Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slökkvilið kallað að Þinghólsbraut Slökkviliðið var kallað að Þinghólsbraut í Kópavogi á sjötta tímanum í kvöld þegar að pottur gleymdist á eldavélarhellu. Mikinn reyk lagði um íbúðina en enginn eldur kom upp að sögn slökkviliðsins. Engan sakaði, en íbúðin var reykræst. 7.1.2009 19:17
Fer huldu höfði til að forðast fósturforeldra Fjórtán ára stúlka hefur farið huldu höfði í Reykjavík síðustu daga til að komast hjá því að fara til fósturforeldra á Austurlandi. Barnaverndaryfirvöld hafa komið í fylgd lögreglu til að sækja stúlkuna. Foreldrar hennar saka yfirvöld um valdníðslu. 7.1.2009 18:46
Bjarni Harðar farinn úr Framsóknarflokknum Bjarni Harðarson, fyrrverandi alþingismaður, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum og útilokar ekki nýtt framboð verði boðað til þingkosninga á árinu. Þetta kemur fram í Sunnlenska fréttablaðinu. 7.1.2009 17:18
Efast um ávinning af fyrirhugaðri sameiningu Starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga efast um fjárhagslegan ávinning af fyrirhugaðri sameiningu sjúkrastofnana á Norðurlandi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á starfsmannafundi í dag. Ályktunin fer hér eftir: 7.1.2009 17:01
Sigmundur smalaði ekki á átakafund ,,Það var búið að vara mig við því að það væri von á átökum á þessum Reykjavíkurfundi en ég átti ekki von á því að þetta gengi svona fyrir sig. Ég hefði haldið að í hátt í 100 ára gömlum flokki væri ekki svona mikil óvissa um hvernig hlutirnir færu fram," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formannsframbjóðandi í Framsóknarflokknum, um mikinn hitafund Framsóknarfélagsins í Reykjavík í gærkvöldi. Hann segist ekki hafa staðið á bak við eða tengjast smölun á fundinn. 7.1.2009 16:49
Eygló gefur kost á sér sem ritari Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem ritari flokksins. Flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið um miðjan janúar og þar verður ný forysta kjörin. Sæunn Stefánsdóttir, núverandi ritari flokksins og Gunnar Bragi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður úr Skagafirði, hafa áður lýst yfir framboði í embættið. 7.1.2009 16:42
Lamdi getnaðarlim sínum framan í tólf ára dreng Þrír piltar voru í dag fundnir sekir af í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára gömlum dreng. Dómari frestaði refsingu í málinu en dæmdi piltana til þess að greiða drengnum 100 þúsund krónur í bætur. Atvikið varð með þeim hætti að drengurinn var að koma af æfingu í íþróttahúsi í bæjarfélagi á Suðurlandi í janúar á síðasta ári þegar piltarnir, sem þá voru fimmtán ára gamlir, réðust að honum. Tveir þeirra héldu drengnum á meðan sá þriðji leysti niður um sig buxurnar og sló getnaðarlim sínum ítrekað í andlit og hendur drengsins. 7.1.2009 16:05
Loðna finnst á mjög stóru svæði fyrir austan Vart hefur orðið við loðnu á mjög stóru svæði úti fyrir Norðausturlandi og norðanverðum Austfjörðum í loðnuleitinni sem nú stendur yfir og ljúka átti í dag. 7.1.2009 15:33
Lögreglan lýsir eftir þrjátíu rafmagnsnuddstólum Skömmu fyrir áramót var um þrjátíu rafmagnsnuddstólum og nokkrum dýnum stolið í innbroti úr fyrirtæki í Hafnarfirði. 7.1.2009 15:19
Læknar krefjast þess að stríðandi fylkingar á Gaza virði Genfarsáttmálann Læknafélög Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Danmerkur krefjast þess að stríðandi fylkingar á Gaza fylgi í einu og öllu ákvæðum Genfarsáttmálans til að vernda saklausa borgara og tryggja mannréttindi þeirra á stríðstímum. 7.1.2009 15:12
Harkaleg átök í Framsóknarflokknum ,,Það er ekkert óeðlilegt við það að nýir menn gangi í flokkinn eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðmundur Steingrímsson og sjálfsagt að þeim fylgi eitthvað fólk. Ég geri til að mynda fastlega ráð fyrir að fjölskylda og vinir fylgi Sigmundi en þetta var auðvitað öðruvísi gjörningur," segir Sæunn Stefánsdóttir ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður. 7.1.2009 14:31
Ráðherra kynnir breytingar í heilbrigðisþjónustunni Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur í hyggju að gera umtalsverðar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á næstunni og voru þær breytingar kynntar á fundi nú klukkan tvö. 7.1.2009 14:24
St. Jósefsspítali lagður niður St. Jósefsspítali verður lagður niður og megnið af starfsemi hans flutt til Keflavíkur. Meltingarsjúkdómadeild verður flutt á Landsspítala. Starfsmönnum var tilkynnt þetta á fundi fyrr í dag. 7.1.2009 14:19
Íslenskur hugbúnaður í baráttuna gegn barnaklámi Á næstunni verður tekinn í notkun hjá lögreglunni íslenskur hugbúnaður sem nota á í baráttunni gegn barnaklámi. 7.1.2009 14:01
Kveikt í jólatré á Háaleitisbraut Slökkvilið og sjúkralið voru kölluð að Háaleitisbraut þar sem tilkynnt var um eld og gaf tilkynningin til kynna að um mikinn eld væri að ræða. Þegar slökkvilið kom á staðinn kom hins vegar í ljós að kveikt hafði verið í jólatré utandyra og áttu slökkviliðsmenn ekki í vandræðum með að ráða niðurlögum eldsins. 7.1.2009 13:25
Mótmælt við Landsbankann í Austurstræti Um það bil fimmtíu til sextíu manns mótmæla nú við Landsbankann í Austurstræti. Fólkið krefst þess að þær Elín Sigfúsdóttir bankastjóri Landsbankans og Birna Einarsdóttir bankastjóri Glitnis víkji. Þá hrópa mótmælendur slagorð á borð við: „Engar afskriftir!“ Í gjörningi sem skipulagður hafði verið af mótmælendunum var kona í gervi Elínar borin út úr bankanum. 7.1.2009 13:08
Risastóran búrhval rak á land 40 tonna búrhval rak á land á Borgarhafnarfjöru þann 29. desember síðastliðinn. Hvalurinn er um 14 metra langur og mögulega stærsti búrhvalur sem rekið hefur á land á Íslandi svo vitað sé. Laufey Guðmundsdóttir bóndi á Lækjarhúsum tók meðfylgjandi mynd af ferlíkinu sem er engin smásmíði eins og sjá má. 7.1.2009 12:49
St. Jósefsspítali lagður niður í núverandi mynd Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, segir að áætlanir geri ráð fyrir að á St. Jósefsspítala verði rekin öldrunarþjónusta og starfsemi hans flutt á Landsspítalann og til Keflavíkur þar sem aðstæður eru betri. Orðrómur hefur verið uppi um að að breyta eigi spítalanum í núverandi mynd í öldrunarstofnun. Á spítalanum eru framkvæmdar á ári hverju fjöldi skurðaðgerða og eru hátt í 1000 manns á biðlista eftir að komast að á spítalanum. 7.1.2009 12:44
Ekkert ákveðið um yfirtöku á myntkörfulánum Til greina kemur að íbúðalánasjóður yfirtaki erlend íbúðalán á því gengi sem var í gildi þegar þau voru tekin. Þessi lausn er nú í skoðun hjá félagsmálaráðuneytinu og viðskiptaráðuneytinu. Ekkert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum. 7.1.2009 11:55
Vodafone: Rannsókn mun taka af allan vafa um eðlilega viðskiptahætti Forsvarsmenn símafyrirtækisins Vodafone, sem Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá í morgun, taka í sama streng og stjórnarformaður Teymis og fagna aðgerðunum. Félagið segir að húsleitin muni taka af allan vafa um eðlilega og heiðarlega viðskiptahætti fyrirtækisins. 7.1.2009 11:01
Meirihluti styður einhliða upptöku gjaldmiðils í stað krónu Meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi einhliða upptöku alþjóðlegs gjaldmiðils í stað krónu. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir áhugamenn um stjórn peningamála. 56,4% sögðust hlynntir einhliða upptöku alþjóðlegrar myntar, 21,6% andvígir en 22% sögðu hvorki né. 7.1.2009 10:11
Umtalsverðar breytingar á heilbrigðisþjónstunni Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnir umtalsverðar breytingar á skipulagi og verkaskiptingu í heilbrigðisþjónustunni í landinu á fundi með blaðamönnum í dag. Ráðgert er að sjúkrastofanir verði sameinaðar og aðrar jafnvel lagðar niður. Starfsmenn St. Jósefsspítala og Sólvangurs fordæmdu í gær vinnubrögð ráðherra en orðrómur er uppi um að að breyta eigi spítalanum í öldrunarstofnun. 7.1.2009 09:35
Fordæmir innrás Ísraelshers Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fordæmir innrás Ísraelshers á Gazasvæðið. Í ályktun stjórnarinnar segir að loftárásir og innrás hersins bitni helst á íbúum svæðisins sem þegar búa við kröpp kjör. Ekkert réttlæti ofbeldi gegn saklausum borgurum. 7.1.2009 09:16
Drógu logandi ruslagám frá leikskóla Tveir menn sýndu mikið snarræði og komu í veg fyrir stórtjón þegar þeir drógu logandi ruslagám frá leikskólanum við Kiðagil á Akureyri á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þá var eldurinn farinn að teygja sig i húsið og hafði rúða brotnað þannig að reyk var farið að leggja inn. 7.1.2009 07:15
Fundu loðnu af og til í nótt Skipshöfnin á loðnuskipinu Faxa hefur verið að finna loðnu af og til í alla nótt eftir að hennar varð fyrst vart norðaustur af landinu í gær. Á Berki NK hafa menn líka verið að finna loðnu á svipuðum slóðum en skipin eru að leita að loðnu í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun. 7.1.2009 07:13
Slösuðust við að taka skotelda í sundur Tveir unglingar meiddust á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær þegar þeir voru að fikta við að taka skotelda í sundur með þeim afleiðingum að sprengingar urðu. Báðir voru fluttir á slysadeild Landspítalans en hvorugur meiddist alvarlega. 7.1.2009 07:11
Sjö grunaðir um fíkniefnaakstur Lögreglan á Suðurnesjum tók sjö ökumenn úr umferð í gærkvöldi og í nótt vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og hafa aldrei jafnmargir verið teknir úr umferð fyrir þær sakir á jafnskömmum tíma. 7.1.2009 07:07
Ætlað að auka skilvirkni og gegnsæi Stjórnskipulag Akraneskaupstaðar tók miklum breytingum um áramót. Margar nefndir voru aflagðar og verkefni þeirra færð undir ný ráð; fjölskylduráð og framkvæmdaráð. Í þeim munu kjörnir fulltrúar sitja, líkt og í bæjarráði sem starfar áfram. 7.1.2009 06:45
Streita, þunglyndi og kvíði í lögreglu Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu eru stressaðri, þunglyndari og kvíðnari en starfsbræður þeirra á landsbyggðinni. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýbirtum niðurstöðum könnunar sem Ríkislögreglustjóri hefur látið gera á á streitu og líðan lögreglumanna. 7.1.2009 06:00
Kvótaveð í hendur útlendinga Glitnir færði veð í kvóta nokkurra stærstu útgerða landsins í hendur erlendra banka síðastliðið sumar. Forstjóri Þorbjarnar í Grindavík segir ráðamenn bankans með þessu hafa svikið skriflegt loforð og því borgi hann nú af lánunum til Deutsche bank. Talið er að kvótaveð að verðmæti á þriðja tug milljarða króna séu þannig komin í hendur útlendinga. 6.1.2009 18:29
Tveir á slysadeild vegna flugeldaslysa Tvö flugeldaslys voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en í báðum tilvikum voru aðilar fluttir á slysadeild. 6.1.2009 17:27
Reykjavíkurborg fer ekki varhluta af efnahagsástandinu „Fjárhagsáætlunin endurspeglar sameiginlegan vilja allrar borgarstjórnar að standa með borgarbúum við þessar aðstæður. Hún endurspeglar einnig að Reykjavíkurborg fer ekki varhluta af erfiðum efnahagsaðstæðum í íslensku samfélagi og að Reykjavíkurborg mætir 6.1.2009 17:19
Skóflustunga tekin að stúdentaíbúðuum Pétur Markan, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands, telur að skóflustunga að nýjum Stúdentagörðum við Skógarveg marki upphafið að uppbyggingu á glæsilegum námsmannaíbúðum sem sé ákaflega mikilvægt fyrir stúdenta sem berjast nú í bökkum líkt og aðrir landsmenn. 6.1.2009 16:57
Fráleitt að borgarbúar fjármagni gæluverkefni Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að megintillaga meirihlutans milli umræðna um fjárhagsáætlun borgarinnar hafi verið að veita aukafjárveitingu til myndastyttugerðar. Hann segir fráleitt að borgarbúar taki á sig skerðingar til að fjármagna pólitísk gæluverkefni. 6.1.2009 16:35
Enginn bankanna ætlar að kaupa veiðileyfi Enginn ríkisbankanna þriggja ætla að kaupa veiðileyfi fyrir næsta sumar. Þeir hafa nú allir svarað fyrirspurn Stangveiðifélags Seyðisfjarðar um fyrirhuguð kaup á veiðileyfum. 6.1.2009 16:33
Krefst þess að heilbrigðisnefnd komi saman Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, krefst þess að heilbrigðisnefnd Alþingis komi saman og ræði fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á starfsemi sjúkrastofnanna. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hyggst kynna breytingarnar fundi með blaðamönnum á morgun. 6.1.2009 16:30
Borgarstjórn fundar um fjárhagsáætlun Síðari umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 hófst klukkan 14 í dag og er búist við að fundur borgarstjórnar standi fram á kvöld. Samkvæmt drögum sem lögð voru fyrir borgarstjórn 22. desember er gert ráð fyrir að álagningarhlutföll útsvars, fasteignaskatta, lóðarleigu og holræsagjalds verði ekki hækkuð. Hagrætt verður í stjórnsýslu borgarinnar og laun borgarfulltrúa og æðstu stjórnenda lækka um 10%. 6.1.2009 15:45
Þrettándabrenna í Vesturbænum Í dag er þrettándinn og í tilefni að deginum verður haldin barna- og fjölskylduhátíð í Vesturbænum. Dagskrá byrjar við Melaskóla kl. 17:15 með ávarpi formanns hverfisráðs Völu Ingimarsdóttur, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Skemmtiatriði verða frá öllum grunnskólunum, Kakósala ungmennaráðs Vesturbæjar og svo verður gengið fylktu liði niður á Ægisíðu þar sem kveikt verður í brennu kl. 18:00. 6.1.2009 14:55
Skynsamlegt að leita til Mannréttindadómstólsins Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir skynsamlegt að ríkisstjórnin ætli að leita réttar síns gagnvart Bretum fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að höfða ekki mál gegn breska ríkinu en kanna til þrautar möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstólnum. 6.1.2009 14:38
Fritzl, sjóræningjar, Obama og Íslendingar vinsælastir á Guardian Litla Ísland komst í heimsfréttirnar á síðustu mánuðum liðins árs og ekki af góðu. Þegar fréttamenn breska blaðsins Guardian tóku saman mest lesnu fréttir síðasta árs á vefnum kom í ljós að frétt af falli Íslands var áttunda mest lesna erlenda fréttin þar á bæ. 6.1.2009 14:27
Landsbankinn hyggst heldur ekki kaupa veiðileyfi Nýi Landsbankinn hefur hvorki fest né keypt veiðileyfi fyrir næsta ár og hyggst ekki gera það. Þetta kemur fram í svari skrifstofu bankastjórnar við fyrirspurn Stangveiðifélags Seyðisfjarðar. 6.1.2009 13:41
Samskip áfram með rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara Samningur Vegagerðarinnar og Samskipa um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara hefur verið framlengdur til næstu tveggja ára. Landflutningar-Samskip hafa annast rekstur ferjunnar óslitið í rúm 12 ár, eða frá 1. maí 1996. 6.1.2009 13:10
40 prósent fleiri fyrirspurnir Neytendasamtökunum bárust alls 122.643 erindi og fyrirspurnir á nýliðinu ári sem er um 40% aukning frá árinu 2007. Flestar fyrirspurnirnar voru vegna verðlags og auglýsinga, ferðalaga, fjármálafyrirtækja og raftækja. 6.1.2009 12:27
Ríkisstjórn vill leita til Mannréttindadómstólsins Ríkisstjórnin hefur ákveðið að kanna til þrautar möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna beitingar breskra stjórnvalda á svonefndum hryðjuverkalögum frá árinu 2001 gegn Landsbankanum á síðasta ári. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi sem fram fór nú í morgun. Ekki verður höfðað mál gegn breska ríkinu þar í landi. 6.1.2009 12:14
Geir segir allt í góðu á stjórnarheimilinu Forsætisráðherra segir stjórnarsamstarfið sterkt og vísar því á bug að formaður Samfylkingar sé að finna átyllu til að slíta því með ummælum um Evrópusambandið. Mismunandi áherslur um ESB séu ekki nýjar af nálinni. 6.1.2009 12:04