Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðurkenni að aðstaðan var ekki nógu góð KSÍ hefur svarað bréfi Samtaka íþróttafréttamanna frá því morgun þar sem farið var fram á tafarlausar úrbætur á aðstöðu þeirra á Laugardalsvelli. Útspil KSÍ er að boða forsvarsmenn samtakanna á fund um hádegisbilið á morgun. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, viðurkennir í samtali við Vísi að aðstaðan hafi ekki verið góð. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna er þó ekki sáttur og býst við mæta í kraftgalla á næsta landsleik. 10.9.2007 15:35
Segja formann leikskólaráðs slá ryki í augu fólks Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á sveitarstjórnarmenn að grípa nú þegar til úrræða sem duga til þess að leysa mannekluna á leik- og grunnskólum og greiða þau laun sem nauðynleg eru til að tryggja stöðugleika í skólastarfi. Sakar sambandið formann leikskólaráðs borgarinnar um að slá ryki augu fólks. 10.9.2007 15:17
Fann fíkniefni og vopn í húsi í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær tvær konur á fertugsaldri og karlmann á fimmtugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli, vopnalagabrot og þjófnað. 10.9.2007 14:58
Undirbúa áfram aðgerðir gegn svikafyrirtækjum Stjórn AFLs starfsgreinasambands hyggst áfram undirbúa aðgerðir gegn fyrirtækjum sem ekki hafa upplýst um kjör og skráð erlent verkafólk eins og reglur gera ráð fyrir. Sambandið býður fram krafta sína í átak félagsmálaráðherra gegn slíkum fyrirtækjum. 10.9.2007 14:36
Búast ekki við frekari töfum á flugi Fundur fulltrúa Icelandair og flugmanna þess í hádeginu var jákvæður og skilaði málinu vel áleiðis, að sögn Sigmundar Halldórssonar, upplýsingafulltrúa. Annar fundur verður haldinn á miðvikudag og átti Sigmundur ekki von á því að frekari tafir yrðu á flugi. Deilan stendur um að flugmenn Icelandair vilja fá forgangsrétt á störfum hjá dótturfélaginu Letcharter, sem rekið er í Lettlandi. 10.9.2007 14:34
Skipti út ófölsuðum seðlum fyrir falsaða í kassa í Bónus Tveir karlmenn og kona hafa verið ákærð fyrir peningafölsun með því að hafa sett bæði falsaða eitt þúsund króna og fimm hundruð króna seðla í umferð og tekið ófalsaða í staðinn úr kassa í Bónus. 10.9.2007 14:18
Einkarekstur og fyrirtækjaleikskólar ekki lausnin Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, telur ekki að það leysi neinn vanda að auka einkarekstur eða stofna fyrirtækjaleikskóla eins og formaður leikskólaráðs borgarinnar hefur lagt til sem lausn á manneklu leikskólanna. Björg segir enga jafnlaunastefnu í gildi hjá Kennarasambandinu heldur miklu fremur hjá sveitarfélögunum. 10.9.2007 14:00
Mótmæla stóriðju á miðvikudag Hreyfingin Saving Iceland hyggst mótmæla fyrirhuguðum virkjunum Landsvirkjunar í Þjórsá á miðvikudag en þann dag verða haldin mótmæli af ýmsum toga gegn útbreiðslu stóriðju víða um heim. 10.9.2007 12:46
Ekki vitað hvort hringormar spilli hrygningu Hringormar, sem kenndir er við hvali, herja nú á laxastofnana hér við land sem aldrei fyrr. Ekki er enn vitað hvort þeir kunni að spilla hrygningu laxa. 10.9.2007 12:30
Ákærður fyrir árás á leigubílstjóra Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður í héraðsdómi fyrir að ráðast á leigubílstjóra á Bústaðavegi 2. september síðastliðinn. Maðurinn er ákærður fyrir að veitast að leigubílstjóranum, þrítugri konu, og taka hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún hlaut klórfar hægra megin á hálsi og roðabletti vinstramegin. 10.9.2007 12:23
Hirsi Ali með fyrirlestur í hádeginu Sómalski rithöfundurinn Ayaan Hirsi Ali, sem fyrir tveimur árum var valin ein af 100 áhrifamestu mönnum heims af tímaritinu Time, verður með fyrirlestur á Bókmenntahátíð Reykjavíkur nú klukkan hálfeitt. 10.9.2007 12:20
Reykingabannið á rétt á sér Reykingabannið á Írlandi virðist hafa dregið úr hjarta- og æðasjúkdómum hjá Írum. Í könnun sem náði frá árunum fyrir reykingabannið til áranna eftir bannið kemur í ljós að tíðni hjarta og æðasjúkdóma drógst saman um 11 prósent, strax fyrsta árið efitr bannið. 10.9.2007 12:08
Meirihluti vill taka upp evruna Nærri helmingur Íslendinga eða 48 prósent eru hlynnt aðild Íslands að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins í síðasta mánuði. Þá vilja 53 prósent taka upp evruna. 10.9.2007 12:07
Kópavogur getur ekki fríað sig ábyrgð Mannekla leikskólanna er stærra vandamál en svo að bærinn geti fríað sig ábyrgð á starfsmannahaldi einkarekinna leikskóla, segir Áslaug Daníelsdóttir, leikskólastjóri á Hvarfi. Leikskólafulltrúi Kópavogsbæjar segir bæinn eingöngu bera faglega ábyrgð á slíkum leikskólum. 10.9.2007 12:05
14,7% launamunur hjá SFR Konur eru að jafnaði með þrjá fjórðu af launum karla samkvæmt nýrri launakönnun SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu. Núverandi ríkisstjórn hyggst minnka óútskýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu um helming innan fjögurra ára. 10.9.2007 11:57
Mikael Torfason hættur hjá Birtíngi Mikael Torfason hættur sem aðalritstjóri Birtíngs og ritstjóri Séð og heyrt. Tilkynnt var um þetta í morgun í tölvupósti til starfsmanna. Mikael hóf störf hjá Birtingi í fyrrasumar, fyrst sem ritstjóri Séð og heyrt og síðar sem aðalritstjóri Birtíngs. 10.9.2007 11:57
Íslenskir flugmenn eiga engan forgangsrétt í Lettlandi - forstjóri Icelandair Stjórn Icelandair telur að flugmenn félagsins eigi engan forgangsrétt á vinnu hjá lettneska dótturfyrirtækinu Letcharter. Icelandair hafi keypt flugfélag í fullum rekstri og starfsmenn þess hljóti að hafa sín atvinnuréttindi í sínu heimalandi. Talsverð truflun hefur orðið á flugi til og frá Íslandi vegna aðgerða íslenskra flugmanna. Þeir neita að fara með málið fyrir félagsdóm, eins og Icelandair hefur boðið þeim. 10.9.2007 11:14
Ríflega helmingur starfsmanna lánasýslunnar til Seðlabankans Þegar Lánasýsla ríkisins verður lögð niður og starfsemi hennar flutt til Seðlabanka Íslands mun ríflega helmingur starfsfólksins flytja með til að sinna verkefninu fyrir bankann. Alls eru 12 manns nú starfandi hjá Lánasýslunni. Sigurður Thoroddsen forstöðumaður Lánasýslunnar segir að Seðlabankinn muni yfirtaka launasamninga þeirra sem flytjast til bankans 10.9.2007 10:39
Vilja tafarlausar úrbætur á aðstöðu íþróttafréttamanna á Laugardalsvelli Gríðarleg óánægja er meðal íþróttafréttamanna vegna þeirrar aðstöðu sem Knattspyrnusamband Íslands býður upp á á nýuppgerðum Laugardalsvelli. Hafa Samtök íþróttafréttamanna sent bréf til sambandsins og fara fram tafarlausar úrbætur og afsökunarbeiðni frá KSÍ. 10.9.2007 10:33
Náttúruverndarsamtök í Þingeyjarsýslum ekki mótfallin borunum "Við erum algera gáttuð á þessum undarlegu tillögum og endalausu kærum frá SUNN. Þessi samtök hafa ekkert rætt við heimamenn," segir Sigurjón Benediktsson talsmaður HÚSGULL, samtaka náttúruverndarsinna á Húsavík. "Við teljum ekkert óeðlilegt við það að kannað sé hve mikil orka er undir þessu svæði." 10.9.2007 10:08
Metmjólkurframleiðsla á síðasta verðlagsári Heildarmjólkuframleiðsla hér á landi var um 125 milljónir lítra á síðasta verðlagsári og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda. 10.9.2007 09:52
Þráðormasýking í laxi Töluvert hefur borið á bólginni og jafnvel blæðandi gotrauf á nýgengnum laxi í ám í sumar, nánast í kringum allt landið. Þetta kemdur fram á vef Landbúnaðarstofnunar og að sömu einkenni hafi sést á laxi í að minnsta kosti einni á í fyrra. 10.9.2007 08:18
Lýsa yfir áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda Opinbert ósætti milli ráðherra stjórnarflokkanna hefur fært þjóðinni heim sanninn um það þjóðarskútuna rekur stjórnlaust. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar Sambands ungra framsóknarmanna. Þeir lýsa yfir þungum áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda. 9.9.2007 21:50
Skemmdarvargar á Hellu Skemmdarvargar gengu lausum hala á Hellu í nótt og voru rúður í þremur bílum brotnar sem og rúða í símaklefa. Að sögn lögreglu var engu stolið úr bifreiðunum og því ljóst að gerendur höfðu ekki annað í huga en að valda sem mestum skemmdum. 9.9.2007 20:42
Bíll festist í miðri Krossá Björgunarsveitin Dagrenning frá Hvolsvelli var kölluð út klukkan tvö í dag til að aðstoða ferðamenn sem sátu fastir um borð í bíl í miðri Krossá. Fólkinu tókst hins vegar af sjálfsdáðum að komast á þurrt land áður en björgunarsveitarmenn komu á staðinn. 9.9.2007 20:38
Líkur á frekari flugtöfum nái Icelandair ekki samkomulagi við FÍA Millilandaflug Icelandair hefur raskast í dag. Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir stjórnendur Icelandair Group bera alla ábyrgð á þeim flugtöfum sem orðið hafa í dag. Líkur eru á að áætlunarflug raskist enn frekar ef ekki nást samningar á næstu dögum. 9.9.2007 19:25
Alcan keppir áfram um orku Þjórsár Alcan heldur áfram undirbúningi nýs álvers í Þorlákshöfn og á Keilisnesi og hyggst áfram keppa um orkusamning við Landsvirkjun, þrátt fyrir að hafa misst forgang að orku Þjórsárvirkjana. 9.9.2007 19:06
Samgöngumiðstöð drifin áfram Undirbúningur samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli er kominn á fulla ferð og stefnir verkefnisstjórn að því að byggingin verði tilbúin eftir tuttugu mánuði. í dag var auglýst eftir áhugasömum leigjendum. 9.9.2007 18:57
Kreppu spáð Breskir bankasérfræðingar spá bankakreppu í vikunni sem eigi sér ekki líka síðustu tuttugu ár. Bankar sem þurfi að endurfjármagna lendi í vandræðum. Hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands segir íslenska banka betur í stakk búna til að takast á við slíkt en þegar næddi um þá fyrir einu og hálfu ári. 9.9.2007 18:56
Viðskiptanefnd Alþingis kannar afstöðu banka til krónunnar Viðskiptanefnd Alþingis heimsækir helstu fjármálafyrirtæki landsins á næstu dögum þar sem ræða á um framtíð krónunnar sem gjaldmiðils Íslendinga. 9.9.2007 18:47
Ásgeir Elíasson látinn Ásgeir Elíasson knattspyrnuþjálfari er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í morgun. 9.9.2007 18:42
Tveir teknir fyrir ölvun við akstur í Keflavík Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði eftir hádegi dag tvo ökumenn fyrir ölvun við akstur. Báðir voru teknir í Keflavík og annar þeirra var nokkuð ölvaður að sögn lögreglu. 9.9.2007 16:52
Segja að stjórnendur Icelandair beri alla ábyrgð á töfum Flugmenn segjast ekki bera ábyrgð á þeim töfum sem hafa orðið millilandaflugi Icelandair í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Segja þeir ábyrgðina alfarið liggja hjá stjórnendum Icelandair. Flugi til Stokkhólms var aflýst í morgun og þá hefur einnig flugi til Minneapolis í Bandaríkjunum nú síðdegis verið aflýst. 9.9.2007 16:14
Auglýsti eftir ólygnum og örvhentum veðurfræðingi Í atvinnuauglýsingablaði Morgunblaðsins í dag er auglýst eftir örvhentum og ólygnum veðurfræðingi og honum lofuð tíföld laun. Auglýsandinn, sem er Austfirðingur, segist vera orðinn langþreyttur á því að veðurfræðingar í sjónvarpinu skyggi á austurhluta landsins á veðurkortinu þegar þeir segja veðurfréttir. 9.9.2007 15:35
Auglýst eftir leigjendum í samgöngumiðstöð Flugstoðir hafa auglýst eftir umsækjendum um húsnæði fyrir farþegaþjónustu og verslun í fyrirhugaðri samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli. 9.9.2007 12:19
Umhverfismat álvers í Helguvík á lokastigi Umhverfismat vegna álvers í Helguvík er nú að komast á lokastig og vonast Norðurál til að fá endanlega niðurstöðu Skipulagsstofnunar síðar í þessum mánuði. 9.9.2007 12:11
Truflanir á millilandaflugi Icelandair vegna kjaradeilu við flugmenn Miklar truflanir hafa orðið á millilandaflugi Icelandair í morgun vegna kjaradeilu félagsins við flugmenn. Aflýsa þurfti beinu flugi til Stokkhólms og farþegar sendir þess í stað með vél til Oslóar sem síðan hélt áfram til Stokkhólms. 9.9.2007 12:04
Systraslagur í austurborginni Kalla þurfti á lögregluna til að leysa upp samkvæmi í íbúð í austurborginni klukkan fjögur í nótt eftir að átök brutust út milli gesta. Um var ræða þrjár systur á fimmtugs og fertugsaldri. Sú elsta fékk að gista fangageymslur lögreglunnar. 9.9.2007 11:15
Lögreglan leysir upp unglingapartý Kalla þurfti á aðstoð lögreglu til að leysa upp unglingagleðskap í skýli í Nauthólsvík um klukkan hálf tvö í nótt. Að sögn lögreglunnar voru þar um eitt hundrað ungmenni samankomin. 9.9.2007 11:02
Mikið um pústra og almenna ölvun í miðborginni Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt líkt og fyrri nótt. Alls voru 25 manns teknir vegna ýmissa brota og fengu tveir að gista fangageymslur lögreglunnar. Mikið var um pústra og ölvun í miðborginni. 9.9.2007 10:44
Sofnuðu út frá eldamennskunni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út tvisvar í morgunsárið að í íbúðum í austurborginni eftir að sársvangir næturhrafnar höfðu sofnað út frá eldamennsku. Reykskynjarar fóru í gang en hinir þreyttu mathákar sváfu sem fastast. 9.9.2007 10:10
Flug til Stokkhólms fellt niður vegna deilu flugmanna og Icelandair Fella þurfti niður flug á vegum Icelandair til Stokkhólms í morgun vegna kjaradeilu flugmanna við félagið. Yfir 100 manns voru bókuð í flugið samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins. Varaformaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir að flugmenn séu eingöngu að fylgja eftir ákvæðum kjarasamnings og harmar allar raskanir á flugi. 9.9.2007 10:03
Ryskingar á réttardansleik Til átaka kom milli karls og konu á réttardansleik í Víðihlíð í Víðidalnum um klukkan þrjú í nótt. Lögreglan á Blönduósi var kölluð á staðinn. 9.9.2007 09:32
Skothvellir á sumarbústaðalandi við Þingvelli Lögreglan á Selfossi var kölluð að sumarbústaðarlandi við Þingvelli skömmu fyrir miðnætti í nótt eftir að þar heyrðust fjölmargir skothvellir. Í ljós kom að í einum bústaðnum var mikill gleðskapur í gangi og þar hafði fólk skemmt sér við skjóta úr haglabyssu upp í loftið. 9.9.2007 09:19
Var með tvo hassmola í fórum sínum Lögreglan á suðurnesjum handtók í nótt mann eftir að í fórum hans fundust fíkniefni. Að sögn lögreglunni var sennilega um að ræða tvo hassmola. 9.9.2007 09:05