Innlent

Nánast óbreytt stjórn hjá RÚV ohf.

Ómar Benediktsson hefur verið stjórnarformaður RÚV ohf.
Ómar Benediktsson hefur verið stjórnarformaður RÚV ohf.

Kosið var í fimm manna stjórn Ríkisútvarpsins ohf. á Alþingi í dag og urðu litlar breytingar á henni.

Ómar Benediktsson, sem verið hefur stjórnarformaður Ríkisútvarpsins frá því að það var gert að opinberu hlutafélagi í fyrra, situr áfram í stjórninni og það gera þær Kristín Edwald, Margrét Frímannsdóttir og Svanhildur Kaaber einnig. Ari Skúlason er hins vegar nýr í stjórninni og kemur inn í stað Páls Magnússonar.

Varstjórn RÚV skipa þau Signý Ormarsdóttir, Eva Bjarnadóttir, Sigurður Aðils Guðmundsson, Lovísa Óladóttir og Dagný Jónsdóttir. Þess má geta að fyrsti aðalfundur Ríkisúrvarpsins ohf. verður á morgun en hann er haldinn þremur mánuðum á eftir áætlun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×