Innlent

Ók bifhjóli á 150 km hraða

Lögreglan stöðvaði í gær 18 ára pilt sem ók bifhjóli sínu á tæplega 150 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut til móts við Nesti. Fyrir þennan vítaverða akstur á hann yfir höfði sér 140 þúsund króna sekt og ökuleyfissviptingu í tvo mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Allnokkrir ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Langflestir þessara ökufanta eru um tvítugt en þeir voru stöðvaðir víða á höfuðborgarsvæðinu. Hætt er við að pyngja þeirra léttist þegar kemur að skuldadögum en þeira eiga 50 til 70 þúsund króna sekt í vændum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×