Innlent

Björn tekur ekki afstöðu til kæru á hendur einkaþjálfara

Andri Ólafsson skrifar
Björn Leifsson
Björn Leifsson

Björn Leifsson framkvæmdastjóri World Class segir ekki tímbært að taka afstöðu til kæru sem lögð hafi verið fram gegn einkaþjálfaranum Benjamíni Þóri Þorgrímssyni sem starfar í líkamsræktarstöð Björns.

Benjamín er einn þeirra sjö manna sem athafnamaðurinn Ragnar Magnússon hefur sakað um að hafa beitt sig þvingunum og hótunum í því skyni að fá Ragnar til þess að láta af hendi skemmtistaði sem hann rak.

"Ég ætla ekki að aðhafast á undan dómskerfinu í þessu máli. Menn eru saklausir uns sekt þeirra er sönnuð. En ef Benni verður fundin sekur þá þjálfar hann ekki meira hér," segir Björn.

Það skal tekið fram að Benjamín neitar alfarið þeim ásökunum sem Ragnar hefur borið upp á hann. Áður en Ragnar lagði fram kæru á hendur honum hafði Benjamín sjálfur kært Ragnar fyrir rógburð. Sú kæra bíður meðferðar.

Í samtali við Vísi sagði Benjamín að ásakanir Ragnars ættu við engin rök að styðjast. Hann vildi ekki tjá sig að öðru leiti um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×