Innlent

Umhverfisviðurkenningar í Kópavogi afhentar

Vinningshafar ásamt Gunnari bæjarstjóra í Salnum í gær. MYND/Kópavogsbær
Vinningshafar ásamt Gunnari bæjarstjóra í Salnum í gær. MYND/Kópavogsbær

Umhverfisviðurkenningar umhverfisráðs og bæjarstjórnar Kópavogsbæjar voru afhentar síðdegis í gær og fór athöfnin fram í forrými Salarins, tónlistarhúsi Kópavogs.

Margrét Björnsdóttir, formaður umhverfisráðs, og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri gróðursettu tré til heiðurs íbúum við götu ársins, Ísalind 1-8. Þar var jafnframt afhjúpaður skjöldur.





Margrét og Gunnar gróðursetja tré til heiðurs íbúum við götu ársins. MYND/Kópavogsbær

Veittar voru viðurkenningar fyrir:

- Götu ársins: Ísalind 1-8

- Framlag til umhverfismála: JB Byggingarfélag, opið svæði við Grandahvarf

- Frágang húss og lóðar á nýbyggingarsvæði: Hólmaþing 10

- Hönnun fjölbýlishúss: Tröllakór 12-16

- Hönnun íþróttamannvirkis: Stúkan við Kópavogsvöll

- Endurgerð húsnæðis: Fífuhvammur 39










Fleiri fréttir

Sjá meira


×