Innlent

Búið að rannsaka hraðsendingarmálið

Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið rannsókn á svokölluðu hraðsendingarmáli og er það nú komið til saksóknara. Mun hann því næst ákveða hvort ákæra verði gefin út í málinu.

Hraðsendingarmálið er nokkuð umfangsmikið og hafa fjórir menn verið í haldi vegna málsins.

Tómas Kristjánsson hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í janúar vegna málsins sem snertir innflutning á tæpum fimm kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni.

Annþór Kristján Karlsson sem handtekinn var vegna sama máls sat í einangrun um tíma en afplána nú eftirstöðvar af dómi á Litla Hrauni.

Bræðurnir Jóhannes Páll og Ari Gunnarssynir sátu um tíma í varðhaldi vegna málsins og má búast við að allir þessir menn verði ákærðir vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×