Fleiri fréttir

Strákarnir okkar á forsíðu New York Times

Forsíðumyndin á New York Times í dag er af íslenska handboltalandsliðinu að fagna sigrinum ótrúlega á Spánverjum í gær. New York Times er eitt virtasta dagblað í heimi og Vísir er nokkuð viss um að handknattleiksmenn hafi aldrei prýtt forsíðu þess áður.

Hafnarfjarðarbær sýnir leikinn á risaskjá

Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að bjóða bæjarbúum og öðrum handboltaáhugamönnum að fylgjast með úrslitaleik Íslendinga og Frakka á sunnudaginn á risaskjá í íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum.

Maraþonið er hafið

Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoninu lögðu af stað klukkan níu í morgun frá Lækjargötu, í fyrirtaks hlaupaveðri. 10719 eru skráðir til leiks en af þeim hlaupa 639 heilt maraþon.

Alvarlegt umferðarslys á Laugavatnsvegi

Alvarlegt umferðarslys varð klukkan hálf sjö á Laugavatnsvegi. Fólksbíl var ekið út af veginum og valt. Farþegi sem ekki var í bílbelti kastaðist út úr bílnum og hlaut alvarlega áverka. Hann var sóttur með þyrlu og fluttur til Reykjavíkur. Ökumaðurinn var í öryggisbelt og hlaut minni áverka. Hann er ekki grunaðu um ölvun við akstur.

Mikill erill í miðbænum

Mikill erill var í miðbænum í gær að sögn lögreglu. Nokkuð var um útköll vegna ölvunnar og óláta á skemmtistöðum en sex gistu fangageymslur vegna þessa. Engar kærur hafa þo borist lögreglu enn.

Geir þarf að standa við orð sín

Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir Geir H. Haarde og segir að hann hafi ekki staðið við orð sín um að flýta vinnu við heildstætt umhverfismat vegna álversframkvæmda á Bakka.

Neikvæð viðbrögð frá Brussel við hugmynd Björns

Evrópunefndin hyggst fara yfir hugmyndir Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, um upptöku evru á grundvelli samningnum um hið evrópska efnhagssvæði. Nefndin fundaði í dag í fyrsta sinn frá því að Björn setti fram sínar hugmyndir. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar og annar tveimur formönnum nefndarinnar, segir að hugmynd Björns hafi fengið neikvæð viðbrögð frá Brussel.

Ólafur Ragnar: Höldum þjóðhátíð

Forseti Íslands trúir ekki öðru en að þjóðin haldi þjóðhátíð um helgina í tilefni af velgengni íslenska handboltaliðsins og fullyrt hafi verið við sig að þetta muni vekja mesta athygli á Ólympíuleikunum, fyrir utan afrek einstakra manna. Forsætisráðherra segir að vel verði tekið á móti liðinu þegar það kemur heim. Haukur Holm ræddi við menn í sigurvímu í dag.

Bruni í sumarhúsi í Ásgarðslandi

Slökkviliði og lögreglu á Selfossi var fyrr í kvöld tilkynnt um eld í Ásgarðslandi sem er sumarbústaðahverfi í nágrenni Selfoss. Að minnsta kosti tveir bílar frá slökkviliðinu fóru á staðinn. Eldurinn kom upp í sumarhúsi sem er í byggingu. Slökkvilið hefur náð tökum á eldinum og nú er verið að reykræsta húsið.

Eftirlaunalög enn afvelta

Endurskoðun eftirlaunalaganna umdeildu er enn jafn afvelta hjá ríkisstjórninni segir formaður Vinstri grænna, en málið var rætt á fundi formanna stjórnarflokkanna í dag. Hann segir sumarið ekki hafa verið notað til að laga málið eins og til stóð.

Íbúðalánasjóður verður ekki heildsölubanki

Húseigendur sem eiga tvær eignir og geta ekki selt aðra fá að fresta greiðslum af lánum frá Íbúðalánasjóði. Félagsmálaráðherra segir ekki standa til að gera Íbúðalánasjóð að heildsölubanka sem ekki láni til almennings.

Umhverfisviðurkenningar í Kópavogi afhentar

Umhverfisviðurkenningar umhverfisráðs og bæjarstjórnar Kópavogsbæjar voru afhentar síðdegis í gær og fór athöfnin fram í forrými Salarins, tónlistarhúsi Kópavogs.

Siðareglur um borgarfulltrúa ná yfir boðsferðir

Drög að siðareglum fyrir embættismenn Reykjavikurborgar og borgarfulltrúa hafa þrisvar sinnum verið lagðar fram í borgarráði, að sögn Dags B. Eggertssonar, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Sjálfsafgreiðsla í Krónunni

Nú þurfa menn ekki lengur að bíða í löngum biðröðum eftir afgreiðslu, alla vega í verslun Krónunnar á Bíldshöfða, þar sem menn afgreiða sig sjálfir.

Færeyingar halda líka með strákunum okkar

50 þúsund Færeyingar munu fylgjast með úrslitaleik Íslendinga og Frakka á sunnudaginn kemur. Þetta segir Georg Eystan sem sendi þetta fallega skeyti til Íslands eftir sigur okkur á Spánverkum.

Ungt fólk fær árskort Borgarleikhússins með helmingsafslætti

Borgarleikhúsið hefur gert tímamótasamning við Spron sem gerir því kleift að bjóða ungi fólki, 25 ára og yngri, árskort í leikhúsið með 50% afslætti. Námsmenn munu einnig njóta sömu fríðinda. Skrifað verður undir samninginn í dag klukkan 16 er segir í fréttatilkynningu.

Biskup veitir ný tónlistarverðlaun

Ný tónlistarverðlaun verða veitt á morgun. Þá mun biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, veita Liljuna, tónlistarverðlaun kirkjunnar, í fyrsta sinn.

Ferðamenn hætt komnir við Reynisfjöru þegar þeir reyndu að bjarga hval

Erlendir ferðamenn voru hætt komnir þegar þeir reyndu að koma hval til bjargar sem hafði rekið á land við Reynisfjöru við Vík rétt fyrir hádegið í dag. Ólafur Björnsson, bóndi á Reyni, segir að sér hafi ekkert litist á blikuna þegar hann hafi séð að fólkið hafi verið búið að vaða í fjöruna allt upp að mitti.

Fundu fíkniefni í Norrænu

Við komu ferjunnar Norrænu í gær til Seyðisfjarðar í gær fundu fíkniefnaleitarhundar tollgæslunnar töluvert magn af ýmsum tegundum fíkniefna í bifreið tveggja þýskra ferðamanna. Í tilkynningu frá lögreglu segir að hundarnir hafi „merkt“ bílinn og fundið fljótlega hluta efnanna og vísuðu ferðalangarnir þá á það sem enn var ófundið.

Umferðarþungi stendur í stað milli ára

Umferðarþungi í Reykjavík eykst ekki milli ára ólíkt því sem tíðkast hefur undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg og má lesa um í tölum Bjargar Helgadóttur sem hefur umsjón með umferðarmælingunum og hefur borið saman annatíma í umferðinni sumarið 2008 og sumarið 2007.

Mjög ánægð að fá Paul Ramses aftur

Rosemary Athieno, kona Paul Ramses er mjög ánægð að taka eigi umsókn eiginmanns hennar aftur fyrir á Íslandi. „ Ég er mjög, mjög glöð," segir Rosemary sem var nýbúin að heyra fréttirnar frá Katrínu Theódórsdóttur, lögmanni Ramses. Hún var hins vegar ekki enn búin að heyra frá eiginmanni sínum.

Krimmi á flótta festist í gaddavír

Karl á fertugsaldri var handtekinn í Háaleitishverfi í gærkvöld en sá var með ýmsar tegundir af fíkniefnum í fórum sínum. Maðurinn reyndi að komast undan þegar lögreglan kom á vettvang og tók til fótanna en var hlaupinn uppi af fótfráum laganna vörðum.

Sjónarmið mannúðar og réttlætis fá að njóta sín

Katrín Theódórsdóttir, lögmaður Paul Ramses, segir fulla ástæðu til að þakka dómsmálaráðherra og öðrum íslenskum stjórnvöldum fyrir að hafa tekið jákvæða ákvörðun í máli flóttamannsins Ramsesar. Hún segir að í meginatriðum sé niðurstaða dómsmálaráðherra í samræmi við óskir sínar þannig að beiðni hans um hæli verður tekin fyrir að nýju.

Forsetinn hitti kollega sinn í Kína

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti í Íslands, fundaði í morgun með kínverska kollega sínum, Hu Jintao. Í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni segie að fundurinn hafi verið árangursríkur en Jintao þakkaði meðal annars Íslendingum auðsýnda samúð þegar jarðkjálftar riðu yfir á dögunum með skelfilegum afleiðingum.

Mál Ramses skoðað á ný

Umsókn Pauls Ramses Odour um hæli hér á landi verður tekin til umfjöllunar samkvæmt úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Ramses var vísað úr landi í júlí síðastliðnum. Þá kærði hann þá ákvörðun Útlendingastofnunar að hafna því að taka til meðferðar beiðni hans um hæli.

Þyrla notuð við hálendiseftirlit

Lögreglan á Hvolsvelli ætlar að halda uppi öflugu hálendiseftirliti um helgina með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Sérstaklega verður fylgst með utanvegaakstri, sem nokkuð hefur borið á í sumar, en jafnframt verður fylgst með gæsaveiðimönnum og ástandi ökumanna almennt.

Milljónatjón í Korngörðum

Talið er að tjónið sem varð í eldi í Korngörðum við Sundahöfn í Reykjavík í gærkvöldi, nemi mörgum milljónum króna. Eldsins varð vart um klukkan hálf sex og var slökkvistarfi ekki lokið fyrr en um klukkan átta. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá loftpressum. Aðstæður til slökkvistarfs voru hættulegar, en allt fór á besta veg.

Skólasetning í dag

Skólahald í grunnskólum Reykjavíkur hefst í dag með því að börnin mæta í skólana og fá stundartöflur. Eiginlegt skólastarf hefst svo eftir helgi. Um fjögur þúsund börn á landinu öllu hefja nú skólagöngu í fyrsta sinn.

Stúlkur sluppu vel þegar bíll fór í sjóinn

Þrjár stúlkur sluppu nær ómeiddar þegar bíll þeirra rann út af veginum í Skutulsfirði í Ísafjarðarkaupstað í gærkvöldi, fór tvær veltur og hafnaði á hjólunum út í sjó. Þær komust út úr bílnum og óðu í land, en var illa brugðið.

Óttast ráðningar hjá Orkuveitunni

Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, telur óeðlilegt að ekki sé gefið upp hvaða 18 einstaklingar sóttu um stöðu forstjóra Orkuveitunnar. ,,Ég óttast mjög ráðningarferlið í höndum nýs meirihluta en það eru öfl í þessum flokkum sem virkjast á hinn versta veg þegar þeir ná saman í meirihluta. Fólk þarf að vera vel á verði núna."

Vonbrigði að nýr meirihluti vilji Bitruvirkjun

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að það séu vonbrigði að nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur ætli að hefja rannsóknir að nýju við Bitruvirkjun.

Hafna úreltum hugmyndum um orkuflutninga

Sveitastjórnarfulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði telja ekki annað koma til greina en að leggja nýja háspennulínu yfir héraðið í jörð og setja spurningamerki við umfang framkvæmdanna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sjá næstu 50 fréttir