Innlent

Bíll festist í miðri Krossá

Björgunarsveitin Dagrenning frá Hvolsvelli var kölluð út klukkan tvö í dag til að aðstoða ferðamenn sem sátu fastir um borð í bíl í miðri Krossá. Fólkinu tókst hins vegar af sjálfsdáðum að komast á þurrt land áður en björgunarsveitarmenn komu á staðinn.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli náðu björgunarsveitarmenn að koma bílnum á þurrt land og engan sakaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×