Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannskæð árás í Afganistan í morgun Ellefu eru látnir og 58 særðir eftir bílsprengjusjálfsmorðsárás gegn bílalest hermanna í austurhluta Afganistans í morgun. 13.11.2008 08:57
Handtekin eftir innbrot í Hveragerði Lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu par á þrítugsaldri á sjötta tímanum í morgun, þegar það var á leið til borgarinnar á vörubíl, eftir innbrot í iðnaðarhús í Hveragerði í nótt. 13.11.2008 08:14
Stálu 200 kg af beitu Lögreglan á Akranesi leitar nú að þjófi, eða þjófum, sem stálu tvö hundruð kílóum af beitu, aðallega smokkfiski, úr geymsluskúr á athafnasvæði smábátaútgerða á Breiðunni. 13.11.2008 07:18
Skeggöld, skálmöld, skildir klofnir Skálmöld ríkti í Reykjavík i nótt þegar stór flugeldaterta var sprengd við Alþingishúsið rétt um miðnætti og rauðri málningu var sprautað upp á norðurhlið Valhallar, eða hús Sjálfstæðisflokksins, allt upp í átta metra hæð. 13.11.2008 07:13
Ágúst Ólafur: Hótun Jóns Ásgeirs með ólíkindum „Mér finnst það afar sérkennilegt ef menn telja sig geta hótað þingmönnum með þessum hætti, að þeir verði einfaldlega kærðir ef þeir spyrji ákveðinna spurninga," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar Alþingis. 12.11.2008 22:38
Jón Ásgeir hótar lögsókn fari upplýsingar um fjármögnun 365 fyrir Alþingi Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður 365 hf, krefst þess að Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar Alþingis hætti við að knýja forsvarsmenn ríkisbankanna þriggja um svör við lánafyrirgreiðslum vegna kaupa á fjölmiðlahluta 365. Láti hann ekki af kröfunni muni Jón Ásgeir kæra. 12.11.2008 21:49
Lögðu 11 milljarða inn á sjóð 9 eftir að hann lokaði Ríkið lagði peningamarkaðssjóði 9 í Glitni til ellefu milljarða króna eftir að honum hafði verið lokað vegna þess að Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var stjórnarmaður í sjóðnum. 12.11.2008 21:10
Óljóst hverjar skuldbindingar Íslendinga gagnvart Hollendingum eru Það náðist samkomulag um það við Hollendinga að Íslendingar myndu standa við skuldbindingar sínar gagnvart hollenskum eigendum innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans. 12.11.2008 19:49
Gagnrýnir birtingu fjölmiðla á tölvupóstum Bjarna Harðarsonar Varaþingmaður vinstri grænna telur að fjölmiðlar hafi brotið landslög með því að birta tölvupóst Bjarna Harðarsonar fyrrverandi þingmanns. Fjölmiðlafræðingur við Háskólann á Akureyri segir það rétta ákvörðun að birta póstinn. 12.11.2008 18:39
Tveir teknir með fíkniefni á Vestfjörðum í gær Lögreglan á Vestfjörðum handtók í gær tvo menn sem voru að koma með áætlunarflugi til Ísafjarðar frá Reykjavík. Þeir voru grunaðir um að hafa fíkniefni í fórum sínum. 12.11.2008 17:59
Sendiráðum lokað og sparað í varnar- og þróunarsamvinnumálum Sendiráðum Íslands í Pretoríu og Róm verður lokað á næsta ári og sömuleiðis sendiskrifstofu fastanefndar Íslands við Evrópuráðið í Strassborg ásamt einni af sendiskrifstum Þróunarsamvinnustofnunar. Þetta er liður í sparnaðaraðgerðum utanríkisráðuneytisins vegna efnahagskreppunnar. 12.11.2008 15:33
Ingibjörg: Leggjum upp í hendur á Bretum hvort þeir komi hingað Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, gerði grein fyrir sparnaðaðgerðum ráðuneytisins í dag. Meðal annars verður skorið niður á sviði varnarmála, alls um 257 milljónir króna. 12.11.2008 15:36
Vilja rukka fyrir notkun nagladekkja Framkvæmda- og eignaráð borgarinnar hefur ákveðið að leita eftir heimildum til gjaldtöku vegna notkunar nagladekkja. Tillaga þessa efnis var samþykkt á fundi ráðsins í vikunni. 12.11.2008 15:45
Yfir 30 vilja í starf framkvæmdastjóra LÍN Alls bárust 34 umsóknir um embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna en umsóknarfrestur rann út á föstudag. 12.11.2008 16:42
Barroso leggst gegn láni leysi Íslendingar ekki deilur fyrst Jose Manuel Barroso, forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að Íslendingar verði að gera út um deilur sínar við Hollendinga, Breta og Belgíu áður en þeir fái fjárhagslán afgreitt. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag í kjölfar samtals sem Barroso átti við Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs. 12.11.2008 16:33
Kristín nýr sendiherra Kristín A. Árnadóttir hefur verið skipuð sendiherra og henni falið að stýra nýrri skrifstofu yfirstjórnar. ,,Við erum öll sammála um það sé val valið. Kristín er öfugur stjórnandi og kraftmikil," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á blaðamannafundi fyrr í dag. 12.11.2008 16:29
Skilorðsbundið fangelsi og há sekt fyrir skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 64 milljóna króna í sekt fyrir að að hafa ekki staðið skil á greiðslu á virðisaukaskatti og opinberum gjöldum við rekstur fyrirtækis síns. 12.11.2008 16:19
Ísland fær 96.000 tonna kolmunnakvóta Samkomulag hefur náðst á meðal strandríkja um aflamark í kolmunna fyrir næsta ár. Samkvæmt samkomulaginu verður heimilt að veiða 590.000 tonn. 12.11.2008 16:05
Þorgerður telur sig ekki vanhæfa í bankamálum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra telur sig ekki hafa verið vanhæfa til að fjalla um yfirtöku ríkisins á viðskiptabönkunum þremur og ákvörðunum um nýju bankana þar sem ríkisstjórnin sé ekki fjölskipað stjórnvald heldur pólitískur samráðsvettvangur. 12.11.2008 15:11
UVG vilja að Samfylkingin slíti stjórnarsamstarfinu Ung vinstri græn krefjast þess að boðað verði til kosninga eins fljótt og auðið er. Þá er Samfylkingin hvött til að rifta stjórnarsamstarfinu. Í ályktun sem félagið hefur samþykkt kemur fram að eftir það sem „á undan sé gengið er það bæði siðferðisleg krafa og lýðræðislega nauðsynlegt að kosið verði um nýtt fólk og nýja stefnu til að byggja á til framtíðar." 12.11.2008 15:06
Atvinnuleysi jókst mun meira hjá körlum en konum Skráð atvinnuleysi reyndist 1,9 prósent að meðaltali í nýliðnum október og jókst um 40 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. 12.11.2008 14:19
Nýju bankarnir fá 385 miljarða í eigið fé Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að leggja til 385 milljarða króna til hinna nýju íslensku viðskiptabanka. Þetta kom fram í máli Gunnars Svavarssonar, formanns fjárlaganefndar, á Alþingi í dag. 12.11.2008 14:12
Sultartangastöð komin að hluta í rekstur Eftir þrálátar bilanir í spennum Sultartangastöðvar undanfarið ár er nú annar tveggja spenna stöðvarinnar kominn aftur í rekstur eftir bráðabirgðaviðgerð. 12.11.2008 14:03
Taldist ekki hafa slegið lögregluþjón viljandi Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af ákæru um brot gegn valdstjórninni. Honum var gefið að sök að hafa veist með ofbeldi að lögreglumanni og slegið hann í andlitið við veitingastað í Reykjanesbæ. 12.11.2008 13:31
Hollendingar vilja vita hvar peningarnir þeirra eru Hópur Hollendinga, sem tapaði sparifé sínu þegar Icesave-reikningarnir voru lokaðir ytra, mun ræða við fulltrúa Landsbankans í dag. Ráðgert er að fólkið fundi einnig með stjórnmálamönnum hér á landi. 12.11.2008 12:50
Tók stól úr útibúi Landsbankans á Akureyri í mótmælaskyni Reið kona tók stól frá Landsbanknum á Akureyri í dag og fór með hann út úr bankanum. Með þessu vildi hún sýna andúð sína vegna glataðra fjármuna í bankanum. 12.11.2008 12:46
Skorið niður um 20 prósent í utanríkis- og varnarmálum Til stendur að skera niður í starfsemi utanríkisþjónustunnar fyrir um 2,2 milljarða króna. Ráðgert er að loka fjórum sendiskrifstofum og draga saman í varnartengdum verkefnum og þróunaraðstoð. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. 12.11.2008 12:31
Mynduðu „skjaldborg“ um Alþingishúsið Hópur mótmælenda kom saman við Alþingishúsið í hádeginu og stillti sér upp hringinn í kringum húsið og myndaði nokkurs konar skjaldborg. 12.11.2008 12:10
Álaborgarháskóli kemur íslenskum stúdentum til aðstoðar Álaborgarháskóli hefur ákveðið að koma íslenskum nemum við skólann til aðstoðar með því að finna fyrir þá stað til starfsnáms hjá dönskum fyrirtækjum í ljósi efnahagskreppunnar. 12.11.2008 12:10
Greinilega alvarlegir hnökrar á málsmeðferð á IMF-umsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur frestað afgreiðslu á rúmlega tveggja milljarða dollara láni til Íslands um óákveðinn tíma að því er fram kemur í Financial Times í dag. Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, segir að greinilega séu alvarlegir hnökrar á málsmeðferðinni. 12.11.2008 12:00
Þriggja prósenta atvinnuleysi í landinu Yfir 5200 manns eru nú atvinnulausir á Íslandi og hafa um 4400 misst vinnuna á árinu í hópuppsögnum. Vitnað er til þessara talna Vinnumálastofnunar í Morgunkorni Glitnis og sagt að langstærsti hluti hópuppsagna hafi komið í október eða tveir þriðju þeirra. 12.11.2008 11:49
Segir Fillipseyinga í vandræðum með að koma fjármunum til heimalandsins Flestir Fillipseyingar sem búa hér á landi hafa haldið störfum sínum í núverandi efnahagsþrengingum en þeir hafa lent í erfiðleikum með að senda fjármuni til heimalandsins. 12.11.2008 11:35
Þarf ekki leyfi forsætisráðherra til að tjá sig ,,Það þarf eitthvað annað en að fá leyfi forsætisráðherra til að hafa skoðanir á stjórnmálum á Íslandi. Ég tel mig hafa fulla heimild til þess," sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, aðspurður um afstöðu forystumanna ríkisstjórnarinnar sem gefa lítið fyrir þau orð Gylfa að viðskipta- og fjármálaráðherra eigi að axla ábyrgð á atburðum síðustu vikna og segja af sér sem ráðherrar. 12.11.2008 11:26
Bjarna og Guðna boðið í paradís Ingibjargar og Össurar Össur Skarphéðinsson segir að flóttamann séu alltaf velkomnir í náðarfaðm Samfylkingarinnar og býður hann Bjarna, Guðna Ágústsson og alla liðsmenn Framsóknarflokksins velkomna. 12.11.2008 10:47
Tengdi viðræður við Rússa ekki við herstöðvarafnot Það er fjarri lagi að forseti Íslands hafi tengt viðræður Íslendinga við Rússa um lán við hugsanleg afnot þeirra af fyrrverandi herstöð Bandaríkjamanna á Íslandi á hádegisverðarfundi með erlendum erindrekum í síðustu viku. Þetta fullyrðir forsetaskrifstofa í samtali við fréttastofu. 12.11.2008 10:39
Vilja slá „skjaldborg“ um Alþingishúsið Tölvupóstur gengur nú þar sem fólk er hvatt til þess að mæta í hádeginu í dag á Austurvöll og slá „skjaldborg“ um Alþingishúsið. Ekki kemur fram hverjir standi að gjörningnum en tekið er fram að um friðsamleg mótmæli sé að ræða. Þá er þess krafist að ríkistjórnin víki „nú þegar“ eins og það er orðað. 12.11.2008 10:37
Aðalmeðferð í dag í máli á hendur séra Gunnari Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur séra Gunnari Björnssyni, fyrrverandi sóknarpresti á Selfossi, vegna meintra kynferðisbrota hans verður í Héraðsdómi Suðurlands í dag. 12.11.2008 10:27
Árdegi fer fram á gjaldþrotaskipti Árdegi hefur farið fram á gjaldþrotaskipti og verður krafa félagsins þar að lútandi tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur um klukkan eitt í dag. 12.11.2008 10:11
Vélarvana togara komið til aðstoðar við innsiglinguna til Eyja Lóðsinn í Vestmannaeyjum og Björgunarfélagið í Eyjum voru kölluð út í morgun vegna vélarvana togara, Gullbergs VE 292, sem staddur var við Klettsnef fyrir utan innsiglinguna til Vestmannaeyja. 12.11.2008 09:57
Kári og Sara koma í stað Jóns og Guðrúnar Töluverðar breytingar eru að verða á nafngiftum á Íslandi ef marka má nýjar tölur Hagstofunnar um algengustu nöfn barna undir fjögurrra ára aldri um síðustu áramót. 12.11.2008 09:22
Ólafur Ragnar húðskammaði nágrannaþjóðir í hádegisverði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýndi nágrannaþjóðirnar Svíþjóð, Danmörku og Bretland fyrir að snúa baki við Íslendingum. Þetta mun hann hafa gert í hádegisverði með erlendum erindrekum í Reykjavík á föstudag eftir því sem fram kemur í norrænum miðlum. 12.11.2008 09:00
Vaxandi reiði í Þýskalandi vegna Kaupthing Edge Vaxandi reiði gætir nú í Þýskalandi meðal viðskiptavina Kaupþings Edge þar í landi sem óttast að hafa tapað öllu sínu fé. Talið er að þar eigi um 30 þúsund einstaklingar um sárt að binda. 12.11.2008 08:35
Lífland lækkar verð á kjarnfóðri Fyrirtækið Lífland hefur lækkað verð á kjarnfóðri til bænda um fjögur prósent þrátt fyrir að hráefni til fóðurgerðar sé innflutt og gengi krónunar hafi hríðlækkað. 12.11.2008 07:17
Síldin dreifir sér Síldin á Breiðafirði virðist vera farin að dreifa sér eða flytja sig um set og fengu ekki nema nokkur skip góðan afla í gær. 12.11.2008 07:14
Innbrot í Hljóðfærahúsið Lögreglumenn náðu tveimur innbrotsþjófum á hlaupum, eftir að þeir höfðu bortist inn í Hljóðfærahúsið við Síðumúla í nótt. 12.11.2008 07:12