Fleiri fréttir

Eins mánaðar fangelsi fyrir vörslu marijúana

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í vörslu sinni um 114 grömm af marijúana sem lögregla fann við húsleit.

Geir til Norður-Ameríku með áætlunarflugi

Geir Haarde forsætisráðherra verður í Boston í Bandaríkjunum og St. John's á Nýfundnalandi, Kanada, dagana 10.-16. apríl næstkomandi. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að hann ferðist með áætlunarflugi.

Fengu einkaþotu á „einstöku kynningarverði"

Kostnaður vegna leigu á einkaflugvél vegna ferðar forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í síðustu viku nam 4,2 milljónum króna.

Banaslys á Eyrarbakkavegi

Banaslys varð á Eyrarbakkavegi skammt frá Selfossi á tólfta tímanum í morgun. Árekstur varð með þeim hætti að jeppling var ekið af Kaldaðarnesvegi inn á Eyrarbakkaveg í veg fyrir vörubifreið sem ekið var til suðurs.

Samráð um þjóðaröryggismál vor og haust

Geir H. Haarde forsætisráðherra ritaði fomönnum stjórnmálaflokka bréf í gær þar sem tilkynnt var að nýtt reglubundið samráð þeirra um þjóðaröryggismál yrði komið á.

Barnungir veggjakrotarar gómaðir

Veggjakrotarar á barnaskólaaldri voru gómaðir í Hafnarfirði um helgina. Um var að ræða tvo pilta sem höfðu að öllum líkindum komist yfir spreybrúsa á heimili annars þeirra en úr brúsanum höfðu þeir úðað á tvö hús, þar af annað íbúðarhús.

Brot ökumanna á Ásabraut mynduð

Lögregla myndaði brot 20 ökumanna á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í vesturátt, við Birkiás.

Skrifað undir samning um Óshlíðargöng í dag

Fulltrúar frá Vegagerðinni, Íslenskum aðalverktökum og Marti Contractors frá Sviss undirrita í dag samning um svonefnd Óshlíðargöng á milli Hnífsdals og Bolungarvíkur og hefjast framkvæmdir innan tíðar.

Hættir sem formaður BHM eftir óróa á aðalfundi

Halldóra Friðjónsdóttir stígur úr stóli formanns Bandalags háskólamanna eftir að upp úr sauð á aðalfundi bandalagsins fyrir helgi. Ákveðin óánægja hefur verið með framgöngu formannsins, segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður stærsta stéttarfélagsins innan BHM.

Vörubílstjórar hóta því að lama þjóðfélagið

Sturla Jónsson, talsmaður vörubílstjóra sem staðið hafa fyrir mótmælum síðustu daga, segir lítið hafa komið út úr fundi hans og Árna Mathiesen fjármálaráðherra. Bílstjórarnir hóta enn alvarlegri aðgerðum en þegar hafa litið dagsins ljós. „Í raun og veru kom ekkert út úr þessum fundi. Við fengum bara sömu svör og hjá Geir þegar hann var fjármálaráðherra," segir Sturla.

Settu á svið hópslys á Bláfjallavegi

Það leit út fyrir alvarlegt hópslys á Bláfjallavegi við Sandskeið í morgun þar sem strætó fór út af veginum þegar bílstjórinn reyndi að komast hjá árekstri við fólksbíl.

Sæfari siglir loks til Grímseyjar á föstudag

Grímseyingar gleðjast væntanlega á föstudag því þá fer Grímseyjarferjan Sæfari í sína fyrstu ferð frá Dalvík. Farið verður klukkan 10 og er fjölmiðlum boðið með í för samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.

Álfheiður spyr ítarlega um flug til Búkarest

Álfheiður Ingadóttir, þingamaður Vinstri - grænna, hefur lagt fram ítarlega fyrirspurn til munnlegs svars um flug ráðherra í einkaþotu á fund NATO í Búkarest í síðustu viku.

Ungur maður barinn með kúbeini á Selfossi

Kúbeini var beitt í árás ungmenn á ungan dreng á hjólabrettasvæði á Selfossi á sunnudagskvöld. Sá er óbrotinn en með bólgur í andliti eftir hnefahögg og aumur í baki eftir kúbeinið.

Óvíst hvort Icelandair heimili farsímanotkun

Ekki er víst að flugfélög sem starfa í ríkjum Evrópusambandsins samþykki notkun almennings á farsímum í flugvélum, þrátt fyrir að Evrópusambandið sé búið að heimila slíkt.

Húsfyllir á fyrirlestri Gores í Háskólabíói

Al Gore, Nóbelsverðlaunahafi og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, heldur sem stendur erindi í fullu Háskólabíói um loftlagsmál. Fyrirlesturinn hófst um hálfníu í morgun og var fjölmiðlum heimilað að taka myndir við upphaf fundarins.

Ólympíueldurinn á Keflavíkurflugvelli

Ólympíueldurinn hafði viðkomu á Keflavíkurflugvelli seint í gærkvöldi og var þess vendilega gætt að engin nálgaðist Airbus-þotuna sem flutti hann.

Hvalaskoðunarferðir fimmfaldast á áratug

Rúmlega 104 þúsund manns fóru í hvalaskoðunarferðir hér á landi í fyrra. Það er fimmföldun frá því sem var fyrir tíu árum, þegar liðlega 20 þúsund manns fóru í slíkar ferðir.

Smygl á bréfi olli lengd einangrunar

Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið í einangrun í fangelsinu í Þórshöfn í nær hálft ár af því að hann smyglaði bréfi úr fangelsinu til kærustunnar sinnar. Málflutningur í máli hans, sem er angi af Pólstjörnumálinu, hófst í gær.

Fjölmennt í kvöldverði að Bessastöðum

Nú er að hefjast vinnukvöldverður að Bessastöðum þar sem flutt verða sjö erindi tengd loftslagsmálum. Al Gore sagði á blaðamannafundi þar fyrri skömmu að Íslandi myndi skipa mikilvægt hlutverk í þessum málum. Mikill fjöldi fólks er nú staddur á Bessastöðum.

Móðir drengsins í Færeyjum býst við dómi

Írís Inga Svavarsdóttir móðir Birgis Páls Marteinssonar sem setið hefur í fangelsi í Færeyjum í tengslum við Pólstjörnumálið svokallaða var viðstödd réttarhöldin í dag. Hún segir það hafa verið erfitt að hlusta á son sinn yfirheyrðan í dag.

Bíll í ljósum logum á Suðurlandsvegi

Slökkvilið og lögregla voru kölluð að logandi bíl vestan við Litlu kaffistofuna fyrir stundu. Lögreglan á Selfossi vissi ekki um tildrög slyssins en sagði bíl vera þar í ljósum logum.

Vélin sem Geir fór með til Svíþjóðar

Leiguvélin frá flugfélaginu Erni sem Geir H. Haarde flaug með til bæjarins Riksgränsen í Svíþjóð nú seinnipartinn heitir Jetstream 32 og er 19 manna skrúfuþota samkvæmt heimildum Vísis.

Stuðningur við rekstur frístundaheimila aukinn um 56 milljónir

Reykjavíkurborg vill koma því á framfæri að með samþykkt borgarráðs þann 7.apríl s.l var verið að auka stuðning við fötluð börn á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar frá því sem fjárhagsáætlun ársins 2008 gerði ráð fyrir, en ekki verið að draga úr honum eins og hermt er á forsíðu DV þann 7. apríl.

Al Gore mættur á Bessastaði

Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels er mættur á Bessastaði. Þar stendur nú yfir blaðamannafundur en Gore er hér í boði forseta Íslands.

Loksins eitthvað að gerast á Laugavegi 74

Húsgrunnurinn við Laugaveg 74 er einn af þeim reitum sem stungið hafa í augun síðastliðin misseri í miðbænum. Húsið sem þar stóð var flutt í burtu síðastliðið sumar en afgreiðsla málsins hefur tafist í borgarkerfinu í einhverntíma af ýmsum orsökum og hafa nágrannar margoft kvartað yfir stöðunni.

Fjallaði um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda á fundi í Færeyjum

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fjallaði um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og mikilvægi verðmætasköpunar á grundvelli hennar á alþjóðlegri ráðstefnu í Færeyjum um áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar í Norður-Atlantshafi.

Sjá næstu 50 fréttir