Innlent

Sömu laun fyrir sömu vinnu hjá RÚV

Þórhallur Gunnarsson, annar dagskrárstjóra RÚV.
Þórhallur Gunnarsson, annar dagskrárstjóra RÚV.

Í ræðu sinni á aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. minntist Ómar Benediktsson, stjórnarformaður félagsins á umræðu síðustu vikna um laun stjórnenda hjá RÚV. Vísir hefur óskað eftir upplýsingum um laun dagskrárstjóranna Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur. Enn hafa þær upplýsingar ekki verið veittar. Ómar segir sömu laun vera greidd fyrir sömu vinnu hjá Ríkisútvarpsins.

„Það er athyglisvert fyrir okkur sem skipum nýja stjórn að sjá áhuga annara fjölmiðla á RÚV," sagði Ómar. „Það er alltaf gott að fá aðhald og í lögum um RÚV ohf. voru sett skilyrði fyrir upplýsingaskyldu í samræmi við lög um upplýsingaskyldu."

Ómar sagðist þó ekki viss um að í upphafi hafi hugmyndin verið sú „að keppinautar ættu endilega að vera að sækjast í það að fá að vita um laun einstakra starfsmanna hjá Ríkisútvarpinu. Og enn síður að reyna að koma á ótrúverðugleika gagnvart RÚV meðal annars með því að vera að tala um mismundandi laun á milli kynja."

Að sögn Ómars er lagður mikill metnaður í það í Efstaleitinu að „vega og meta hvert starf og er greitt í samræmi við það. Ef störfin eru alveg sambærileg með sama vinnutíma þá eru greidd sömu laun hvort sem það er maður eða kona," sagði Ómar.

Í Ársskýrslu RÚV fyrir tímabilið 1. apríl til 31. ágúst kemur fram að laun og launatengd gjöld hafi lagt sig á 833 milljónir króna.

„Heildarlaun og þóknanir til ellefu helstu stjórnenda námu 45 milljónum króna, þar af til útvarpsstjóra 7,7 milljónum króna.“


Tengdar fréttir

Stjórnarformaður RÚV með 200 þúsund á mánuði

Á fyrsta aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. sem haldinn var í dag voru laun stjórnarmanna í félaginu ákveðin. Fundurinn samþykkti að greiða stjórnarmönnum 100 þúsund krónur á mánuði. Stjórnarformaður fær 200 þúsund krónur á mánuði fyrir sín störf og varamenn í stjórn fá 25 þúsund krónur fyrir hvern fund.

RÚV tapaði 20 milljónum á mánuði

Ríkisútvarpið hélt í dag sinn fyrsta aðalfund eftir að stofnuninni var breytt í opinbert hlutafélag. Þar kom meðal annars fram að tap af rekstri félagsins nam um 108 milljónum króna á þessu fyrsta rekstrartímabili sem markast af 1. apríl 2007 til 31. ágúst 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×