„Fáránlegt að taka lán fyrir bíl eða jakkafötum“ Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 24. júlí 2008 16:16 „
Það er í raun og veru glæpsamlegt finnst mér að rukka 25 prósent vexti," segir Salmann Tamimi, formaður félags múslima á Íslandi. Múslimar búa við nokkuð sem mörgum öðrum þætti líklega eftirsóknarvert í miðri kreppunni. Samkvæmt trú sinni mega þeir hvorki þiggja né greiða vexti af lánsfé. „Þetta er í raun djöfulleg hugsun þessir vextir, þetta er bara til að halda fólki í fjötrum og vera þrælar nútímans," segir Salmann. Hann segir það óréttlátt að þeir sem eigi pening græði á því að þiggja vexti. „Við erum öll sköpuð til að vinna og framleiða í þágu samfélagsins. Ekki bara sitja heima og sópa að okkur peningum fyrir erfiði fólksins." Lánastofnanir fyrir múslima fyrirfinnast þó, og eru meira að segja starfræktar á Vesturlöndum. Salmann segir þær virka þannig að fólk gerist í raun hluthafar í bankanum með því að leggja inn í hann pening. Ef bankinn græðir græðir hluthafinn. Að sama skapi á bankinn í því sem hann lánar fyrir þangað til lánið hefur verið greitt til baka. Selji fólk hús sitt með hagnaði fær bankinn þannig hlutdeild í honum í samræmi við eignarhlutfall sitt. Salmann reiknar með því að múslimar hér á landi séu um þúsund talsins. Hann segir að eins og aðrir fylgi múslimar kennisetningum trúar sinnar mismikið. Margir sem hann þekki taki alls ekki lán hjá bönkunum. Sumir taki þó húsnæðislán, enda segi sumir fræðimenn að sé ekkert annað í boði sé í lagi að taka hefðbundin lán fyrir nauðsynjum. „En að taka lán til að kaupa sér bíl eða jakkaföt, það er fáránlegt. Maður gerir það ekkert" segir Salmann. „Það er sorglegt að sjá fólk með tíu ára gamla bíla sem enn hvílir á 2-3 milljóna skuld og það getur ekki selt," segir Salmann. „Maður þarf að velja hvort maður vill vera vera á flottum bíl og vera þræll, eða vera frjáls á druslu."
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Sjá meira