Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sömu laun fyrir sömu vinnu hjá RÚV Í ræðu sinni á aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. minntist Ómar Benediktsson, stjórnarformaður félagsins á umræðu síðustu vikna um laun stjórnenda hjá RÚV. Vísir hefur óskað eftir upplýsingum um laun dagskrárstjóranna Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur. Enn hafa þær upplýsingar ekki verið veittar. Ómar segir sömu laun vera greidd fyrir sömu vinnu hjá Ríkisútvarpsins. 17.4.2008 16:35
Flugstoðir fá gegnumlýsingarbifreið Flugverndardeild Flugstoða fékk nýverið afhenta bifreið sem útbúin er sérstökum gegnumlýsingabúnaði. 17.4.2008 16:21
Búið að gera við ljósleiðara á Norðvesturlandi Viðgerð er lokið á ljósleiðarahring Mílu sem bilaði um klukkan eitt í dag og olli því að landshringurinn rofnaði milli Blönduóss og Laugabakka. 17.4.2008 16:10
Samþykktu samning um íþróttamannvirki á ÍR-svæði Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag drög að samningi við íþróttafélagið ÍR um uppbygginu íþróttamannavirkja í Suður-Mjódd. 17.4.2008 16:04
Stjórnarformaður RÚV með 200 þúsund á mánuði Á fyrsta aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. sem haldinn var í dag voru laun stjórnarmanna í félaginu ákveðin. Fundurinn samþykkti að greiða stjórnarmönnum 100 þúsund krónur á mánuði. Stjórnarformaður fær 200 þúsund krónur á mánuði fyrir sín störf og varamenn í stjórn fá 25 þúsund krónur fyrir hvern fund. 17.4.2008 15:58
Ferjusamningafundur í Eyjum yfirstandandi „Það er verið að fara yfir málin núna, við vitum ekki enn hvort okkar tilboði verður tekið eða því hafnað eða hvað verður gert, þetta eru fyrstu samningaviðræður. 17.4.2008 15:51
Vilja reisa netþjónabú í Þorlákshöfn Samkomulag hefur náðst á milli sveitarfélagsins Ölfuss og fyrirtækisins Greenstone ehf. um viljayfirlýsingu um uppbyggingu netþjónabús í sveitarfélaginu. 17.4.2008 15:40
Ekki gengið frá samningi um sölu á Fríkirkjuvegi Borgarráð ákvað á fundi sínum í morgun að fresta því aftur að ganga frá samningi við Novator um kaup á Fríkirkjuvegi 11 við Tjörnina. 17.4.2008 15:30
Nútímaíslenska kennd við 40 háskóla Íslenskukennsla við erlenda háskóla og þýðingar íslenskra bókmennta á erlend tungumál er meðal yrkisefna málþings Íslenskrar málnefndar, Bókmenntasjóðs og Háskólabókasafns sem haldið verður í Þjóðarbókhlöðunni á morgun. 17.4.2008 15:27
Undibúa koltrefjaverksmiðju á Króknum Kaupfélag Skagfirðinga, Gasfélagið og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa gert með sér samkomulag um að stofna undirbúningsfélags sem hyggst reisa koltrefjaverksmiðju á Sauðarkróki. 17.4.2008 15:09
Aðeins eitt gilt tilboð í nýja Vestmannaeyjaferju Aðeins eitt gilt tilboð barst í smíði nýrrar Vestmannaeyjarferju og rekstur á skipinu í 15 ár. Þetta kemur fram á sunnlenska fréttavefnum Suðurlandið.is. 17.4.2008 15:04
RÚV tapaði 20 milljónum á mánuði Ríkisútvarpið hélt í dag sinn fyrsta aðalfund eftir að stofnuninni var breytt í opinbert hlutafélag. Þar kom meðal annars fram að tap af rekstri félagsins nam um 108 milljónum króna á þessu fyrsta rekstrartímabili sem markast af 1. apríl 2007 til 31. ágúst 2007. 17.4.2008 15:04
Söfnuðu nærri 3200 undirskriftum gegn ferjulægi í Bakkafjöru Kristján L. Möller samgönguráðherra tók í dag við tæplega 3200 undirskriftum manna sem mótmæla fyrirhugaðri byggingu ferjulægis í Bakkafjöru. 17.4.2008 13:28
Óskar vill viljayfirlýsingar REI upp á borðið Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins vill að viljayfirlýsingar sem Reykjavík Energy Invest hefur undirritað síðustu daga verði kynntar í borgarráði. Hann segir nauðsynlegt að skýra frá innihaldi yfirlýsinganna, ekki síst í ljósi þess sem hann kallar misvísandi ummæli sjálfstæðismanna í málinu. 17.4.2008 13:19
Hent út á sloppnum einum fata Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk heldur óvenjulegt verkefni á dögunum sem tengdist erjum á heimili fólks. Lögreglan var kölluð að húsi og þegar þangað var komið var karlmaður þar utandyra. 17.4.2008 13:00
Samráð um framkvæmdir á gatnamótum Borgaryfirvöld ætla að hafa samráð með íbúum í Hlíðunum og nágrenni um framkvæmdir tengdum mislægum gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Á annað hundrað manns mættu á kynningarfund sem haldinn var um málið í gær. 17.4.2008 12:50
Gagnrýndu skipulag þingfundar í dag Stjórnarandstaðan gagnrýndi á Alþingi í morgun að haldinn væri langur fundur á Alþingi um samgöngu- og menntamál á sama tíma og samgönguþing og aðalfundur Ríkisútvarpsins færu fram. 17.4.2008 12:43
Beitir sér ekki fyrir auglýsingabanni í kringum barnatíma Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hyggst ekki beita sér fyrir lagasetningu sem bannar auglýsingar í kringum barnatíma í sjónvarpi. Hún treystir fjölmiðlum og foreldrum til þess að meta hvað er best fyrir börnin. 17.4.2008 12:34
Iðnaðaráðherra andsnúinn olíuhreinsunarstöð Iðnaðarráðherra er mótfallinn olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum og segir óþægilegt hve litlar upplýsingar liggja fyrir um stöðina og þá sem á bak við hana standa. 17.4.2008 12:15
Þingmenn flognir til fundar á Vestfjörðum Þingmenn Norðvestur kjördæmis ætla að hitta sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum á fundi í dag. Rætt verður um málefni svæðisins en búast má við því að áætlanir um olíuhreinsunarstöð verði ofarlega á baugi. 17.4.2008 12:01
Hvatti ráðherra til þess að sniðganga hátíðir á ÓL Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hvatti flokkssystur sína, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, til þess að sniðganga bæði opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna í Peking í sumar og sýna þannig andstöðu sína við mannréttindabrot Kívnerja. Ráðherra sagðist hins vegar fyrst og fremst fara til þess að styðja íslenska íþróttamenn. 17.4.2008 12:01
Töluvert fleiri legíónellusmit í fyrra en árin á undan Töluvert fleiri legíónellusmit greindust hér á landi í fyrra en árin á undan samkvæmt upplýsingum frá sýklafræðideild Landspítalans. Vitnað er til þeirra í Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins en alls greindust 12 manns með veikina í fyrra. 17.4.2008 11:50
Flensan í rénun á landinu Inflúensan sem gekk yfir landið í vetur er í rénun en alls var um þrjá stofna að ræða. 17.4.2008 11:35
Enginn greindist með sárasótt í fyrra Enginn einstaklingur greindist með sárasótt á Íslandi á árinu 2007. Þetta kemur fram í nýjum Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. 17.4.2008 11:28
Plank laug í Kastljósi Premyslaw Plank, sem handtekinn var í vikunni vegna gruns um að hann hafi myrt hnefaleikamanninn Andrezj Hamel, hefur hlotið fimm fangelsisdóma í Póllandi. Þessir dómar hljóðuðu alls upp á 4 ár og átta mánuði. 17.4.2008 11:23
Ráðgjafarstofa vill almenna neysluviðmiðun Mikilvægt er að Íslandi verði sett almenn neysluviðmiðun. Þetta kemur fram í ársskýrslu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem kynnt var á morgunverðarfundi með samstarfsaðilum stofnunarinnar. 17.4.2008 11:22
Rústast íslenskur landbúnaður með nýjum lögum frá ESB? Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, lýsti yfir áhyggjum af því að íslenskur landbúnaður myndir rústast ef nýtt frumvarp landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sem meðal annars kveður á um innflutning á hráu kjöti, yrði að veruleika. 17.4.2008 11:06
Síbrotamaður sendur í fangelsi Tvítugur Reykvíkingur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir að hafa þrívegis ekið bifreið undir áhrifum vímuefna. Í tvö skipti af þessum þremur var maðurinn með fíkniefni í sinni vörslu. 17.4.2008 10:48
Undirskriftarsöfnun vegna læknaskorts á Blönduósi „Eins og komið hefur fram í fréttum hefur það ástand skapast á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi að hætta er á að allir læknar stofnunarinnar hætti þar störfum um næstu mánaðarmót,"segir í fréttatilkynningu frá hópi fólks sem ætlar að afhenda heilbrigðisráðherra undirskriftarlista. 17.4.2008 10:42
Vilja endurskoðun laga um öryggisþjónustu Árásir á öryggisverði að undanförnu kalla á að sá lagarammi sem öryggisfyrirtæki starfa eftir sé tekinn til gagngerrar endurskoðunar að mati Öryggismiðstöðvarinnar. 17.4.2008 10:34
Níu mánaða fangelsi fyrir að aka án réttinda Rúmlega þrítugur Ólafsfirðingur var í Héraðsdómi Norðurlands eystri í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið reynsluakstursbíl frá Bílabúð Benna til Dalvíkur þar sem hann var stöðvaður af lögreglu. 17.4.2008 10:23
Helmingi framkvæmdaaðila finnst skipulagsyfirvöld standa sig illa Ríflega helmingur eða 53 prósent forsvarsmanna fyrirtækja og framkvæmdaaðila sem eiga samskipti við skipulagsyfirvöld sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu finnst sveitarfélögin sinna skipulagsmálum illa. 17.4.2008 09:14
Rúmlega 430 ökumenn á of miklum hraða Rúmlega 430 ökumenn voru myndaðir á of miklum hraða á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í gær, en rúmlega 7,500 bílar fóru um gatnamótin á meðan á mælingu stóð. 17.4.2008 07:37
Svifryk yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu í dag Búist er við að svifryk mælist yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu í dag og af því tilefni minnir Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar á að nú er bannað að aka á nagladekkjum. 17.4.2008 07:26
Neistaflug frá háspennustaur olli sinubruna í Ölfusi Eldglæringar og neistaflug frá háspennustaur ollu sinubruna í Ölfusi á fimmta tímanum í nótt og var slökkviliðið í Hveragerði kallað á vettvang til að slökkva eldinn. 17.4.2008 07:24
Fundu hassolíu og kókaín við húsleit í borginni Menn úr fíkniefnadeild lögreglunnar fundu við húsleit í Reykjavík í gærkvöldi, nokkuð af kókaíni, marijuana og hassolíu. 17.4.2008 07:05
Flugfreyjur og flugþjónar undirbúa verkfallsboðun Flugfreyjur og flugþjónar hjá Flugleiðum ákváðu á félagsfundi sínum í gærkvöldi að hefja nú þegar undirbúning að verkfallsboðun. 17.4.2008 07:00
Ný réttarskipan rædd eftir dóm Birgis Páls Helena Dam á Neystabö, sá ráðherra í ríkisstjórn Færeyja sem fer með dómsmál, telur að Færeyingar þurfi að koma sér upp sinni eigin réttarskipan, í stað þeirrar dönsku sem þar ríkir nú. Þetta sagði hún í samtali við færeyska ríkisútvarpið. 17.4.2008 00:01
Sinubruni í Grafarvogi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Kirkjugarðinum í Gufunesi um hálf-fjögurleytið í dag, þar sem kveikt hafði verið í sinu. Slökkvistarf tók um fjörutíu mínútur, en eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar eru af þeim Friðberti, Einari og Ægi, nemendum í Foldaskóla lagði all mikinn reyk yfir Foldahverfið. 16.4.2008 21:16
Varað við svifryki í dag og á morgun Umhverfis- og samngöngusvið varar við því að svifryk geti farið yfir heilsuverndarmörk í dag og á morgun. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að ryk berist nú um borgina og þyrlist víða upp og valdi gangandi og hjólandi óþægindum. 16.4.2008 22:45
Fundu fíkniefni í Laugardalshverfinu Fíkniefni fundust við húsleit í Laugardalshverfinu um kvöldmatarleytið í gær. Talið er að um sé að ræða bæði kókaín og marijúana, nálægt 30 grömmum, og einnig hassolíu, um 150 ml. 16.4.2008 21:00
Vændiskonu vísað á dyr Vændiskonan sem dvalið hefur á hótelinu „Room with a View" að undanförnu er farin þaðan, að sögn Árna Einarssonar, framkvæmdastjóra hótelsins. 16.4.2008 20:39
Grunur um að tugir bíla séu stolnir Tugir bíla sem fluttir voru hingað til lands frá Bandaríkjunum gætu verið ólöglega fengnir. Tollayfirvöld ytra lögðu hald á ellefu bíla fyrir skömmu sem voru á leið hingað til lands sem talið er að hafi verið stolið. Í það minnsta eitt íslenskt fyrirtæki og einn Íslendingur er viðriðin málið. 16.4.2008 19:13
Ræðismaður Pólverja ánægður með fundinn Fundur Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, með Michal Síkorskí ræðismanni Póllands á Íslandi var mjög árangursríkur, að sögn þess síðarnefnda. 16.4.2008 18:50
Varnarmálastofnun lögfest Frumvarp utanríkisráðherra til varnarmálalaga var samþykkt á Alþingi í dag. Samkvæmt nýju lögunum fer utanríkisráðherra með yfirstjórn varnarmála. Sérstök varnarmálastofnun verður sett á laggirnar. Forstjóri hennar verður skipaður í sumar. 16.4.2008 18:30