Ráðgjafarstofa vill almenna neysluviðmiðun Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. apríl 2008 11:22 Fullar hendur fjár. Þurfa Íslendingar neysluviðmiðun?
Mikilvægt er að Íslandi verði sett almenn neysluviðmiðun. Þetta kemur fram í ársskýrslu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem kynnt var á morgunverðarfundi með samstarfsaðilum stofnunarinnar. Stofan telur þetta nauðsynlegt til að tryggja að lágmarksframfærsla fjölskyldna sé tryggð, m.a. við úrvinnslu greiðsluerfiðleikamála. Skýrslu um slíka viðmiðun var skilað til viðskiptaráðherra haustið 2006 að sögn ráðgjafarstofunnar. Á síðasta ári töldu 16% umsækjenda um ráðgjöf hjá stofunni vankunnáttu í fjármálum vera undirrót erfiðleika sinna. Ráðgjafarstofa vill efla almenna fjármálafræðslu og telur rétt að skólakerfið taki slíka fræðslu inn í skyldubundið nám. „Það er mikil skerðing á lífsgæðum að eiga í greiðsluerfiðleikum og mikilvægt að efla fræðsluna til að sem fæstir lendi í þeim vanda," segir í skýrslunni. Gera þarf sparnað eftirsóknarverðan Enn fremur kemur fram að sparnaður sé mikilvægur til að forða einstaklingum frá greiðsluerfiðleikum og þurfi stjórnvöld að grípa til aðgerða til að gera hann eftirsóknarverðan. Lítil hefð sé fyrir sparnaði á Íslandi og því þurfi að breyta. Tekið er fram að fæstir sem til stofunnar leita eigi varasjóð til að leita í þegar í harðbakkann slær. Fjallað er um drátt skattakrafna af launum en heimild er til að halda allt að 75% launatekna eftir skuldi viðkomandi tekjuskatt. Ráðgjafarstofa telur mikilvægt að skattyfirvöldum verði heimilað að semja um þessar skuldir til þess að tryggja lágmarksframfærslu og sýn fólks út úr vandanum. Húsaleigubætur þurfi einnig að hækka til að fylgja leigumarkaðnum eftir: „Rúmlega helmingur viðskiptavina Ráðgjafarstofu eru í leiguhúsnæði. Leigumarkaðurinn á Íslandi er frekar takmarkaður og hefur leiguverð hækkað verulega undanfarin ár vegna hækkunar fasteignaverðs. Fjárhæðir húsaleigubóta hafa ekki fylgt þessari þróun. Þetta atriði skiptir miklu máli fyrir einstaklinga í greiðsluerfiðleikum sem eru á leigumarkaðnum," segir í skýrslunni.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira