Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skrafað um framboð eldri borgara Í dag var boðað til fundar í Reykjavík, þar sem sagt var að stofnað skyldi til framboðs eldri borgara fyrir kosningar til Alþingis í vor. Talsmaður félags eldri borgara segir hins vegar að um "skraffund" hafi verið að ræða og að til formlegs framboðs verði stofnað síðar. 3.1.2007 18:46
Grunnur lagður að tvöföldu hagkerfi Flótti fyrirtækja frá krónunni yfir í evruna getur lagt grunninn að tvöföldu hagkerfi, þar sem smærri fyrirtæki og heimilin standa undir gífurlegum kostnaði við að halda krónunni uppi. Vaxtakostnaður heimila og fyrirtækja af yfirdráttarlánunum einum gæti staðið undir öllum kostnaði ríkisins til fræðslumála. 3.1.2007 18:27
Jeppi út af Grindavíkurvegi Jeppi fór út af á Grindavíkurvegi um þrjú-leytið í fljúgandi hálku. Engin slys urðu á fólki en ökumaður þurfti aðstoð við að koma bílnum aftur upp á veginn, þar sem talsvert bratt var upp á veginn. 3.1.2007 18:21
Takmarkað sjónflug leyft á ný Takmarkað sjónflug verður aftur leyft um Reykjavíkurflugvöll frá og með morgundeginum en það hefur verið bannað síðan viðbúnaðaráætlun Flugstoða tók gildi á miðnætti á nýársdag. Flugtök og lendingar í sjónflugi verða leyfð á 10 mínútna fresti á milli kl. 10 og 16. Snertilendingar verða ekki leyfðar að sinni, né einliðaflug flugnema. 3.1.2007 17:40
Barrtré gegn svifryki í borginni Stórauka þarf gróðursetningu trjáa samsíða umferðaræðum ef takast á að draga úr svifryki í borginni að mati Jóns Geirs Péturssonar skógfræðings. Haft er eftir honum á vef umhverfissviðs borgarinnar barrtré bindi svifryk, ekki síst á vetrum þegar svifryksmengunin sé einna mest vegna nagladekkjanotkunar. 3.1.2007 17:11
360 milljónir til menningarmála Akureyrarbær hlýtur 360 milljónir króna í styrk frá menntamálaráðuneytinu til menningarmála næstu þrjú árin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag, en er í raun endurnýjun á samningi sem fyrst var undirritaður árið 1996. 3.1.2007 17:08
Kæra flugumferðarstjóra fyrir truflun Flugstoðir ohf. hafa kært til lögreglu framferði flugumferðarstjóra á Akureyri sem kom inn á samkiptarás við flugvél sem var að koma inn til lendingar á Akureyrarflugvelli í gær. 3.1.2007 16:59
Lögregla birtir myndir af árásarmönnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú þriggja manna vegna mjög alvarlegrar líkamsárásar í Reykjavík á nýársnótt og hefur birt myndir af þeim úr öryggismyndavél. Þremenningarnir eru grunaðir um að hafa ráðist á tvo menn á móts við kínverska viðskiptasendiráðið í Garðastræti 4. 3.1.2007 16:41
Nauðgaði og myrti tugi kvenna og barna Ríkisstjórn Indlands hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á meðferð lögreglunnar á málum tuga barna og kvenna sem hafa horfið í bænum Noida á undanförnum tveim árum. Fólkið var allt úr röðum fátækra farandverkamanna. 3.1.2007 16:40
Dómi vegna verka Kjarvals áfrýjað til Hæstaréttar Ættingjar Jóhannesar S. Kjarvals listmálara hafa ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í dag til Hæstaréttar og dómstóla erlendis ef niðurstaðan þar verður sú sama. Þetta sagði Ingimundur Kjarval, barnabarn listmálarans, í samtali við fréttastofu í dag. 3.1.2007 16:33
Flugumferðarstjórar samþykkja samkomulag Flugumferðarstjórar samþykktu einróma á félagsfundi í dag heimila stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra að undirrita samkomulag sem stjórn félagsins og Flugstoða ohf. höfðu komist að í gær. Því má reikna með að flugumferð komist aftur í eðlilegt horf yfir landinu en sérstök viðbúnaðaráætlun hefur verið í gildi frá áramótum vegna skorts á flugumferðarstjórum. 3.1.2007 16:13
Boðar stofnfund framboðs eldri borgara í dag Stofnað verður til framboðs eldri borgar fyrir alþingiskosnignarnar í vor á fundi á Hótel Centrum Reykjavík kl. 17 í dag. Fram kemur í tilkynningu frá Sveini Guðmunssyni verkfræðingi að fundurinn sé í Forsetasal, á grunni bæjarstæðis Ingólfs Arnarsonar. 3.1.2007 15:13
Reykjavíkurborg sýknuð af kröfum ættingja Kjarvals Reykjavíkurborg var í Héraðsdómi Reykjavíkur sýknuð af öllum kröfum ættmenna Jóhannesar Kjarvals listmálara. Erfingjarnir krörðust þess að Reykjavíkurborg léti af hendi rúmlega 5000 málverk og yfir eitt þúsund bækur sem borgin telur að listamaðurinn hafi gefið sér árið 1968. 3.1.2007 15:02
Baugur lýsir yfir andstöðu við hvalveiðar Baugur Group hefur tekið þá ákvörðun að lýsa yfir andstöðu við hvalveiðar Íslendinga þar sem það sé farið að skaða íslensk félög erlendis. Félagið segir í tilkynningu, að útrás íslenskra fyrirtækja hafi verið gríðarleg á undanförum árum og farið vaxandi á sviði tísku, lyfjaframleiðslu, matvöru, bankastarfsemi og tónlistar til dæmis. 3.1.2007 14:59
Fundur flugumferðarstjóra stendur enn Búist er við því að félagsfundur flugumferðarstjóra vegna deilu þeirra við Flugstoðir ohf. standi að minnsta kosti í klukkustund til viðbótar en hann hófst klukkan eitt í dag. Kaffihlé stendur nú yfir en fundurinn er lokaður öðrum en félögum í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra. 3.1.2007 14:50
Grábrókarveita tekin í notkun á föstudag Grábrókarveita, ný vatnsveita Orkuveitu Reykjavíkur í Borgarfirði, verður formlega tekin í notkun á föstudaginn kemur með pompi og prakt. Veitan er í Grábrókarhrauni skammt frá Bifröst en góð vatnsból fundust þar árið 2004. 3.1.2007 14:24
Fimm lemstruðust í bílveltu á Vestfjörðum Fimm manns voru fluttir á Sjúkrahúsið á Ísafirði eftir að hafa lemstrast þegar jeppi valt norðan við afleggjarann sem liggur út að Núpi í Dýrafirði nú eftir hádegið. 3.1.2007 14:03
Magni Austfirðingur ársins 2006 Magni Ásgeirsson sigraði með yfirburðum í kjöri á Austfirðingi ársins 2006 en það var vikublaðið Austurlandið sem stóð fyrir kjörinu í samstarfi við Landsbanka Íslands. 3.1.2007 13:49
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að geyma fíkniefni í fangaklefa Fangi á Litla-Hrauni var í dag í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft hass og tóbaksblandað kannabisefni í klefa sínum. 3.1.2007 13:45
Starfsmannafélög Reykjavíkur og Akraness sameinast Félögar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar fóru yfir þriðja þúsundið nú um áramótin þegar Starfsmannafélag Akraness sameinaðist félaginu. Félagsmenn í Starfsmannafélagi Akraness voru ríflega 350 og í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar um 2900. Sameinað félag verður því með um 3250 félagsmenn. 3.1.2007 13:21
Vandaði stjórnvöldum ekki kveðjurnar Talsmaður eldri borgara, Arndís Björnsdóttir, kennari, fyrrverandi verslunarmaður og varaþingmaður, var harðorð í garð stjórnvalda í Íslandi í bítið í morgun. Hún sagði meðal annars að enginn vilji væri í þjóðfélaginu til að gera neitt í málefnum eldri borgara og öryrkja. Stjórnarandstaðan væri ekki undanskilin. 3.1.2007 13:15
Ljósastaurar brotnuðu í Hlíðarfjalli í fárviðri Ljósastaurar brotnuðu í Hlíðarfjalli í fárviðrinu sem gerði laust fyrir jól. Lítið varð úr þeim skíðajólum sem margir vonuðust eftir en þó var opið nokkra daga í fjallinu milli jóla og nýárs. 3.1.2007 13:15
Aldrei minna veiðst af rækju en í fyrra Rækjuaflinn á nýliðnu ári var aðeins þrjú þúsund tonn, eða minni en nokkru sinni, eftir að íslenskir sjómenn komust á annað borð upp á lagið með að veiða rækju. 3.1.2007 13:00
Veltan í Kauphöllinni nærri 4500 milljarðar á síðasta ári Veltan í Kauphöll Íslands á síðasta ári nam nærri 4500 milljörðum og hefur aldrei verið meiri. Hún jókst um ríflega 2500 milljarða frá fyrra ári eða um 77 prósent. Fram kemur í ársyfirliti Kauphallarinnar að veltuaukning á hlutabréfamarkaði hafi numið 82 prósentum en 72 prósentum á skuldabréfamarkaði. 3.1.2007 12:42
Úrskurður kveðinn upp í Kjarvalsmálinu í dag Héraðsdómur kveður upp úrskurð í dag í Kjarvalsmálinu svokallaða. Afkomendur listmálarans vilja fá úr því skorið hvort fimm þúsund listaverk sem fóru úr vinnustofu listmálarans til borgarinnar hafi verið flutt þaðan með lögmætum hætti. 3.1.2007 12:30
Stærsta verkfræðiskrifstofa landsins verður til Stærsta verkfræðistofa landsins með alls 240 starfsmenn varð til um áramótin þegar Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns og verkfræðistofan Hönnun sameinuðust undir nafninu VGK-Hönnun hf. 3.1.2007 12:28
Flugstoðir byrjaðar að ráða til sín flugumferðarstjóra Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða, sagði í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir að fyrirtækið Flugstoðir væri þegar farið að ráða til sín flugumferðarstjóra. 3.1.2007 12:15
Flugumferðarstjórar taka afstöðu til tilboðs í dag Flugumferðarstjórar, sem ekki hafa ráðið sig hjá Flugstoðum ohf., ætla á félagsfundi í dag að taka afstöðu til tilboðs fyrirtækisins frá því í gær, ef það stendur þá enn. Fundi var slitið í gær þrátt fyrir samkomulag, vegna þess að Flugstoðir vildu ekki að það yrði borið undir félagsfund flugumferðarstjóra. 3.1.2007 12:05
Vextir af yfirdráttalánum jafngilda útgjöldum til fræðslumála Fyrirtæki og einstaklingar greiða jafn mikið í vexti af yfirdráttarlánum á einu ári og ríkið kostar til allra fræðslumála í landinu, þar með er talinn allur kostnaður ríkisins við háskóla og framhaldsskóla landsins. Heimilin ein og sér greiða tvisvar sinnum meira í vexti af yfirdráttarlánum en sem nemur þeirri upphæð sem lækkun matvælaverðs á að skila. 3.1.2007 12:00
Á 130 kílómetra hraða á Miklubraut Tvítugur piltur var gripinn eftir að bíll hans mældist á 130 kílómetra hraða á Miklubraut í nótt. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að hann hafi nokkrum sinnum áður gerst sekur um umferðarlagabrot. 3.1.2007 11:50
Farþegum með Flugfélagi Íslands fjölgar um átta prósent Farþegum með Flugfélagi Íslands fjölgaði um átta prósent á árinu 2006 miðað við árið 2005. Alls flugu um 380 þúsund manns með félaginu í fyrra, þar af um 18 þúsund farþegar í millilandaflugi til Færeyja og Grænlands. 3.1.2007 11:45
Þinglýstum samningum fjölgaði undir lok árs Þinglýstum kaupsamningum fjölgaði um 1,1 prósent og velta tengd samningunum jókst um 7,5 prósent milli nóvember í fyrra og nýliðins desember. Þetta kemur fram á vef Fasteignamats ríkisins. 3.1.2007 11:34
Slökkviliðsstjórinn í Borgarnesi Vestlendingur ársins 2006 Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi, er Vestlendingur ársins 2006 en það er fréttaveita Vesturlands, Skessuhorn, sem veitir viðurkenninguna eftir kosningu lesenda. 3.1.2007 11:11
Magni heiðraður Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps heiðraði Magna Ásgeirsson á Þorláksmessu fyrir frammistöðu hans í sumar í Rockstar Supernova og jákvæða kynningu sem Borgarfjörður eystri fékk í því samhengi. Þetta kemur fram á héraðsvefmiðlinum austurglugginn.is. 2.1.2007 22:46
Þýðir ekki að ljúga á Selfossi Þjófur einn á þrítugsaldri var ekki fyrr kominn út úr yfirheyrslu frá dómara á Selfossi fyrir þjófnað en hann var búinn að stela veski og nýta sér kort konunnar sem átti veskið. Upp komst um þjófinn af því að afgreiðslukonan þekkti eiganda kortsins og tók því ekki gilda skýringu þjófsins að hann væri sonur konunnar. 2.1.2007 21:29
Ljósmóðirin ekki fyllilega sátt við afkvæmið Eiríkur Tómasson lagaprófessor hafði milligöngu um að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hófu stjórnarmyndunarviðræður vorið 1995, þegar Sjálfstæðisflokkurinn sleit stjórnarsamstarfi við Alþýðuflokkinn og myndaði stjórn með Framsóknarflokknum. Eiríki hugnast hins vegar ekki stjórnarhættir þeirra, seinni hluta samstarfsins. 2.1.2007 19:01
Flugskólar lamaðir Fulltrúar flugumferðarstjóra og Flugstoða settust til fundar nú síðdegis til að freista þess að ná lendingu í deilu sinni. Starfsemi flugskóla Reykjavíkur hefur nánast legið niðri í dag vegna skorts á flugumferðarstjórum. 2.1.2007 18:54
Íslenska krónan er dýr og á undanhaldi Íslenska krónan er of dýr og fyrirtæki taka í vaxandi mæli stöðu með evrunni. Líkur eru á að þau muni einnig hefja skráningu hlutabréfa sinna í evrum. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, efast um að krónan eigi framtíð fyrir sér og er enn þeirrar skoðunar að Ísland verði komið í Evrópusambandið innan tveggja kjörtímabila. 2.1.2007 18:46
Bæði vilja í forsætisráðherrastólinn Það verður ekki heiglum hent að mynda félagshyggjustjórn eftir kosningar í vor ef marka má orðaskak formanna Samfylkingar og Vinstri grænna í Kryddsíldinni á gamlársdag. Ný staða gæti komið upp í íslenskum stjórnmálum eftir kosningar, segir stjórnmálafræðingur, ef sá flokkur sem lengst er til vinstri fengi stól utanríkisráðherra 2.1.2007 18:45
Læknar meta aðstæður vistmanna Læknar og sérfræðingar hafa verið fengnir til að skoða aðstæður vistmanna í Byrginu. Reykjavíkurborg, eins og ríkið, bíður niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins áður en ákvörðun verður tekin um frekari styrki. 2.1.2007 18:30
Flugvél sem lenti í ókyrrð í morgun á heimleið Ekkert óvenjulegt kom í ljós við öryggisskoðun á Boeing 757 flugvél Icelandair sem lenti í mikilli ókyrrð í morgun á leið sinni frá Keflavík til Parísar og er hún nú á heimleið. 2.1.2007 17:21
Skaut tvo eþíópíska hermenn Sómalskur byssumaður skaut tvo eþíópíska hermenn til bana í siðasta vígi íslamskra uppreisnarmanna í landinu, í þorpinu Jilib. Vitni sögðu manninn hafa setið fyrir Eþíóíumönnunum og skotið á þá og hefði einnig fallið sjálfur, þegar hermennirnir svöruðu skothríðinni. 2.1.2007 17:19
Fæðingarorlof greitt frá Hvammstanga Tilvonandi foreldri snúa sér nú til Hvammstanga til þess að sækja um fæðingarorlof. Um áramót fluttist fæðingarorlofssjóður frá Tryggingastofnun ríkisins til Vinnumálastofnunar og verður sjóðurinn til húsa við Miðfjörðinn. Frekari upplýsingar eru á www.faedingarorlof.is. 2.1.2007 17:08
Tívolíbomba sprakk í höndunum á ungum dreng Lögreglumenn óku um fjögurleytið ungum dreng á slysadeild eftir að hann hafði verið að fikta með tívolíbombu við Réttarholtsveg. Að sögn lögreglu sprakk bomban í höndunum á honum en að sögn læknis á slysavarðstofu í Fossvogi slapp hann með minniháttar brunasár á höndum og fingrum. 2.1.2007 16:41
Lögreglubíll hefur bilað 58 sinnum á tveimur árum Lögreglubíllinn á Búðardal hefur bilað 58 sinnum á síðustu tveimur árum sem þýðir að bílinn hefur verið á verkstæði tvisvar í mánuði á tímabilinu. Frá þessu er greint á fréttavef Skessuhorns og sagt að bíllinn standi einmitt nú á verkstæði og bíði varahluta. 2.1.2007 16:21