Ari biður griða fyrir Björn Jörund 19. febrúar 2009 15:39 Ari Matthíasson, fyrrum framkvæmdarstjóri SÁÁ, biður griða fyrir hönd Björns Jörundar. „
Þetta er strákur sem á í vandræðum með vímuefni," segir Ari Matthíasson, fyrrum framkvæmdarstjóri SÁÁ, um fíkniefnahneykslið sem Björn Jörundur lenti í þegar endurrit af samtali hans við dæmdan fíkniefnasala varð opinbert. Ari, sem nú stefnir á pólitískan frama innan Vinstri grænna, segir það auðvelt, og í raun ódýrt, að vera dómharður gagnvart mönnum sem misstíga sig með þessum hætti. „Þetta verður eiginlega hjákátlegt," segir Ari og bendir til að mynda á ummæli sem Bubbi Morthens lét falla um málið í gær, en hefur nú beðist afsökunar á. Ari bendir á hliðstæðu í máli Björns Jörundar og svo þegar Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í Árborg, ók drukkinn á ljósastaur um árið. Ari segir að þá hafi margir hneyklast á gjörðum hans, hann spyr á móti: Hversu margir hafa ekið drukknir? „Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum," segir Ari sem telur málið allt hið sorglegasta. Hann segist biðla til almennings að skilja að kannski hafi Birni ekki verið sjálfrátt þegar hann hringdi í fíkniefnasalann. Hann segist taka það gott og gilt að Björn hafi fullyrt að hann væri búinn að taka á sínum málum í viðtali við Stöð 2 í gærkvöldi. „En ég biðla bara til almennings að gefa Birni grið," segir Ari skilningsríkur að lokum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira