Fleiri fréttir

Plank laug í Kastljósi

Premyslaw Plank, sem handtekinn var í vikunni vegna gruns um að hann hafi myrt hnefaleikamanninn Andrezj Hamel, hefur hlotið fimm fangelsisdóma í Póllandi. Þessir dómar hljóðuðu alls upp á 4 ár og átta mánuði.

Ráðgjafarstofa vill almenna neysluviðmiðun

Mikilvægt er að Íslandi verði sett almenn neysluviðmiðun. Þetta kemur fram í ársskýrslu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem kynnt var á morgunverðarfundi með samstarfsaðilum stofnunarinnar.

Rústast íslenskur landbúnaður með nýjum lögum frá ESB?

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, lýsti yfir áhyggjum af því að íslenskur landbúnaður myndir rústast ef nýtt frumvarp landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sem meðal annars kveður á um innflutning á hráu kjöti, yrði að veruleika.

Síbrotamaður sendur í fangelsi

Tvítugur Reykvíkingur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir að hafa þrívegis ekið bifreið undir áhrifum vímuefna. Í tvö skipti af þessum þremur var maðurinn með fíkniefni í sinni vörslu.

Undirskriftarsöfnun vegna læknaskorts á Blönduósi

„Eins og komið hefur fram í fréttum hefur það ástand skapast á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi að hætta er á að allir læknar stofnunarinnar hætti þar störfum um næstu mánaðarmót,"segir í fréttatilkynningu frá hópi fólks sem ætlar að afhenda heilbrigðisráðherra undirskriftarlista.

Vilja endurskoðun laga um öryggisþjónustu

Árásir á öryggisverði að undanförnu kalla á að sá lagarammi sem öryggisfyrirtæki starfa eftir sé tekinn til gagngerrar endurskoðunar að mati Öryggismiðstöðvarinnar.

Níu mánaða fangelsi fyrir að aka án réttinda

Rúmlega þrítugur Ólafsfirðingur var í Héraðsdómi Norðurlands eystri í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið reynsluakstursbíl frá Bílabúð Benna til Dalvíkur þar sem hann var stöðvaður af lögreglu.

Rúmlega 430 ökumenn á of miklum hraða

Rúmlega 430 ökumenn voru myndaðir á of miklum hraða á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í gær, en rúmlega 7,500 bílar fóru um gatnamótin á meðan á mælingu stóð.

Ný réttarskipan rædd eftir dóm Birgis Páls

Helena Dam á Neystabö, sá ráðherra í ríkisstjórn Færeyja sem fer með dómsmál, telur að Færeyingar þurfi að koma sér upp sinni eigin réttarskipan, í stað þeirrar dönsku sem þar ríkir nú. Þetta sagði hún í samtali við færeyska ríkisútvarpið.

Sinubruni í Grafarvogi

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Kirkjugarðinum í Gufunesi um hálf-fjögurleytið í dag, þar sem kveikt hafði verið í sinu. Slökkvistarf tók um fjörutíu mínútur, en eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar eru af þeim Friðberti, Einari og Ægi, nemendum í Foldaskóla lagði all mikinn reyk yfir Foldahverfið.

Varað við svifryki í dag og á morgun

Umhverfis- og samngöngusvið varar við því að svifryk geti farið yfir heilsuverndarmörk í dag og á morgun. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að ryk berist nú um borgina og þyrlist víða upp og valdi gangandi og hjólandi óþægindum.

Fundu fíkniefni í Laugardalshverfinu

Fíkniefni fundust við húsleit í Laugardalshverfinu um kvöldmatarleytið í gær. Talið er að um sé að ræða bæði kókaín og marijúana, nálægt 30 grömmum, og einnig hassolíu, um 150 ml.

Vændiskonu vísað á dyr

Vændiskonan sem dvalið hefur á hótelinu „Room with a View" að undanförnu er farin þaðan, að sögn Árna Einarssonar, framkvæmdastjóra hótelsins.

Grunur um að tugir bíla séu stolnir

Tugir bíla sem fluttir voru hingað til lands frá Bandaríkjunum gætu verið ólöglega fengnir. Tollayfirvöld ytra lögðu hald á ellefu bíla fyrir skömmu sem voru á leið hingað til lands sem talið er að hafi verið stolið. Í það minnsta eitt íslenskt fyrirtæki og einn Íslendingur er viðriðin málið.

Ræðismaður Pólverja ánægður með fundinn

Fundur Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, með Michal Síkorskí ræðismanni Póllands á Íslandi var mjög árangursríkur, að sögn þess síðarnefnda.

Varnarmálastofnun lögfest

Frumvarp utanríkisráðherra til varnarmálalaga var samþykkt á Alþingi í dag. Samkvæmt nýju lögunum fer utanríkisráðherra með yfirstjórn varnarmála. Sérstök varnarmálastofnun verður sett á laggirnar. Forstjóri hennar verður skipaður í sumar.

Nektarvefsíðu lokað

Vefsíðu 18 ára íslenskrar stúlku sem bauð nektarsýningu á Netinu gegn greiðslu hefur verið lokað. Vísir sagði frá vef stúlkunnar, sem kallar sig Kötu í fyrradag. Þar var hægt er að sjá hana fækka fötum á msn.

Myndband: Ísland er mitt himnaríki

Tæplega þrítugur karlmaður, Mamadou Daillo, vann í vikunni mál sem hann höfðaði gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu. Maðurinn er frá Máritaníu og kom hingað til lands frá Amsterdam árið 2004.

Búið að rannsaka hraðsendingarmálið

Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið rannsókn á svokölluðu hraðsendingarmáli og er það nú komið til saksóknara. Mun hann því næst ákveða hvort ákæra verði gefin út í málinu.

Fundu fíniefni við húsleit

Fíkniefni fundust við húsleit í Laugardalshverfinu um kvöldmatarleytið í gær. Talið er að um sé að ræða bæði kókaín og marijúana, nálægt 30 grömmum, og einnig hassolíu, u.þ.b. 150 ml.

Fíkniefnasmyglari í endurkomubanni áfram í gæsluvarðhald

Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir pólskum karlmanni á sextugsaldri í dag til 2.maí. Maðurinn var handtekinn 28.mars í tengslum við smygl á amfetamíni í Leifsstöð, hann reyndist þá vera í endurkomubanni.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald

Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms yfir einum Pólverjanum í Keilufellsmálinu svokallaða. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5.maí en kærði þann úrskurð til Hæstaréttur.

Pólskur saksóknari um Plank: Morðingi í klíkustríði

Jan Stawicki saksóknari í Wloclawek Póllandi þekkir vel mál Przemyslaw Plank sem handtekinn var á Íslandi í fyrradag grunaður um morð í heimalandi sínu. Plank er grunaður um að hafa myrt pólska boxarann Andrzej S. Hamel þann 21.mars á síðasta ári.

Vörubílstjórar mótmæla en Sturla er í vinnunni

Vörubílstjórar söfnuðust saman fyrir framan Alþingishúsið fyrir stundu til að minna málstaðinn. Sturla Jónsson, sem verið hefur einskonar talsmaður bílstjóranna var hins vegar í vinnu þegar Vísir hafði samband við hann og hafði ekkert af þessum nýjustu aðgerðum að segja. Hann segist þó ánægður með að menn sýni frumkvæði í baráttunni.

Líkamsárásir 29% fleiri en í mars 2007

Tilkynningum til lögreglu um líkamsmeiðingar hefur fjölgað um 29% ef borin er saman afbrotatölfræði marsmánaða áranna 2007 og 2008. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu um afbrot marsmánaðar á landsvísu sem ríkislögreglustjóri gefur út.

Deilt um hvort Samfylkingin væri hlynnt skólagjöldum

Þingmenn Samfylkingarinnar voru krafðir um svör við því hvort þeir vildu skólagjöld hjá opinberum háskólum við upphaf þingfundar í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar sagðist furða sig á og vera ósátt við túlkun formanns menntamálanefndar á stefnu flokksins í málinu.

Felur fyrrverandi dómurum að rannsaka árás í Kjúklingastræti

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur falið tveimur fyrrverandi hæstaréttardómurum að fara yfir árás sem gerð var á íslenska friðargæsluliða í Kabúl ári 2004 með þeim afleiðingum að tveir almennir borgarar létust. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri grænna.

Lifum ekki á því að horfa á fjöllin hér í kring

„Mér fannst þetta ósköp klénn þáttur þar sem reynt var að gera þetta mál eins tortyggilegt og hægt er. Við munum hinsvegar halda okkar striki,“ segir Ragnar Jörundsson bæjarstjóri Vesturbyggðar um umdeildan Kompásþátt sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. Þar var fjallað um hugmyndir um Olíuhreinsistöð á Vestfjörðum sem Ragnar er fylgjandi þrátt fyrir að ekki liggi fyrir hverjir standi að baki framkvæmdunum.

Hrefnuveiðimenn hyggja á veiðar

Hrefnuveiðimenn hér á landi undirbúa nú veiðar sem hefjast eiga í næsta mánuði en ráðherra hefur ekki gefið út neinn kvóta.

Sjö kenndir við stýrið

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt samkvæmt upplýsingum á vef lögreglunnar.

Vilja að íbúar fái að kjósa um Fríkirkjuveginn

Salan á Fríkirkjuvegi 11 er á dagskrá borgarráðs á morgun. Þorleifur Gunnlaugsson, Vinstri-grænum, segir að VG muni greiða atkvæði gegn sölunni og því þurfi málið að fara fyrir borgarstjórn á ný. Þorleifur segist á þeirri skoðun að til greina komi að leggja málið í dóm íbúa á svæðinu.

Vilja efla útvist í Gufunesi

Reykjavíkurborg undirritaði í morgun samning við Fjörefli ehf. um afnot af landsspildu í Gufunesi til að koma upp afþreyingar- og þjónustumiðstöð.

Sjá næstu 50 fréttir