komandi alþingiskosningar. Forval verður haldið 7. mars næstkomandi og ljóst að margir hafa áhuga á að leiða listana. 19.2.2009 11:57