Innlent

Hent út á sloppnum einum fata

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk heldur óvenjulegt verkefni á dögunum sem tengdist erjum á heimili fólks. Lögreglan var kölluð að húsi og þegar þangað var komið var karlmaður þar utandyra.

Hann var klæðalítill og raunar í baðsloppi einum fata og því skiljanlega nokkuð kalt en atvikið átti sér stað síðla kvölds. Við eftirgrennslan kom í ljós að hann var læstur úti heima hjá sér og því var úr vöndu að ráða. Fljótlega kom þó á daginn að maðurinn hafði ekki verið einn heima því sambýlis- eða vinkona hans reyndist vera innandyra þegar að var gáð eins og segir í frétt lögreglunnar.

Reynt var að fá hana til að opna útidyrahurðina en konan var ekki mjög samvinnufús og tók því fálega. Svo fór þó að konan féllst á að opna fyrir manninum og komst hann því aftur inn í hlýjuna. Ekki er fyllilega ljóst, að sögn lögreglu, með hvaða hætti hann endaði fáklæddur fyrir utan heimili sitt.

Engin merki sáust um líkamlegt ofbeldi en fólkið hafði augljóslega átt í illdeildum og var áfengi haft um hönd en því var bent á að ræða frekar málin allsgáð. Um síðir róaðist ástandið og þá fór lögreglan af vettvangi en ekki er talið að manninum hafi orðið meint af útivistinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×