Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Svangir og hræddir Þeir eru svangir og hræddir, sjómennirnir um borð í flutningaskipinu Castor Star. Eini kosturinn síðustu þrjár vikurnar hefur verið hveiti, kál, núðlur og örfá egg. 8.2.2007 19:30
Stjórnvöld neita að taka ábyrgð á vímuefnasjúklingum Stjórnvöld stinga höfðinu í sandinn og neita að taka ábyrgð á hörmungarsögu Byrgisins, segir geðlæknir sem fyrstur reyndi að vekja athygli Landlæknis á kynferðismisnotkun ungra kvenna sem dvöldust í Byrginu. 8.2.2007 19:01
Hékk í poka yfir logandi kolavél Fyrrum vistmaður á Breiðavík segir starfsfólk á staðnum hafa beitt sig óhugnanlegum pyntingum. Hann er í dag heimilislaus drykkjumaður en segir hvorki þjóðfélagið né Breiðavík eiga sök á örlögum sínum. 8.2.2007 18:45
Gríðarlegur viðskiptahalli og óvissa Gríðarlegur viðskiptahalli og óvissa í launamálum veldur því að vaxtalækkunarferli er ekki hafið af hálfu Seðlabankans, sem þó ákvað í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum um sinn. Frekari stóriðjuframkvæmdir, eins og stækkun álversins í Straumsvík, eru ekki inn í forsendum bankans þegar hann metur horfur á jafnvægi í þjóðarbúskapnum. 8.2.2007 18:30
Mátti þola einelti kennara og nemenda Á sjötta hundrað manns sóttu í dag ráðstefnu um börn og unglinga með sérþarfir í íslenska skólakerfinu. Menntamálaráðherra segir óþolandi að heyra sögur af því þegar fjölskyldur með sérþarfir fá ekki þá þjónustu sem þær eiga rétt á, en á ráðstefnunni sagði fólk, sem lent hefur í erfiðleikum í skólakerfinu, frá reynslu sinni. 8.2.2007 18:30
Exista hf. hagnast um 37,4 milljarða Exista hf. birti í dag ársuppgjör sitt fyrir árið 2006. Hagnaður fyrirtækisins eftir skatta varð 37,4 milljarðar króna. Hagnaður á síðasta fjórðungi ársins var 13,1 milljarður króna. Stjórn félagsins mun því greiða út tæpa 11 milljarða í arð, eða um eina krónu á hlut. 8.2.2007 18:21
Latibær tilnefndur til Emmy verðlauna Magnús Scheving og Jonathan Judge voru í dag tilnefndir til Emmy verðlaunanna fyrir leikstjórn Latabæjarþáttanna. Þetta er í annað sinn sem Latibær er tilnefndur til Emmy verðlauna en í fyrra var Julianna Rose Mauriello, bandaríska stúlkan sem leikur Sollu Stirðu, tilnefnd sem fyrir leik sinn. 8.2.2007 17:49
Jóhanna undrast synjun ríkisstjórnar Jóhanna Sigurðardóttir segir frá því á bloggsíðu sinni í dag að forsætisráðuneytið hafi synjað beiðni hennar um að fá afhent öll þau gögn af ríkisstjórnarfundum þar sem málefni Byrgisins voru til umræðu. 8.2.2007 17:39
Sýknaður af ákæru um birtingu áfengisauglýsinga Karlmaður var í Hæstarétti í dag sýknaður af ákæru um áfengislagabrot með því að hafa sem framkvæmdastjóri tiltekins fyrirtækis látið birta auglýsingar á áfengum bjór í tveimur dagblöðum. 8.2.2007 17:35
Síminn tapaði 3,6 milljörðum í fyrra Síminn tapaði tæpum 3,6 milljöðrum króna á síðasta ári samkvæmt ársuppgjör sem birt er á heimasíðu Kauphallar Íslands. Fram kemur að hagnaður á síðari helmingi ársins hafi verið 2,8 milljarðar króna en að slök afkoma skýrist af gengisþróun krónunnar og nam gengistapið um 5,8 milljörðum króna. 8.2.2007 17:32
Didda syngur til að frelsa barnsföður úr fangelsi Finnsk-íslenska hljómsveitin Mina Rakastan Sinua, með skáldkonuna Diddu í fararbroddi, heldur tónleika á Dómó í kvöld til að safna peningum til að leysa barnsföður Diddu úr fangelsi á Jamaika. 8.2.2007 17:31
Sýknaður af ákæru um frelsissviptingu Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann af ákæru um frelsissviptingu og sneri þannig við dómi héraðsdóms sem dæmt hafði manninn í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haldið starfsmanni Orkuveitu Reykjavíkur nauðugum í um hálfa klukkustund á skrifstofu fyrirtækis hans í Kópavogi. 8.2.2007 17:09
Staðfesti gæsluvarðhald yfir karlmanni í tengslum við umfjöllun Kompáss Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem gaf sig fram við lögreglu eftir umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kompáss um barnaníðinga. Hann var í hópi fjögurra manna sem komu í íbúð sem þátturinn hafði leigt eftir að mennirnir höfðu sett sig í samband við þrettán ára stúlku í kynferðislegum tilgangi, en stúlkan sem reyndist tálbeita Kompáss. 8.2.2007 16:57
Sex ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl Hæstiréttur staðfesti í dag sex ára dóm héraðsdóms yfir karlmanni á þrítugsaldri, Tryggva Lárussyni, sem ákærður var fyrir stórfelldan innflutning á amfetamíni. 8.2.2007 16:41
Björgólfur Thor kaupir Fríkirkjuveg 11 Samþykkt var á fundi borgarráðs Reykjavíkur í dag að ganga að tilboði fjárfestingarfélagsins Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, í Fríkirkjuveg 11. Kaupverðið er 600 milljónir. 8.2.2007 16:38
Suðurlandsvegur verði tvöfaldaður í áföngum Samkvæmt nýjustu drögum að vegaáætlun verður Suðurlandsvegur breikkaður og gerður að 2+2 vegi í áföngum. Frá þessu greinir Sunnlenska fréttablaðið og vitnar í heimildarmenn sína. Drögin hafa að undanförnu verið til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna og hefur verið hart tekist á um þau. 8.2.2007 16:27
Útskrifaðar af gjörgæsludeild eftir slys á Breiðholtsbrautinni Búið er að útskrifa konurnar tvær sem slösuðust í bílslysi á Breiðholtsbrautinni í gær af gjörgæsludeild. Þær eru báðar á batavegi eftir að hafa gengist undir skurðaðgerðir í gær. Konurnar voru einar í bílum sínum en beita þurfti klippum til að ná þeim út. 8.2.2007 15:53
Kristinn H. Gunnarsson gerist frjálslyndur Þingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum og ætlar hann að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn. 8.2.2007 15:29
Vilja stofna Loftlagsráð Reykjavíkurborgar Borgarfulltrúar Vinstri - grænna lögðu til á fundi borgarráðs í dag að stofnaður yrði þverpólitískur starfshópur stjórnmálamanna og embættismanna, svokallað Loftlagsráð Reykjavíkurborgar, til þess að bregðast við upplýsingum í nýrri skýrslu um loftlagsmál. 8.2.2007 15:16
Spyr hvort Bandaríkjamenn hafi leitað stuðnings vegna Íransmáls Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, hefur lagt fram fyrirspurn til forsætisráðherra um það hvort Bandaríkjamenn hafi leitað hófanna hjá ríkisstjórn Íslands um svipaðan stuðning við hugsanlegan hernað gegn Íran og aflað var í aðdraganda innrásarinnar í Írak. 8.2.2007 14:55
Setti bát á brennu án leyfis eiganda Karlmaður, sem gefið var að sök að hafa tekið bát í leyfisleysi og sett hann á brennu, var í Héraðsdómi Vestfjarða í dag sýknaður. Maðurinn var ábyrgðamaður áramótabrennu sem haldin var á Vestfjörðum í árslok 2003. 8.2.2007 14:36
Magn dagblaða og auglýsingapósts eykst um rúm 50 prósent Ársskammturinn af dagblöðum og auglýsingapósti hefur aukist um rúm 50 prósent frá árinu 2003 samkvæmt tilraun sem tólf heimili í Hlíðunum hafa tekið þátt í. Fram kemur á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar að árið 2003 bárust 133 kíló af slíkum pósti inn á hvert heimili en árið 2006 var magnið orðið 205 kíló. 8.2.2007 13:56
Stúdentaráðskosningar í HÍ í dag Stúdentar við Háskóla Íslands kjósa í dag hverjir leiða Stúdentaráð skólans og hverjir sitja Háskólafund næsta árið. Þrjár fylkingar bjóða fram H-listinn, Röskva og Vaka. Notuð er miðlæg kjörskrá og stúdentar geta því valið sér kjördeildir á háskólasvæðinu eftir hentugleika. 8.2.2007 13:43
Fá engan launamiða frá Varnarliðinu Allt útlit er fyrir að fyrrverandi starfsmenn Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli lendi í vandræðum með að útfylla skattframtölin þar sem engir launamiðar berast frá Varnarliðinu. Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta. 8.2.2007 13:15
Viðskiptablaðið kemur út fimm sinnum í viku Þriðja íslenska dagblaðið kom út í morgun. Kunnuglegt að vísu og heitir Viðskiptablaðið sem frá og með deginum í dag kemur út fimm sinnum í viku. 8.2.2007 13:00
Mörgum vísað frá í háskólum Tólf hundruð og tuttugu umsóknum um háskólanám var vísað frá í fyrrahaust. Björgvin G. Sigurðsson þingmaður segir þetta ótvíræða sönnun um fjárskort háskólastigsins. 8.2.2007 12:45
Skólagjöld hækkuð í HR í haust Skólagjöld í Háskólanum í Reykjavík verða hækkuð umfram launga- og neysluvísitölu í haust vegna ýmiss kostnaðar eins og það er orðað í bréfi rektors til nemenda. Þar er tekið sem dæmi að skólagjöld í grunnámi muni hækka úr 110 þúsund krónum á önn í 128 þúsund fyrir komandi haustönn. 8.2.2007 12:33
Fullyrðingar um leka rangar Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hann tekur fram að fullyrðingar um að embættið hafi lekið upplýsingum um rannsókn á Baugsmálinu séu rangar. 8.2.2007 12:12
Hafa ekki fengið laun síðan í september Eftirlitsmenn á vegum Sjómannafélags Íslands og Alþjóðaflutningasambandsins stöðvuðu í hádeginu uppskipun úr flutningaskipi í Grundartangahöfn. Skipið siglir undir fána Panama, er í eigu grísks útgerðarmanns og telur áhöfnin 17 Úkraínumenn og Georgíumenn. 8.2.2007 12:10
Mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum að mati Seðlabanka Seðlabankamenn segja að enn sé mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum, meðal annars vegna gríðarlegs viðskiptahalla og útiloka því ekki að stýrivextir muni hækka enn frekar á árinu þótt bankinn hafi ákveðið í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum að sinni. 8.2.2007 12:06
Forsætisráðherra vill afnema tekjuskatt af söluhagnaði Forsætisráðherra telur eðlilegt að afnema tekjuskatt af söluhagnaði á hlutabréfum. Þá vill ráðherra afnema ýmsa smærri skatta sem innheimtir eru með mikilli fyrirhöfn. 8.2.2007 12:00
Sextán ára í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps Sextán ára piltur var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps en hann stakk mann í bakið með hnífi. Pilturinn komst í kynni við manninn á netinu og hittust þeir þrisvar. 8.2.2007 11:43
Risastórar strengjabrúður og Shakespeare á Listahátíð Upphaf Listahátíðar í Reykjavík 2007 markar lok frönsku menningarkynningarinnar “Pourquoi Pas? Frankst vor á Íslandi 2007.” Dagskráin var kynnt í morgun og munu glæsileg og óvenjuleg götuatriði franska hópsins Royal de Luxe einkenna fyrstu tvo daga hátíðarinnar sem hefst 10. maí. Útiatriðin verða af stærðargráðu sem ekki hafa sést áður á götum Reykjavíkur og verður skólabörnum boðið í bæinn af þessu tilefni. 8.2.2007 11:29
Vaxtalækkunarferli ekki hafið, segir seðlabankastjóri Vaxtalækkunarferli er ekki hafið þótt Seðlabankinn hafi ákveðið að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í dag. Þetta sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri á fundi í morgun. Við ákveðin skilyrði gætu horfur versnað og bankinn myndi þá hækka vexti á ný. Það sem gæti meðal annars haft þessi áhrif væru breytingar á stöðu íslensku krónunnar. 8.2.2007 11:16
Vél Iceland Express á leið til Stansted lenti í Manchester Flugvél Iceland Express á leið til Stansted-flugvallar í Lundúnum var snúið til Manchester í morgun, en Stansted var lokaður vegna snjóþyngsla. Búið er að opna Stansted aftur og verður vélinni flogið þangað frá Manchester. Ætla má að einhver töf verði á flugi Iceland Express til Stansted síðdegis. 8.2.2007 11:12
Enn mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum Seðlabankinn mun bregðast við ef verðbólguhorfur versna á ný. Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði enn mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum þrátt fyrir að verðbólga hafi hjaðnað. Bankinn ákvað í morgun stýrivöxtum bankans óbreyttum en þeir eru nú 14,25%. 8.2.2007 11:03
Íslenskt viðskiptalíf og menning í Danmörku Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hélt í dag til Danmerkur þar sem hann mun m.a. flytja opnunarávarp á sýningu með verkum Jóhannesar Kjarval og Ólafs Elíasonar. Sýningin ber heitið Lavaland og verður í listasafninu Gammel Strand í Kaupmannahöfn. Þetta er í fyrsta sinn sem verkum þessara myndlistarmanna er skipað saman á sýningu. 8.2.2007 10:52
Framtíðarlandið býður ekki fram í vor Á fundi Framtíðarlandsins í kvöld voru greidd atkvæði um það hvort ætti að bjóða fram í alþingiskosningum í vor. Niðurstaðan var að 96 sögðu nei og 92 sögðu já. Því hefur verið ákveðið að bjóða ekki fram. Þar að auki þurfti aukinn meirihluta, eða 2/3 atkvæða, til þess að samþykkja tillöguna. Tillagan um framboð í komandi alþingiskosningum var því felld. 7.2.2007 23:36
Erilsamt hjá lögreglunni í gær Lögreglan á höfuðbrogarsvæðinu setti upp myndavél við Dalasmára í Kópavogi í gær. Brot fimmtán ökumanna voru mynduð. Meðalhraði hinna brotlegu var tæpir 46 km/klst. Þarna er 30 km hámarkshraði en sá hraðast ók var mældur á tvöföldum hámarkshraða. Eftirlit lögreglunnar í Dalasmára kom í kjölfar ábendinga frá íbúunum sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu tók lögreglan tuttugu og fimm ökumenn fyrir hraðakstur. 7.2.2007 23:00
Siv leiðir Framsókn í Suðvesturkjördæmi Siv Friðleifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson og Una María Óskarsdóttir skipa þrjú efstu sæti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Þetta var niðurstaða aukakjördæmisþings í kvöld. Þingið hófst kl. 20:00 en þar var tillaga kjörnefndar að framboðslista fyrir komandi þingkosningar borin upp til samþykktar. Listinn var samþykktur án breytinga. Þess er gaman að geta að Steingrímur Hermannsson skipar heiðurssætið á listanum. 7.2.2007 22:45
Enn rökrætt um framboð Framtíðarlandsins Mjög fjölsóttur fundur Framtíðarlandsins stendur enn yfir á Hótel Loftleiðum. Mörg hundruð manns mættu á fundinn en gildan atkvæðisrétt höfðu einungis þeir sem gerst höfðu félagar fyrir tólf á hádegi á mánudaginn var. Á fundinum var borin upp tillaga stjórnar um að boðið yrði fram í nafni Framtíðarlandsins í næstu alþingiskosningum og drög að stefnu þar að lútandi var lögð fram. 7.2.2007 21:59
Konan sem lýst var eftir er fundin Konan sem lögregla höfuðborgarsvæðisins lýsti eftir í kvöld, Guðríður Bjarney Ágústsdóttir, er fundin. Hennar hafði verið saknað frá því fyrr í kvöld. Lögreglan vill koma þökkum á framfæri til þeirra sem aðstoðuðu við leitina. 7.2.2007 21:55
ÞSSÍ í samstarf við stjórnvöld í Níkaragúa Viðræður við stjórnvöld í Níkaragúa um þróunarsamvinnu á sviði orkumála eru að hefjast í höfuðborginni Managua. Að sögn Gísla Pálssonar umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur ný stjórn Sandínista áhuga á því að hraða þróun og framkvæmdum á sviði jarðhitamála og fá íslensk fyrirtæki til samstarfs. 7.2.2007 20:45
Of seint að læra að prjóna Það kom flatt upp á marga í íslenska flugheiminum fyrir 22 árum þegar Arngrímur Jóhannsson sagði upp stöðu sinni sem yfirflugstjóri Arnarflugs, stofnaði sitt eigið flugfélag, og keypti gamla Boeing þotu. Nú stendur hann enn á tímamótum, kominn í nýtt félag, og er í fyrsta sinn á ferlinum að láta smíða fyrir sig þotur. 7.2.2007 20:15
Fulltrúi forseta mætti ekki á fund utanríkismálanefndar Hvorki fulltrúi forsetaembættisins né utanríkisráðuneytisins mætti á fund utanríkismálanefndar í morgun, vegna setu forsetans í þróunarráði Indlands. Halldór Blöndal, formaður nefndarinnar, segir að utanríkisráðherra muni koma á fund nefndarinnar síðar. 7.2.2007 20:00