Innlent

Ásgeir Elíasson látinn

Ásgeir Elíasson knattspyrnuþjálfari er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í morgun.

Ásgeir var 57 ára, fæddur í nóvember 1949. Hann lék knattspyrnu með Fram og íslenska landsliðinu og þjálfaði Fram á mestu velgengnisárum félagsins á seinni árum, þar sem félagið vann fjölda titla. Þá var Ásgeir landsliðsþjálfari frá árinu 1991 til 1995 og á þeim árum náði liðið hæst á styrkleikalista FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins.

Ásgeir þjálfaði einnig Þrótt Reykjavík og var þjálfari ÍR þegar hann lést. ÍR átti að leika gegn Aftureldingu í dag, en leiknum var frestað. Fánar voru dregnir í hálfa stöng við félagsheimili Fram, Þróttar og ÍR í dag, til minningar um Ásgeir.

Ásgeir Elíasson lætur eftir sig eiginkonu og tvo uppkomna syni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×