Vilja að íbúar fái að kjósa um Fríkirkjuveginn 16. apríl 2008 12:44
Salan á Fríkirkjuvegi 11 er á dagskrá borgarráðs á morgun. Þorleifur Gunnlaugsson, Vinstri-grænum, segir að VG muni greiða atkvæði gegn sölunni og því þurfi málið að fara fyrir borgarstjórn á ný. Þorleifur segist á þeirri skoðun að til greina komi að leggja málið í dóm íbúa á svæðinu. Hann segir einnig að Húsafriðunarnefnd hljóti að koma að málinu. Forstöðumaður Húsafriðunarnefndar segir málið ekki hafa komið inn á borð nefndarinnar en býst við að svo verði þegar draga fer til tíðinda. „Málið er á dagskrá borgarráðs á morgun og þar munum við leggja ýmislegt til," segir Þorleifur. „Það er einnig ljóst að við munum greiða atkvæði gegn sölunni sem þýðir að borgarstjórn þarf að fjalla um málið að nýju." Á borgarstjórnarfundi í gær sagði Ólafur F. Magnússon borgarstjóri að stefnt væri að því að klára málið fyrir 2. maí næstkomandi áður en 100 daga valdaafmæli núverandi meirihluta rennur upp. Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður Húsafriðunarnefndar, segir að málið hafi ekki komið inn á borð til þeirra. „Við hljótum þó að koma að þessu þegar eitthvað fer að gerast í málinu í ljósi þess að húsið er friðað," segir hann en allar breytingar sem gerðar eru á húsinu þarf að bera undir nefndina. Að sögn Nikulásar er garðurinn sjálfur ekki friðaður en á það hefur verið bent að hestagerði við austurhluta hússins eigi að vernda. Nikulás segir að í dag njóti gerðið engrar sérstakrar verndar en að stutt sé í það að það verði 100 ára gamalt sem myndi gera það að verkum að það fellur undir fornleifavernd. Hugmyndir væntanlegra kaupenda ganga meðal annars út á að láta gera skarð í gerðið til þess að gera bifreiðum kleift að aka að húsinu. Þorleifur bendir á að gerðið hafi í áraraðir verið leiksvæði barna í hverfinu og meðal annars af þeim sökum sé eðlilegt að íbúar fái að segja sína skoðun á málinu.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Fleiri fréttir Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Sjá meira