Harkaleg átök í Framsóknarflokknum 7. janúar 2009 14:31 Sæunn Stefánsdóttir, ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður. ,,
Það er ekkert óeðlilegt við það að nýir menn gangi í flokkinn eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðmundur Steingrímsson og sjálfsagt að þeim fylgi eitthvað fólk. Ég geri til að mynda fastlega ráð fyrir að fjölskylda og vinir fylgi Sigmundi en þetta var auðvitað öðruvísi gjörningur," segir Sæunn Stefánsdóttir ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður. Fjölmargir mættu á mikinn hitafund Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi þar sem tekist var á um hvaða fulltrúar félagsins munu hafa kosningarétt á flokksþinginu sem fer fram um miðjan mánuðinn. Skömmu fyrir fundinn var inntökubeiðnum rúmlega 70 einstaklinga skilað inn á skrifstofu flokksins. Sæunn segir að þekktir kosningasmalar hafi beitt sér að mikilli hörku í aðdraganda og á sjálfum fundinum. Fimm hafa gefið kost á sér til formennsku á flokksþinginu. Meðal þeirra eru Höskuldur Þórhallsson, Páll Magnússon og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Stuðningsmenn Sivjar Friðleifsdóttur og Páls tókust harkalega á í framsóknarfélögunum í Kópavogi árið 2005 en þar verða þingfulltrúar valdir á fundi í kvöld. Ekki stuðningsmenn Páls Ef til vill er ekki undarlegt að það sé spenna í flokknum, að mati Sæunnar. ,,Við eigum kost á því að vera fyrsti flokkurinn til að svara kalli tímans um endurnýjun og endurmat." Einhverjir hafi þó verið heldur kappsamir. Sæunn vill þó ekki segja til um á vegum hvers smölunin hafi verið. Komið hafi þó fram á fundinum að þeir sem stóðu að henni voru ekki stuðningsmenn Páls. Sæunn segir að þekktur kosningasmali hafi skilað inn nýskráningunum í gær. Aðspurð hvort það sé eðlilegt segir Sæunn að skrifstofa flokksins hafi farið yfir skráningarnar og samþykkt þær. ,,Þetta var engu að síður gert með einkennilegum hætti því fólk gengur vanalegt sjálft í stjórnmálaflokka með því að hringja eða senda skrifstofu viðkomandi flokks tölvupóst." Vonar að val á þingfulltrúum gangi betur Flokksfélögum Framsóknarflokksins ber að skila skrifstofu flokksins listum yfir þingfulltrúa fyrir föstudaginn en undanfarna daga og vikur hafa verið haldnir fjölmargir aðal- og félagsfundir víðsvegar um landið. ,,Ég vona að valið fari vel fram á þeim fundum sem eftir eru og það verði með sama hætti og í öðrum félögum. Ég vona að gjörkvöldið hafi verið einstakt hvað það varðar." Ekki náðist í Sigmund Davíð vegna málsins.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Sjá meira