Nútímaíslenska kennd við 40 háskóla Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. apríl 2008 15:27 Háskóli Íslands. MYND/ANTON BRINK
Íslenskukennsla við erlenda háskóla og þýðingar íslenskra bókmennta á erlend tungumál er meðal yrkisefna málþings Íslenskrar málnefndar, Bókmenntasjóðs og Háskólabókasafns sem haldið verður í Þjóðarbókhlöðunni á morgun. „Það er verið að kenna nútímaíslensku við eina 40 háskóla erlendis og við verðum að styðja við bakið á kennslunni í einum 18 þeirra, þetta eru á milli 1.000 og 2.000 manns sem eru að stunda þetta nám," sagði Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, sem setur þingið. Úlfar sagði frá því að meðal þeirra háskóla sem byðu upp á íslenskukennslu væru tveir háskólar í Japan. Kennarar þar væru þó ekki Íslendingar: „Aðalkennarinn í Japan er nú Japani sem talar íslensku. Við Waseda-háskóla hafa verið 50 - 100 manns í íslenskunámi og við Tokai-háskóla eru kannski 10. Svo er verið að kenna í kvöldskóla þar líka og þar eru jafnvel fleiri. Stærsti hópurinn sem er að læra íslensku erlendis er í Gautaborg en einnig eru margir að læra hana í Berlín og London," sagði Úlfar. Íslenskan skylda í sænskunámi „Í Helsinki er náminu þannig komið fyrir að þeir sem eru að læra sænsku verða að læra íslensku," sagði hann enn fremur og bætti því við að staða íslenskukennslunnar væri alla jafna best þar sem íslenskunámið væri skylda frekar en einungis valfag. „Svo eru auðvitað alltaf fleiri og fleiri útlendingar sem koma hingað í nám. Margt þessa fólks kemur hingað sem skiptinemar á Evrópusamskiptasamningum. Svo höfum við verið að vinna að verkefni sem heitir „Icelandic online" og er sjálfsnámsefni á Netinu og það eru um þrjú til fjögur hundruð manns sem sækja það á hverjum degi. „Philip Roughton ætlar einnig að ræða um þýðingar en hann hefur aðallega verið að þýða Laxness yfir á ensku. T.d. fékk hann verðlaun fyrir þýðingu sína á Íslandsklukkunni og er nú að vinna að þýðingu á ævisögu Laxness eftir Halldór Guðmundsson. Philip er að vinna að því að koma Laxness betur yfir á ensku, verk hans komust ekki mikið yfir á enska tungu á sínum tíma," sagði Úlfar að skilnaði.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Fleiri fréttir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Sjá meira