Innlent

Umboðsmanns aldraðra ekki getið í stjórnarsáttmála

MYND/GVA

Ekki kemur fram í stjórnarsáttmálanum að til standi að koma á fót umboðsmanni aldraðra og því þurfa stjórnarflokkarnir að ræða það, sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Það var Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem spurði ráðherra um málið. Benti hann á að málefni aldraðra hefðu verið mjög til umræðu fyrir síðustu þingkosningar og Samfylkingin hefði sett það á oddinn að setja þyrfti á fót embætti umboðsmanns aldraðra. Sá málflutningur hefði hlotið mikinn stuðning og spurði hann ráðherra hvað liði þessum áformum.

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra sagði málefni aldraðra og lífeyrisþega allra einn mikilvægasta málaflokk ríkisstjórnarinnar en að upplýsingagjöf til aldraðra þyrfti að bæta. Hún hefði áhuga á að gera það í samráði við hagsmunasamtök aldraðra.

Hins vegar væri umdeilt á þingi hvort setja ætti á fót umboðsmann fyrir sérstakan málaflokk. Sagðist Jóhanna hafa staðið að hugmyndum um umboðsmann aldraðra ásamt félögum sínum í Samfylkingunni en embættisins væri ekki getið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkana og því þyrfti að ræða um þetta á milli flokkann.

Sagði hún að fara þyrfti yfir málin heildstætt og taldi hún eðlilegt að fara yfir reynslu annarra þjóða af umboðsmönnum einstakra málaflokka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×