Innlent

Brot ökumanna á Ásabraut mynduð

Lögregla myndaði brot 20 ökumanna á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í vesturátt, við Birkiás.

Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 65%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 46 km/klst. en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64 km/klst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×