Innlent

Fann fíkniefni og vopn í húsi í miðbænum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær tvær konur á fertugsaldri og karlmann á fimmtugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli, vopnalagabrot og þjófnað.

Eftir því sem fram kemur á vef lögreglunnar voru þremenningarnir gripnir glóðvolgir við fíkniefnaneyslu í húsi í miðborginni en þar fundust efni sem lögregla telur amfetamín, LSD og hass. Enn fremur fann lögreglan afsagaða haglabyssu, riffil, riffilskot, hnífa á staðnum ásamt því sem talið vera þýfi úr þjófnaðarmáli sem kom upp í sama hverfi. Tilkynnt hafði verið um þjófnaðinn um klukkustund áður en fólkið var handtekið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×