Innlent

Sigmundur smalaði ekki á átakafund

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, skipulagshagfræðingur og formannsframbjóðandi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, skipulagshagfræðingur og formannsframbjóðandi.

,,Það var búið að vara mig við því að það væri von á átökum á þessum Reykjavíkurfundi en ég átti ekki von á því að þetta gengi svona fyrir sig. Ég hefði haldið að í hátt í 100 ára gömlum flokki væri ekki svona mikil óvissa um hvernig hlutirnir færu fram," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formannsframbjóðandi í Framsóknarflokknum, um mikinn hitafund Framsóknarfélagsins í Reykjavík í gærkvöldi. Hann segist ekki hafa staðið á bak við eða tengjast smölun á fundinn.

70 nýskráningar skömmu fyrir fund

Fjölmargir mættu á fundinn í gær þar sem tekist var á um hvaða fulltrúar félagsins munu hafa kosningarétt á flokksþinginu sem fer fram um miðjan mánuðinn. Skömmu fyrir fundinn var inntökubeiðnum rúmlega 70 einstaklinga skilað inn á skrifstofu flokksins. Sæunn Stefánsdóttir, ritari flokksins, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að þekktir kosningasmalar hafi beitt sér að mikilli hörku í aðdraganda og á sjálfum fundinum. Þeir eru að hennar sögn ekki stuðningsmenn Páls Magnússonar sem líkt Sigmundur gefið kost sér sem formaður.

Óánægðir flokksmenn settu saman nýjan lista

Sigmundur segist hafa grennslast fyrir um málið í dag og hallast að því óánægðir flokksmenn hafi sett saman nýja tillögu að lista yfir þingfulltrúa fyrir flokksþingið eftir að hafa séð tillögu stjórnar félagsins. Sjálfur segist hann hafa verið búinn að sjá listann fyrir fundinn í gær.

Að lokum var seint í gærkvöldi samþykkt tillaga um að kjósa fimm manna nefnd til þess að setja saman lista yfir 125 þingfulltrúa fyrir hönd félagsins. Sigmundur kveðst ánægður með niðurstöðuna og þá sátt sem skapaðist um hana eftir hressileg átök á fundinum.

Átök í Kópavogi í kvöld?

Framsóknarfélag Kópavogs hyggst velja þingfulltrúa sína á fundi í kvöld. Sigmundur vonast til þess að sá fundur verði rólegri og laus við átök ólíkt fundinum í gær.

Flokksþing Framsóknarflokksins fer fram dagana 16. til 18. janúar. Fimm hafa gefið kost sér í embætti formanns, en það eru: Höskuldur Þórhallsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Lúðvík Gizurarson, Páll Magnússon og Jón Vigfús Guðjónsson.




Tengdar fréttir

Harkaleg átök í Framsóknarflokknum

,,Það er ekkert óeðlilegt við það að nýir menn gangi í flokkinn eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðmundur Steingrímsson og sjálfsagt að þeim fylgi eitthvað fólk. Ég geri til að mynda fastlega ráð fyrir að fjölskylda og vinir fylgi Sigmundi en þetta var auðvitað öðruvísi gjörningur," segir Sæunn Stefánsdóttir ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×