Fleiri fréttir

Almannavarnir vara við hvassviðri

Nú er töluvert hvasst um sunnanvert landið. Mjög hvassar hviður eru sunnanundir Vatnajökli, einkum undir Öræfajökli. Við Sandfell í Öræfum hafa hviður farið yfir 40 m/s. Einnig eru hvassar hviður undir Eyjafjöllum. Búast má við að hvassviðrið standi fram á kvöld á suðaustanverðu landinu og fram á nótt á Suðurlandi og á miðhálendinu.

Starfshópur hefur umsjón uppbyggingu eftir skjálfta

Ríkissstjórnin ákvað í morgun að stofna hóp ráðuneytisstjóra og sveitarfélaganna á Suðurlandi til að hafa umsjón með uppbyggingarstarfi í þeim sveitarfélögum sem verst urðu úti í járðskjálftunum þar í lok maí.

Íslendingar eiga Norðurlandamet í neyslu transfitusýru

Í grein í 24 stundum í dag var fjallað um bann við neyslu hertra fita, sem eru betur þekktar sem transfitusýrur, í New York fylki í Bandaríkjunum. Íslendingar eiga Norðurlandamet í neyslu hertra fita og neyta svipað magn af þeim og Austur-Evrópubúar og Bandaríkjamenn. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er mælt með að neyslu transfitusýra fari ekki yfir 2 grömm á dag en hún er 3,6 grömm á dag að meðaltali á Íslandi.

Þrettán líkamsárásir um helgina

Þrettán líkamsárásir voru tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en flestar voru þær minniháttar. Fáeinir þurftu samt að leita sér aðhlynningar á slysadeild en óttast var að einn hefði nefbrotnað en sá var sleginn í andlitið á dansgólfi skemmtistaðar í miðborginni.

„Ótrúlegt að sitja undir svona skít“

Magnús Sædal byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar segir áreiti á opinbera embættismenn alvarlegt brot. Málningu var hent í hús hans í nótt og ókvæðisorð krotuð til að mótmæla fegrunarátaki borgarinnar.

Grunur um starfsemi mansalshringa hér á landi

Vísbendingar eru um að erlendir aðilar komi í auknum mæli að skipulögðu vændi á Íslandi og grunur leikur á að sú starfsemi tengist mansalshringum einkum í Austur-Evrópu.

Málningu hent í hús byggingarfulltrúa

„Við erum búin að kæra til lögreglu," segir Vilborg Gestsdóttir, eiginkona Magnúsar Sædals byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Í nótt var málningu hent í hús Magnúsar til að mótmæla framgöngu borgarinnar í umhverfisátakinu sem stendur nú yfir.

Sami þorskkvóti í ár og í fyrra

Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur heimilað veiðar á 130 þúsund tonnum af þorski á næsta fiskveiðiári sem hefst þann 1. september. Er það sama magn og í fyrra en þá var kvótinn skorinn niður um 60 þúsund tonn.

Í fangelsi fyrir fjórar vodkaflöskur

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa fjórum sinnum stolið áfengi úr verslun ÁTVR á Akureyri í vor.

Verð frekar hækkað í lágvöruverslunum

Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ, segir að það vekji óneitanlega athygli að matarverð hafi hækkað mest í lágvöruverslunum undanfarna þrjá mánuði. ,,,Þegar verðið hækkar á annað borð þá kannski til að missa ekki alveg niður veltuna í dýrari verslunum er frekar hægt að hækka verðið í lágvöruverslunum," segir Henný.

Stjórnvöld svara ESA innan mánaðar

Íslensk stjórnvöld munu gera Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, grein fyrir afstöðu sinni til nýrrar niðurstöðu stofnunarinnar um Íbúðalánasjóð innan mánaðar. Þetta kemur fram á vef félags- og tryggingmálaráðuneytisins.

Fáfnir í formlegum tengslum við alþjóðleg glæpasamtök

Íslenski mótorhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland hefur stofnað til formlegra tengsla við skipulögð alþjóðleg glæpasamtök með því að gerast stuðningsklúbbur Hells Angels vélhjólasamtakanna. Svo segir í nýrri skýrslu greiningardeildar Ríkislögreglustjóra um mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi.

66°Norður gerir samning við danska herinn

66°Norður opnar nýja 300 fermetra sérverslun í Nørreport í Kaupmannahöfn í haust auk þess sem fyrirtækið mun opna verslun í Magasin du Nord í Árósum.

Háseti fær fjórar millur frá ríkinu

Í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun var íslenska ríkinu gert skylt að greiða fyrrverandi háseta um borð í hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni RE-200, tæpa fjóra og hálfa milljóna króna.

Mótmæla samdrætti RÚV á Vestfjörðum

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga mótmælir harðlega uppsögnum og tilheyrandi samdrætti í starfsemi svæðisstöð Ríkisútvarpsins á Ísafirði sem tilkynntar voru að hálfu yfirstjórnar félagsins í gær.

Alltaf einhverjir óánægðir

,,Það eru alltaf einhverjir sem aldrei eru ánægðir en í heildina eru flestir sáttir," segir Magnús Sædal Svavarsson, byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar, og bætir við að sér hafi borist hrós frá íbúum sem þakka fyrir bréf sem embættið hefur undanfarið sent út til eigenda og íbúa í miðborginni.

Matarverð hækkar mest í Bónus og Krónunni

Matvöruverð hefur hækkað mest í Bónus og Krónunni undanfarna þrjá mánuði. Hækkunin er mest 8% í Bónus og 6,5% í Krónunni. Í öðrum verslunarkeðjum er hækkunin á bilinu 3-4%.

Menn fluttir inn til landsins aðeins til að fremja afbrot

Greiningardeild Ríkislögreglusstjóra segir að fyrir liggi að austur-evrópskir ríkisborgarar séu „fluttir inn“ hingað til lands í þeim einum tilgangi að fremja afbrot. Vísbendingar séu um að starfsemi skipulagðra erlendra glæpahópa sé mun umfangsmeiri en flestir höfðu ætlað.

Dæmigerð viðbrögð við jákvæðri athygli á náttúruvernd

Í Fréttablaðinu í dag birtist frétt um að ferðamenn laðist að Kárahnjúkum og að stíflan væri orðin að vinsælum ferðamannastað. Ein af rökum náttúruverndarsinna gegn stíflunni var hins vegar að hún spillti hinni hreinu ímynd sem Ísland hefði út á við. Birgitta Jónsdóttir, náttúruverndarsinni taldi fréttina dæmigert neikvæð viðbrögð gegn hinni jákvæðu umræðu sem skapast hefur í kringum Náttúrutónleikana sem voru á laugardaginn.

Harma aðför að „brottreknum“ Slökkviliðsstjóra

Formaður félags slökkviliðsstjóra harmar þá aðför sem gerð var að Sigmundi Eyþórssyni, slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja, eftir að hann hleypti Víkurfréttum inn á Tetra kerfi stöðvarinnar.

Sjötugur stútur undir stýri

Sjötugur karlmaður var í hópi þeirra tólf ökumanna sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu tók fyrir ölvunarakstur um helgina.

Leitað vegna skemmdarverka á fallturni

Lögregla leitar þriggja karlmanna um tvítugt sem sköpuðu stórhættu þegar þeir áttu við búnað fallturnsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Árvekni starfsmanns kom í veg fyrir slys.

ESB-ályktanir munu hafa áhrif á Evrópuumræðuna

Ályktanir stærstu aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins um að Íslendingar eigi að sækja um aðilda að Evrópubandalaginu munu hafa mikil áhrif á Evrópuumræðuna hér á landi að mati þingmanns Samfylkingarinnar.

Brugðist við slæmu lundavarpi

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í gær nýjar reglur um nytjar á lunda fyrir komandi lundaveiðitímabil. Um er að ræða tilraun til að bregðast við slæmum varpárangri lundastofnsins í Vestmannaeyjum á undaförnum árum og um leið að styðja við eftirlit og rannsóknir á stofninum.

Með hundrað þúsund krónum hærri laun en ljósmæður

Lögfræðingar og verkfræðingar starfandi hjá hinu opinbera, með fimm ára háskólanám að baki, eru með að minnsta kosti hundrað þúsund krónum hærri laun en ljósmæður með sex ára háskólanám. Tugir ljósmæðra hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör og nú er næsta samningafundar beðið.

Leituðu fíkniefna í vegakantinum

Einn ökumaður var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og þvagsýni sem hann gaf benti til amfetamínnotkunar. Bifreiðin var stöðvuðu aftur skömmu eftir að ökumanninum var sleppt og hafði hann þá útvegað annan ökumann í ökuhæfu ástandi.

Læknar og samninganefnd ræða áfram saman

Samninganefnd Læknafélags Íslands og samninganefnd ríkisins ákváðu á fundi sínum í dag halda áfram viðræðum um nýjan kjarasamning fyrir lækna sem starfa hjá ríkinu.

Staða Guðlaugs Þórs innan ríkisstjórninnar óljós

Siv Friðleifsdóttir segir að staða Guðlaugs Þórs Þórðarsonar innan ríkisstjórnarflokkanna sé óljós. Siv segir svik við kvennastéttir og hringlandahátt varðandi nýbyggingu Landspítalans standa upp úr í heilbrigðismálum eftir fyrsta starfsár ríkisstjórnarinnar.

Franskur ríkisborgari framseldur

Eftirlýstur franskur ríkisborgari sem handtekinn var hér á landi í byrjun júní verður fluttur til Frakklands við fyrsta tækifæri. Hann samþykkti framsalsákvörðun dómsmálaráðuneytisins án andmæla.

Skíthræddir við framtíðina

„Við erum skíthræddir við haustið," segir Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, um ástandið á vinnumarkaðnum.

Björk: Ekki bara hippar móti álverum

Björk Guðmundsdóttir segir andstæðinga álvera vera meirihluta þjóðarinnar en ekki bara nokkra hippa. Hún segir gagnrýni Ernu Indriðadóttur, upplýsingafulltrúa Alcoa, sem sagði Björk einungis hafa lesið Draumalandið, ósanngjarna.

Læknar boða verkfallsaðgerðir í haust

Félagsfundur Læknafélags Íslands samþykkti í gærkvöld að hafna tilboði samninganefndar ríkisins um rúmlega 20 þúsund króna launahækkun með nýjum samningi og var samninganefnd félagsins falið að undirbúa verkallsaðgerðir í haust ef ekki verður breyting á viðhorfi ríkisins.

HÍ og Kennaraháskólinn sameinast í dag

Háskóli Íslands og Kennaraháskólinn sameinasta í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir, í grein sem hún ritar í Morgunblaðið af þessu tilefni, að með sameiningunni gefist einstakt

Sjá næstu 50 fréttir