Innlent

Lýsa yfir áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda

Opinbert ósætti milli ráðherra stjórnarflokkanna hefur fært þjóðinni heim sanninn um það þjóðarskútuna rekur stjórnlaust. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar Sambands ungra framsóknarmanna. Þeir lýsa yfir þungum áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda.

Þá segir ennfremur í ályktun ungra framsóknarmanna að íslenska þjóðin þurfi á betri stjórnarháttum að halda og eru ráðherrar minntir á ábyrgð sína.

Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna var haldinn á Sauðárkróki um helgina og lauk fundinum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×