Innlent

Lögreglustjóri vill áfrýjun - Segir sýknudóm rangan

Andri Ólafsson skrifar
Stefán Eiríksson.
Stefán Eiríksson.

"Ég er þeirrar skoðunar að þessi dómur sé þess eðlis að það sé augljóst að honum verði áfrýjað," segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, um nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli þriggja Litháa sem gefið var að sök að hafa ráðist á hóp lögreglumanna við hefðbundið fíkniefnaeftirlit við Laugarveg.

Tveir þeirra voru sýknaðir en einn dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

„Ég er þeirrar skoðunar að dómurinn sé rangur og deili þeirri skoðun með öllum starfsmönnum embættisins. Hér eru allir mjög hugsi og miklu meira en hissa hvernig hægt sé að komast að þessari niðurstöðu," segir lögreglustjórinn.

Tveir lögreglumannanna sem urðu fyrir árás Litháanna voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild, annar meðvitundarlaus með heilahristing og tognun í hálsi eftir höfuðhögg en hinn með ýmsa yfirborðsáverka í andliti. Hinir tveir lögreglumennirnir fóru sjálfir á slysadeild og reyndust með áverka í andliti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×