Innlent

Skemmdarvargar á Hellu

Skemmdarvargar gengu lausum hala á Hellu í nótt og voru rúður í þremur bílum brotnar sem og rúða í símaklefa. Að sögn lögreglu var engu stolið úr bifreiðunum og því ljóst að gerendur höfðu ekki annað í huga en að valda sem mestum skemmdum.

Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var grjót kastað í gegnum rúðurnar. Framrúður voru brotnar í tveimur bílum og afturrúða í einum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×