Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eins árs fangelsi fyrir hrottafengna árás og nauðgun Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar sex hundruð þúsund krónur í miskabætur. 13.3.2008 15:20
Björn tekur ekki afstöðu til kæru á hendur einkaþjálfara Björn Leifsson framkvæmdastjóri World Class segir ekki tímabært að taka afstöðu til kæru sem lögð hafi verið fram gegn einkaþjálfaranum Benjamíni Þóri Þorgrímssyni sem starfar í líkamsræktarstöð Björns. 13.3.2008 15:15
Ásta fer fyrir nefnd um markaðssetningu íslenska hestsins Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað Ástu Möller alþingismann formann nefndar um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis. 13.3.2008 14:49
Reiðibylgjan berst Birni til Slóveníu Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að þrátt fyrir að Alþingi hafi nýlega samþykkt hert ákvæði um þyngri refsingu ef ráðist væri á lögreglumann sjáist það ekki á nýföllnum dómi héraðsdóms. Hann skrifar á heimasíðu sína um dóminn yfir þremur Litháum sem kærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn á Laugaveginum. Dómari sýknaði tvo þeirra og sá þriðji fékk 60 daga skilorðsbundinn dóm. 13.3.2008 14:44
Segist hafa farið að lögum í hvívetna við undirbúning álvers Norðurál segist hafa farið í hvívetna efir lögum og reglum um framkvæmdir við undirbúning álvers í Helguvík og segist hafa gert samninga um flestalla þætti málsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á félaginu. 13.3.2008 14:20
Lögreglustjóri vill áfrýjun - Segir sýknudóm rangan „Ég er þeirrar skoðunar að þessi dómur sé þess eðlis að það sé augljóst að honum verði áfrýjað," segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, um nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli þriggja Litháa sem gefið var að sök að hafa ráðist á hóp lögreglumanna við hefðbundið fíkniefnaeftirlit við Laugarveg. 13.3.2008 14:16
RÚV ætlar með launamál Þórhalls og Sigrúnar fyrir dómstóla Ríkisútvarpið neitar að láta Vísi í té upplýsingar um laun dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins og dagskrárstjóra útvarps, þrátt fyrir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafi úrskurðað að Ríkisútvarpinu sé skylt að veita þessar upplýsingar. 13.3.2008 14:16
Mávarnir fúlsuðu við eitrinu 57 mávar voru drepnir með eitri í tilraun sem framkvæmd var fyrir tilstilli Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á liðnu ári. „Það sem kom einna mest á óvart við þessa tilraun var að einungis um helmingur beitunnar skilaði sofandi mávi," segir í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Tilraunin var gerð í Þerney á Kollafirði og í Garðaholti á Álftanesi í júní 2007. Svæfa mátti allt að 600 pör en varp árið 2007 var lélegt, þriðja árið í röð. Skýrsla um málið hefur nú verið kynnt. 13.3.2008 13:50
Stal pelsi frá konu í erfidrykkju Hann reyndist vandlátur þjófurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip á dögunum. 13.3.2008 13:33
Vilja að Ísland hafi frumkvæði í friðarmálum Miðausturlanda Samtök hernaðarandstæðinga standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi á laugardag á alþjóðlegum baráttudegi gegn stríðinu í Írak. 13.3.2008 12:58
Sluppu lítið meiddar í veltu við Litlu kaffistofuna Tvær konur sluppu lítið meiddar þegar önnur þeirra missti stjórn á bíl sínum á hálku á Suðurlandsvegi skammt vestan við Litlu kaffistofuna á níunda tímanum í morgun. 13.3.2008 12:40
Alvarlegum umferðarslysum fjölgaði verulega í fyrra Þrettán færri banaslys urðu í umferðinni í fyrra en árið áður og varð aðeins eitt þeirra í þéttbýli. Alvarleglum umferðarslysum þar sem allir halda lífi fjölgar hins vegar verulega. 13.3.2008 12:28
Þungt hljóð í lögreglumönnum á Suðurnesjum Þungt hljóð var í lögreglumönnum á Suðurnesjum á fjölmennum fundi þeirra í gær þar sem staða lögreglunnar var rædd sem og fregnir af niðurskurði innan embættisins. 13.3.2008 12:15
Vill bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás Atli Gíslason, þingmaður Vinstri - grænna, vill bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás. Þetta sagði hann í samtali við Bítið á Bylgjunni þar sem sýknudómur yfir tveimur Litháum frá í gær var til umræðu. Lögreglufélag Reykjavíkur segir dóminn hneyksli. 13.3.2008 12:09
Setur skilyrði fyrir samruna á markaði fyrir fólksflutninga Samkeppniseftirlitið hefur sett ákveðin skilyrði fyrir samruna Reynimels ehf. og Kynnisferða sem sinna fólksflutningum. Á vef stofnunarinnar kemur fram að hún hafi ógilt samrunann í fyrra þar sem hann hindraði samkeppni á markaði fyrir fólksflutninga. 13.3.2008 12:03
Viðskiptafréttum troðið upp á Íslendinga „Það er ekki þannig i Danmörku að einhver Stine Pedersen, sem er búin að kaupa sér sólarferð til Spánar, kippi sér upp við þótt íslensku bankarnir séu komnir með hátt skuldatryggingarálag. 13.3.2008 11:54
Bæjarráð Sandgerðisbæjar styður lögreglumenn Bæjarráð Sandgerðisbæjar leggur þunga áherslu á óviðunandi ástand í löggæslumálum á Suðurnesjum og tekur undir ályktun löggæslumanna og tollvarða í umdæmi Lögreglustjórans á Suðurnesjum um niðurskurð fjárveitinga til löggæslumála á svæðinu. 13.3.2008 11:49
Framkvæmdir við Suðurlandsveg og Vaðlaheiðargöng hefjast næsta vor Kristján L. Möller, samgönguráðherra, kynnti í morgun viðauka við samgönguáætlun fyrir árin 2007 - 20010. Þar ber einna hæst að hafist verður handa við tvöföldun Suðurlandsvegar og jarðgöng undir Vaðlaheiði á fyrri hluta árs 2009. Forsaga viðaukans er sú að í kjölfar niðurskurðar þorskkvótans ákvað ríkisstjórnin að grípa til mótvægisaðgerða í formi samgönguframkvæmda. 13.3.2008 11:35
Bauðst til að stýra stjórnarandstöðuskóla Mörður Árnarson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, bauðst til að stýra skóla í stjórnarandstöðu á Alþingi í dag þegar hann gagnrýndi stjórnarandstöðuna fyrir máttleysi. Verið var að ræða um það hvers vegna utandagskrárumræða um útboð á heilli deild á Landspítalanum færi ekki fram þegar Mörður sté í pontu. 13.3.2008 11:30
Olíuverðið komið vel yfir þolmörk útgerðarinnar Stöðugar hækkanir á heimsmarkaðsverði olíu eru farnar að koma verulega illa við útgerðina í landinu. Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ segir að verðið nú sé komið langt yfir þolmörk útgerðarinnar. 13.3.2008 11:16
Með kúffiskveiðiskip í togi Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar er nú með kúffiskveiðiskipið Fossá ÞH í togi eftir að Fossá fékk veiðarfæri í skrúfuna þegar skipið var statt austur af Langanesi undir morgun. 13.3.2008 11:14
Lög um lífeyrisréttindi þingmanna eru hneyksli Það er dæmigert skeytingaleysi þingmanna að frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur um breytingar á lífeyrisréttindum þingmanna skuli hafa legið í þinginu svo mánuðum skipti. Þetta segir Grétar Þorsteinsson, formaður ASÍ. 13.3.2008 11:09
Segist hafa haft samþykki fyrir samræði Einn af þeim fimm Litháum sem handteknir voru um helgina grunaðir um að hafa nauðgað konu í húsi við Reynimel hefur játað að hafa haft samræði við konuna. Sá segist hins vegar að það hafi verið með hennar samþykki. 13.3.2008 11:05
Heilbrigðiskerfinu gjörbylt án umræðu á þingi Stjórnarandstöðuþingmenn deildu hart á Guðlaug Þór Þórðarssson á Alþingi í morgun fyrir að vilja ekki ræða það sem þeir kölluðu einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Verið væri að gjörbylta heilbrigðisráðuneytinu án umræðu á þingi. 13.3.2008 11:05
Saumavélasalar handteknir á Selfossi Lögreglan á Selfossi stöðvaði sölu á saumavélum á Selfossi í gær. „Ástæðan var beiðni frá Neytendastofu um að kanna heimild erlendra aðila til sölu á saumavélunum frá þekktum framleiðanda," segir í á heimasíðu lögreglunar á Selfossi. „Aðdragandi málsins var sá að erlendir aðilar höfðu flutt inn hátt á fimmta hundrað saumavéla til landsins sem þeir ætluðu að selja á fjórum dögum. Salan fór fram í Reykjavík, Hafnarfirði og á Selfossi. Saumavélarnar og sölustaðir voru auglýstir opinberlega." 13.3.2008 10:50
UPS-smyglið staðið yfir síðan 2005 Í gögnum sem lögregla hefur lagt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Hæstarétt kemur fram að grunur leiki á að hraðsendingarsmyglið sem upp komst á Keflavíkurflugvelli í nóvember hafi staðið yfir síðan á vormánuðum 2005. 13.3.2008 10:37
Dæmdur fyrir að hrinda konu í Melabúðinni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 30 daga fangelsi fyrir að hafa ráðist á konu í Melabúðinni og hrint henni þannig að hún féll aftur fyrir sig á gólf verslunarinnar og hlaut meðal annars heilahristing og taugaáfall. 13.3.2008 10:15
Heildarafli dróst saman um 27 prósent milli ára Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, reyndist 27 prósentum minni en á sama tíma í fyrra. 13.3.2008 09:23
Útflutningur og einkaneysla drifu áfram hagvöxt í fyrra Hagvöxtur á landinu reyndist 3,8 prósent í fyrra samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar um landsframleiðslu. Þar segir að landsframleiðslan hafi numið tæplega 1280 milljörðum og jókst hún um 3,8 prósent sem fyrr segir. Til samanburðar var hagvöxtur 4,4 prósent árið 2006 en vel yfir sjö prósent árin 2004 og 2005. 13.3.2008 09:04
Slasaðist í bílveltu við Litlu kaffistofuna Kona slasaðist þegar hún missti stjórn á bíl sínum á hálku á Suðurlandsvegi skammt vestan við Litlu kaffistofuna nú á níunda tímanum. 13.3.2008 09:00
Dómarar stígi úr fílabeinsturni sínum Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur segir nýfallinn dóm í máli þar sem ráðist var á lögreglumenn við skyldustörf hneyksli og spurt er hvort dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur búi í sama samfélagi og lögreglumenn. 13.3.2008 08:19
Þorskafli minni en sem nemur niðurskurði Þorskaflinn það sem af er fiskveiðiárinu sem hófst 1. september er minni en sem nemur miklum niðurskurði á kvótanum á þessu fiskveiðiári. 13.3.2008 08:11
Skelfisksbátur fékk veiðarfærin í skrúfuna Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Raufarhöfn og Vopnafirði eru nú á leið til skelfisksbáts frá Þórshöfn sem fékk veiðarfærin í skrúfuna um klukkan hálf fimm í nótt þegar báturinn var austur af Langanesi. 13.3.2008 08:09
Gripu mann eftir innbrotstilraun í nótt Lögreglan greip í nótt mann, sem grunaður er um að hafa ætlað að brjótast inn í söluturn í Þingholtunum í Reykjavík með því að brjóta þar rúðu. 13.3.2008 08:05
Fjörutíu ára samráð á olíuverði til ÍSAL „Tek heils hugar undir þetta. Óþolandi glannaskapur, svona á að afhenda yfir borð eða í mesta falli boðsent til JH [Jóns Halldórssonar],“ sagði Einar Benediktsson, forstjóri Olís, eftir að Kristján B. Ólafsson, fyrrverandi fjármálastjóri Olís, hafði sent honum skilaboðin: „Fékk inn á borð fax frá Shell vegna Ísals-útboðs. Skil ekki að Shell sendi fax út af verðum í þessu útboði, það er allt of varasamt.“ 13.3.2008 06:00
Í einangrun í fimm mánuði í Færeyjum Íslendingurinn sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í Færeyjum frá 20. september vegna meintrar aðildar að Pólstjörnumálinu, er enn í einangrun. Hann var síðast úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald og einangrun 7. mars. Hann áfrýjaði til æðra dómsstigs, sem staðfesti úrskurðinn á mánudag. Maðurinn sem er 25 ára hefur setið í einangrun í rétta tæpa fimm mánuði, eða megnið af tímanum frá því að hann var handtekinn. 13.3.2008 00:01
Hafa þungar áhyggjur af yfirvofandi niðurskurði Félagar í Lögreglufélagi Suðurnesja lýsa yfir þungum áhyggjum af yfirvofandi niðurskurði hjá embætti lögreglu- og tollstjórans á Suðurnesjum. 12.3.2008 22:00
Beðið eftir matsgerð í máli Alcan gegn olíufélögum Fyrirtaka var í máli Alcan á hendur stóru olíufélögunum þremur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en málinu var frestað fram í maí þar sem beðið er eftir matsgerð frá matsmanni. 12.3.2008 21:25
Umhverfisráðherra um álverið í Helguvík Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra lýsir furðu sinni á ákvörðun sveitarstjórna Reykjanesbæjar og Garðs um að veita álveri Norðuráls sf. í Helguvík framkvæmda- og byggingarleyfi. Í ljósi þess að málið er enn til umfjöllunar í umhverfisráðuneytinu og vegna þeirra álitaefna sem Skipulagsstofnun vakti athygli á í áliti sínu um mat á umverfisáhrifum verksmiðjunnar, þá telur umhverfisráðherra að efast megi um réttmæti slíkrar leyfisveitingar á þessari stundu. 12.3.2008 20:27
Lögregla rannsaki betur vopnakaup í Sæbrautarmáli Rannsókn lögreglunnar á vopnakaupum morðingjans í Sæbrautarmálinu svokallaða var ófullnægjandi að mati ríkissaksóknars sem hefur gert lögreglu að rannsaka málið betur. 12.3.2008 19:23
Langþreyttir á ástandinu inni á Kleppi Tregða í kerfinu veldur því að tugir einstaklinga dvelja að óþörfu inni á Kleppsspítala segir framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann segir menn langþreytta á ástandinu inni á Kleppi. 12.3.2008 19:14
Átta einstaklingar hljóta hvatningarstyrk úr Guðrúnarsjóði Guðrúnarsjóður var stofnaður í mars árið 2005 til heiðurs Guðrúnu Halldórsdóttur,fyrrverandi forstöðukonu Námsflokka Reykjavíkur, í tilefni af sjötugsafmæli hennar og starfslokum hjá Reykjavíkurborg. 12.3.2008 19:05
Vísar gagnrýni umhverfisráðherra vegna álvers á bug Bæjarstjórnir Reykjanesbæjar og sveitarfélagsins Garðs samþykktu á fundi nú síðdegis að veita bygginarleyfi fyrir álveri í Helguvík. Umhverfisráðherra hefur gagnrýnt sveitarfélögin fyrir að veita leyfið án þess að allar upplýsingar og forsendur liggi fyrir. Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ vísar þeirri gagnrýni á bug og segir sveitarfélögin vel geta veitt leyfið. 12.3.2008 18:48
Rafiðnaðarmenn samþykkja samning við SA Rafiðnaðarmenn bættust í dag í hóp þeirra fjölmörgu stétta sem samþykkt hafa nýgerðan kjarasamning verkalýðsforystunnar við Samtök atvinnulífsins, 12.3.2008 17:57
Umboðsmanns aldraðra ekki getið í stjórnarsáttmála Ekki kemur fram í stjórnarsáttmálanum að til standi að koma á fót umboðsmanni aldraðra og því þurfa stjórnarflokkarnir að ræða það, sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 12.3.2008 15:59