Fleiri fréttir

Missti stýrið úti á hafi

Stýrið datt af níu tonna fiskibáti þegar hann var staddur sjö sjómílur austur af Raufarhöfn í nótt. Við það varð báturinn stjórnlaus og kölluðu skipverjar eftir aðstoð.

Enn einn bílabruninn

Eldur kviknaði í mannlausum nýlegum fólksbíl við smábátahöfnina í Hafnarfirði á tólfta tímanum í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á vettvang.

Rjúpnaskyttan fannst heil á húfi

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vesturlandi fundu nú fyrir miðnætti rjúpnaskyttu sem leitað var á Beilárheiði við Langavatn á Mýrum.

Ungir jafnaðarmenn hafna alfarið norsku krónunni

Ungir jafnaðarmenn telja hugmyndir um upptöku norskra krónu fráleitar. Skemmst er að minnast orða Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, sem telur að þessi hugmynd gangi ekki.

Leit stendur yfir að rjúpnaskyttu á Beilárheiði

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Akranesi, Borgarnesi, Varmalandi og Reykholti hafa verið kallaðar út til leitar að rjúpnaskyttu sem saknað er á Beilárheiði við Langavatn á Mýrum.

Slökkvistarfinu lokið í Hafnarfirði

Slökkvistarfinu við Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði er lokið en þar kviknaði í tveimur bátum fyrr í kvöld. Báðir stóðu þeir á þurru landi við bátasmiðjuna.

Alcan heldur sínu striki með breytingar í Straumsvík

Alcan heldur sínu striki við áformaðar breytingar á álverinu í Straumsvík, sem kalla á umfangsmiklar virkjunarframkvæmdir við Búðarháls þegar á næsta ári. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Þingflokksformenn ósamstíga um Davíðs-bókun

Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar eru mjög ósamstíga í áliti sínu á frétt um bókun ráðherra Samfylkingarinnar í ríkisstjórn um að Davíð Oddsson seðlabankastjóri sé á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins og starfi ekki í þeirra umboði.

Björk er nýsköpunarverkefni í anda finnsku leiðarinnar

Söngkonan Björk er nýsköpunarverkefni í anda finnsku leiðarinnar að mati Stefáns Ólafssonar prófessors við Háskóla Íslands. Þetta kom fram í viðtali við Stefán í Silfri Egils þar sem hann útskýrði hvernig Finnar unnu sig út úr mikilli kreppu í upphafi tíunda áratugarins á síðustu öld.

Umfjöllun um Ísland á forsíðu New York Times

Umfjöllun um Ísland er aðalfréttin á netsíðu bandaríska stórblaðsins The Newv York Times í dag. Fyrirsögnin hljóðar svo: Ísland að sökkva í skuldir kennir Bretlandi um vandræðin".

Landsvirkjun ræðir ekki við aðra en Alcoa um orkuna á NA-landi

Landsvirkjun hyggst ekki að sinni ræða við aðra aðila en Alcoa um nýtingu orkunnar á Norðausturlandi, þótt viljayfirlýsing fyrirtækjanna hafi runnið út í gær. Viljayfirlýsing Alcoa við ríkisstjórn Íslands og Norðurþing um álver á Bakka rennur út eftir ellefu mánuði.

Félag í eigu Jóns Ásgeirs kaupir alla fjölmiðla 365

Stjórn 365 samþykkti á stjórnarfundi í gær að selja alla fjölmiðla út úr fyrirtækinu til félags í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Með í kaupunum fylgir 36,5% hlutur í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Heppinn Lottóspilari vann 33 milljónir kr,

Heppinn Lottóspilari vann 33 milljónir króna í gærkvöldi þegar dregið í laugardagslottóinu. Hann reyndist vera sá eini sem hafði allar fimm tölurnar réttar.

Vill að forsætisráðherra reki seðlabankastjóra

Þær skeytasendingar sem hafa verið á milli Seðlabankans og einstakra ráðherra eru óvenjulegar og óviðeigandi, sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í Markaðnum í morgun.

Mikill meirihluti landsmanna vill kjósa fyrr

Sextíu prósent aðspurðra vilja ekki bíða til ársins 2011 eftir næstu kosningum. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Gallup, sem Morgunblaðið birtir í sunnudagsblaði sínu.

Eldur í Vestra BA

Eldur kom upp í fiskveiðiskipinu Vestra BA, sem er 200 tonna fiskveiðiskip, um tvöleytið í dag. Lögreglumenn og slökkvilið fór á staðinn og varð vart við mikinn reyk en erfiðlega gekk að finna eldinn.

Skattar hækkuðu langmest á Íslandi

Íslendingar eru sú þjóð sem mátt hefur þola langmestar skattahækkanir af öllum þjóðum innan Efnahags- og framfarastofnuninnar, OECD, á síðasta áratug. Er nú svo komið að Ísland er komið á topp tíu listann yfir þau ríki sem þyngsta skattbyrði leggja á þegna sína.

Sönnun fundin um neðansjávargos?

Ný botnmynd, fengin með fjölgeislamælingum, sýnir hugsanleg ummerki neðansjávareldgoss undan Landeyjum fyrir 35 árum. Myndin sýnir upphækkun á hafsbotninum sem kom ekki fram við sjómælingar á árunum 1951 til 1961.

Vík burt, ríkisstjórn!

"Vík burt, ríkisstjórn", endurómaði á Austurvelli í dag í fjölmennustu mótmælunum til þessa vegna kreppunnar. Á annað þúsund manns mættu í kröfugöngu og á útifund.

Björgunarsveitamenn hafa sótt tvo slasaða menn í dag

Björgunarsveitin Elliði í Staðarsveit er nú að sækja rjúpnaskyttu sem hrapaði í hlíð við Hafursstaði í Hnappadal. Björgunarsveitarmenn eru komnir að skyttunni og fleiri eru á leiðinni með lækni og börur til að koma honum niður úr hlíðinni og í sjúkrabíl. Með í för eru tveir sjúkrabílstjórar. Maðurinn er töluvert slasaður.

Tónleikar Kristjáns klukkan fimm

Tónleikar Kristjáns Jóhannssonar með Sinfóníunni eru í dag klukkan fimm en ekki í kvöld klukkan hálfátta, eins og hermt var í Fréttablaðinu i dag.

Barnahús er 10 ára í dag

Það eru á bilinu fimm til sex prósent líkur á því að barn sem fæðist í dag þurfi að leita sér aðstoðar Barnahúss. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem kynntar eru í dag í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá því að Barnahús var sett á stofn.

Geir og Brown ræddu ekki um að Ísland leitaði aðstoðar IMF

Á fundi Geirs Haarde forsætisráðherra og Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, í Lundúnum í apríl, var sú hugmynd ekki rædd að Ísland leitaði eftir aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða IMF, jafnvel þó að sjóðurinn hafi borist í tal á fundinum. Þetta segir Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðarmaður Geirs, í samtali við Vísi.

Aðlögun án ESB aðildar gæti tekið 20 ár

Fyrir höndum er mjög langt aðlögunartímabil fyrir Ísland. Ferlið gæti tekið 10-20 ár ef Íslendingar ganga ekki í ESB. Þetta sagði Hannes Smárason , athafnamaður í Markaðnum á Stöð 2. Hann segir að tímalengd efnahagskreppunnar muni ráðast af þeim ákvörðunum sem núna verði teknar.

Mótmælendur ganga frá Hlemmi í dag

Boðað hefur verið til mótmæla í miðborg Reykjavíkur, þriðja laugardaginn í röð. Safnast verður saman á Hlemmi klukkan 14 og þaðan gengið niður á Austurvöll. Slagorð þeirra mótmæla er Nýir tímar og eru skilaboðin þau að ríkisstjórnin eigi að víkja og kosningar verði haldnar. Að göngu lokinni hefst dagskrá á Austurvelli um klukkan 15.

Ekið á gangandi vegfaranda

Ekið var á gangandi vegfaranda í Lækjargötu um sexleytið í morgun. Konan var flutt á slysadeild með sjúkrabíl, en lögreglan telur að meiðsli hennar hafi ekki verið alvarleg. Mikil ölvun og óspektir voru í borginni í nótt að sögn lögreglu og gistu manns fangageymslur og 10 voru teknir fyrir ölvunarakstur .

Milljóna lúxusbílar verða eldi að bráð

Munstrið í bílabrunum hefur breyst á undanförnum mánuðum. Nýrri og dýrari lúxusbílar verða nú eldi að bráð þar sem þeir standa mannlausir í stæðum. Tryggingafélögin hafa hafið rannsókn á meintum sviðsettum árekstrum.

Sjá næstu 50 fréttir