Innlent

Ryskingar á réttardansleik

Til átaka kom milli karls og konu á réttardansleik í Víðihlíð í Víðidalnum um klukkan þrjú í nótt. Lögreglan á Blönduósi var kölluð á staðinn.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi var um minniháttar líkamsárás að ræða og enginn handtekinn vegna málsins. Að öðru leyti fór dansleikurinn vel fram að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×