Vísar gagnrýni umhverfisráðherra vegna álvers á bug Breki Logason skrifar 12. mars 2008 18:48
Bæjarstjórnir Reykjanesbæjar og sveitarfélagsins Garðs samþykktu á fundi nú síðdegis að veita bygginarleyfi fyrir álveri í Helguvík. Umhverfisráðherra hefur gagnrýnt sveitarfélögin fyrir að veita leyfið án þess að allar upplýsingar og forsendur liggi fyrir. Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ vísar þeirri gagnrýni á bug og segir sveitarfélögin vel geta veitt leyfið. Í bæjarstjórn Reykjanesbæjar greiddu 10 atkvæði með því að veita leyfið og enginn á móti. Í Garði voru það 6 sem greiddu atkvæði með en 1 sveitarstjórnarmeðlimur á móti. „Allar upplýsingar og forsendur sem við höfum kallað eftir frá Skipulagsstofnun liggja fyrir en það er sá aðili í stjórnsýslunni sem við eigum samskipti við. Stofnunin hefur skilað jákvæðu áliti á umhverfismati og þess vegna getum við tekið þessa ákvörðun," segir Árni. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði við fréttastofu Útvarps nú síðdegis að þetta væri vafasöm stjórnvaldsákvörðun og sjónarspil. Hún gagnrýnir einnig að sveitarfélögin hafi tekið ákvörðunina án þess að búið sé að úrskurða um kæru Landverndar vegna umhverfismats álversins. Árni segir hinsvegar að ekki sé hægt að krefjast slíks umhverfismats. „Þetta snýst um að við sýnum fram á hvaða borhola tilheyri álveri frekar en netþjónabúi og svo framvegis. Þannig er það bara ekki því orkan er ekki nýtt í þágu sérstaks verkefnis. Við vinnum okkar orku inni á landsneti og þaðan er hún tekin. Þetta eru því ekki rök enda er ekki hægt að krefjast slíks mats," segir Árni og ítrekar að sveitarfélögin hafi uppfyllt skilyrði Skipulagsstofununar. „Við tökum ennfremur tekið undir það álit og getum því veitt byggingarleyfið." Aðspurður um hvað álver í Helguvík þýði fyrir sveitarfélögin á suðurnsejum segir Árni það tvímælalaust mjög mikilvægt fyrir atvinnulífið. „Hér hefur verið einsleitt atvinnulíf og varð enn einsleitara eftir að varnarliðið fór. Þá misstu 900 manns störf sín og í kjölfarið þurfti fólk að leita í ný störf sem í mörgum tilvikum voru verr launuðu. Þetta mun því styrkja stöðu okkar í atvinnumálum og við getum útvegað fólki betri störf."
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira