Innlent

Vélin sem Geir fór með til Svíþjóðar

Jetstream 32 vélin er í eigu flugfélagsins Ernir.
Jetstream 32 vélin er í eigu flugfélagsins Ernir.

Leiguvélin frá flugfélaginu Erni sem Geir H. Haarde flaug með til bæjarins Riksgränsen í Svíþjóð nú seinnipartinn heitir Jetstream 32 og er 19 manna skrúfuþota samkvæmt heimildum Vísis.

Tilgangurinn er að sækja fund norrænu forsætisráðherranna og er kostnaður 800 til 900 þúsund krónum meiri en ef um áætlunarflug væri að ræða eftir því sem fram kemur í tilkynningu á vef Forsætisráðuneytisins.

Með Geir í för eru Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem fer sem staðgengill Össurar Skarphéðinssonar, samstarfsráðherra Norðurlandanna sem og þrír starfsmenn. Auk þess verða Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, og Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, með í för en þeir eru sérstakir gestir ráðherranefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×