Undirbúa áfram aðgerðir gegn svikafyrirtækjum 10. september 2007 14:36 MYND/Gunnar Gunnarsson
Stjórn AFLs starfsgreinasambands hyggst áfram undirbúa aðgerðir gegn fyrirtækjum sem ekki hafa upplýst um kjör og skráð erlent verkafólk eins og reglur gera ráð fyrir. Sambandið býður fram krafta sína í átak félagsmálaráðherra gegn slíkum fyrirtækjum. Stjórn AFLs fundaði í dag vegna þeirrar deilu sem upp er komin milli sambandsins og Vinnumálastofnunar vegna eftirlits með fyrirtækjum með erlenda starfsmenn. Félagsmálaráðherra greindi frá því á föstudag að til stæði að efna til eftirlitsátaks í málaflokknum og fagnar stjórn AFLs því og býður fram aðstoð sína. Formaður og framkvæmdastjóri AFLs funda á morgun með Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra vegna málsins og segir í tilkynningu AFLs að þar muni sambandið leggja fram tillögur um samráð og samvinnu Vinnumálastofnunar og félagsins á félagssvæði AFLs. Stjórnin ákvað að halda áfram undirbúningi að aðgerðum gegn fyrirtækjum sem hafa erlent verkafólk í vinnu og ekki hafa fullnægt reglum um skráningu og/eða óljóst er um kjör og réttindi starfsfólks. Þá lýsir stjórnin yfir fullum stuðningi við yfirlýsingar formanns félagsins og framkvæmdastjóra síðustu daga og jafnframt að verði ekki gripið tafarlaust til harðra aðgerða í vinnustaðaeftirliti af hálfu Vinnumálastofnunar muni félagið grípa til allra þeirra aðferða sem það telji skila árangri til að berjast gegn félagslegum undirboðum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira