Alcan keppir áfram um orku Þjórsár 9. september 2007 19:06
Alcan heldur áfram undirbúningi nýs álvers í Þorlákshöfn og á Keilisnesi og hyggst áfram keppa um orkusamning við Landsvirkjun, þrátt fyrir að hafa misst forgang að orku Þjórsárvirkjana.Með þeirri ákvörðun sinni að fella niður forgang Alcan að orku Þjórsárvirkjana og hleypa öðrum að samningaborðinu hefur stjórn Landsvirkjunar nú efnt til kapphlaups um næsta stóra orkusamning. Norðurál er þegar komið í slaginn en forstjóri þess kynnti opinberlega í gær ósk um að fá raforkuna til álvers í Helguvík.Forstjóri Landsvirkjunar tók hins vegar sérstaklega fram á föstudag að ákvörðun stjórnarinnar þýddi ekki að búið væri að loka á Alcan. Og víst er að Straumsvíkurmenn líta alls ekki svo á að þeir séu nú úr leik. Þvert á móti verður viðræðum haldið áfram milli Landsvirkjunar og Alcan, sem heldur áfram vinnu við undirbúning nýs álvers í Þorlákshöfn og á Keilisnesi, samkvæmt heimildum Stöðvar tvö. Alcan-menn telja að þetta séu þeir tveir kostir sem helst koma til greina fyrir Alcan eftir að Hafnfirðingar höfnuðu í íbúakosningu deiliskipulagi sem gerði ráð fyrir stækkun í Straumsvík.Stjórn Landsvirkjunar hefur það hins vegar í hendi sér á næstu vikum að móta veigamikla þætti atvinnuuppbyggingar í landinu næsta áratuginn með vali á samstarfsaðila. Velji hún Norðurál þýðir það hraðari uppbyggingu álvers í Helguvík. Velji hún Alcan þýðir það álver Þorlákshöfn eða á Keilisnesi. Stjórnin gæti einnig valið að gefa einhverjum hinna tíu umsækjendanna tækifæri til að annarskonar uppbyggingar, svo sem á sviði netþjónabúa eða kísilmálmvinnslu. Loks er sá kostur að semja ekki við neinn og sleppa því að virkja Þjórsá.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira