Myndband: Ísland er mitt himnaríki Andri Ólafsson skrifar 16. apríl 2008 18:08
Tæplega þrítugur karlmaður, Mamadou Daillo, vann í vikunni mál sem hann höfðaði gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu. Maðurinn er frá Máritaníu og kom hingað til lands frá Amsterdam árið 2004. Hann óskaði þá eftir hæli á Íslandi sem Útlendingastofnun synjaði árið 2006. Dóms og kirkjumálaráðuneyti staðfesti svo ákvörðunina. Daillo krafðist þess að héraðsdómur ógilti þessa ákvörðun á þeim forsendum að Útlendingastofnun hafi látið hjá líða að kanna þær aðstæður sem Daillo hafi borið fyrir sig við hælisumsóknina. Útlendingastofunun sendi fyrirspurn um ástand mála í Máritaníu til Sameinuðu þjóðanna þegar verið var að meta umsókn Daillo en tók ákvörðun um að synja honum um hæli áður en svar fékkst við fyrirspurninni. Héraðsdómur komst því að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Útlendingastofnunnar um að synja Daillo um hæli hefði ekki verið byggð á fullnægjandi upplýs¬ingum um aðstæður hans í heimalandi sínu. Þannig hafi ekki verið unnt að meta hvort Daillo hefði lögmæta ástæðu til að óttast að vera áfram í Máritaníu eða ekki. Því var ákvörðun Útlendingastofnunnar og íslenska ríkisins felld úr gildi. Málið er komið aftur á byrjunarreit. Daillo mun að öllum líkindum sækja aftur um pólitískt hæli og Útlendingastofnun verður að fjalla um umsókn hans upp á nýtt og taka ákvörðun í kjölfarið. Í kjölfar dómsins fór Vísir suður til Njaðrvíkur og ræddi við Daillo um málið. Hann lýsti aðstæðum sínum í fangeslinu í Máritaníu og þakklætinu sem hann ber til Íslendinga sem hann segir hafa tekið sér opnum örmum.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi Sjá meira