Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slösuðust í mikilli ókyrrð á leið til Parísar Þrír úr áhöfn Boeing 757 flugvélar Icelandair hlutu minni háttar áverka þegar vélin lenti í mikilli ókyrrð í morgun á leið sinni frá Keflavík til Parísar. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að um 180 farþegar hafi verið í vélinni, langflestir þeirra frá Frakklandi, og var þeim boðin áfallahjálp við komuna til Parísar um klukkan 12 á hádegi að íslenskum tíma. 2.1.2007 13:51
Slasaðist alvarlega á skíðum í Noregi Ísfirsk stúlka á sautjánda ári slasaðist alvarlega á skíðum í Geilo í Noregi um helgina en hún var þar stödd í skíðaferð ásamt hópi frá Skíðafélagi Ísafjarðar. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta á Ísafirði. 2.1.2007 13:43
Ætlaði að smygla rítalíni og sprautum inn á Litla-Hraun Kona sem hafði ætlað í heimsókn á Litla-Hraun neitaði að gerð yrði á henni leit í fangelsinu eftir að fíkniefnaleitarhundur hafði gefið vísbendingu um að hún gæti verið með fíkniefni. 2.1.2007 13:30
Valgerður viðstödd útför Geralds Fords Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra verður í dag verða viðstödd útför Geralds R. Ford, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í Washington. Úförin fer fram í dómkirkjunni í Washington en kista Fords hefur undanfarna daga legið í þinghúsinu í borginni þar sem þúsundir Bandaríkjamanna hafa vottað honum virðingu sína. 2.1.2007 13:23
Kveikt í skotköku inni í BMW-blæjubíl Kveikt var í skotköku inni í blæjubifreið á Selfossi í morgun með þeim afleiðingum að bíllinn skemmdist nokkuð. Það var íbúið á Fossheiði á Selfossi sem varð var við skothvelli og þegar hann gætti nánar að kom í ljós að þeir komu frá athafnasvæði Bílamálunar Agnars í Gagnheiði 2.1.2007 13:06
Niðurgreiðslur vegna dagforeldra hækka Niðurgreiðsla Reykjavíkurborgar vegna barna hjá dagforeldrum hækkar um rúmar tíu þúsund krónur nú um áramótin. Á sama tíma eru málefni grunnskóla og leikskóla aðskilin hjá borginni. 2.1.2007 12:45
Efast um að krónan lifi til langframa Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur miklar efasemdir um að Íslendingar geti haldið uppi sjálfstæðum gjaldmiðli þegar til lengri tíma er litið. Hann segist enn þeirrar skoðunar að Íslendingar verði aðilar að Evrópusambandinu innan átta ára. 2.1.2007 12:37
Lögregluumdæmum fækkar úr 26 í 15 Lögregluumdæmum landsins fækkaði um ellefu nú um áramótin og verða nú sjö lykilembætti á landinu en hjá þeim verða sérstakar rannsóknardeildir. 2.1.2007 12:30
Hefja eins konar dauðaleit að loðnunni Hafrannsóknastofnunin og útvegsmenn eru að hefja eins konar dauðaleit að loðnunni, en hingað til hefur ekkert fundist af þeirri loðnu sem ætti að bera uppi veiðarnar í ár. 2.1.2007 12:15
Þarf að ræsa út flugumferðarstjóra fyrir neyðarútköll Landhelgisgæslan þarf að láta menn í flugstjórnarmiðstöðinni ræsa út flugumferðarstjóra til að manna flugturninn í Reykjavík ef senda þarf þyrlu í neyðarútkall. 2.1.2007 12:00
Fær ekki upplýsingar um símanúmer úr sendi í Eyjum Hæstiréttur hefur fellt út gildi úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að símafyrirtækjunum Og fjarskiptum og Símanum verði gert skylt að upplýsa um öll símanúmer sem notuðu ákveðinn GSM-sendi í Vestmannaeyjum á tíu klukkustunda tímabili vegna rannsóknar á bruna í fiskimjölsverksmiðju Ísfélags Vestmannaeyja þann 16. desember síðastliðinn. 2.1.2007 11:43
Kauphöllin fær nýtt nafn á föstudag Kauphöll Íslands tekur upp heitið OMX Nordic Exchange á Íslandi frá og með 5. janúar í framhaldi af því að rekstur hallarinnar er orðinn hluti af rekstri hinnar norrænu OMX-kauphallar. Þessi breyting verður sýnileg á vef Kauphallarinnar á föstudaginn. Fram kemur í tilkynningu frá Kauphöllinni að frá og með 3. janúar verði isec-markaðurinn hluti af First North hliðarmarkaði OMX. 2.1.2007 11:25
Viðgerð á CANTAT-3 lýkur um næstu mánaðamót Reiknað er með að viðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum, sem bilaði um miðjan síðasta mánuð, verði lokið um næstu mánaðamót. Fram kemur í tilkynningu frá Farice, sem rekur strenginn, að viðgerðarskipið Pacific Guardian sigli frá Bermúda þann 5. janúar til lokaviðgerðar og er gert ráð fyrir að viðgerð verði lokið 31. janúar. 2.1.2007 11:15
Manna enn leitað eftir árás í vesturbænum Lögreglan í Reykjavík leitar enn manna sem réðust á karlmann á þrítugsaldri í vesturbæ Reykjavíkur á nýársnótt og höfuðkúpubrutu hann. Lögregla segir málið enn í rannsókn en vitni voru að árásinni og gátu því lýst árásarmönnunum. 2.1.2007 11:01
Ísland miðstöð um þróun hreinnar orku Ísland getur orðið miðstöð alþjóðlegs samstarfs um þróun hreinnar orku að mati Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Í nýársávarpi sínu í dag sagði forsetinn að hann ætlaði að beita sér fyrir stofnun slíkrar miðstöðvar. 1.1.2007 19:30
Tvö óhöpp skammt frá Selfossi Karlmaður á tvítugsaldri velti bíl sínum ofan í skurð rétt fyrir utan Selfoss kortér í tvö í dag. Ökumaðurinn var illa sofinn og er grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Þá fór fólksbíll út af Biskupstungnavegi undir Ingólfsfjalli upp úr fimm í dag eftir að jepplingur hafði skrikað til í hálku og rekist í hliðina á honum. 1.1.2007 18:17
Slökkviliðið kallað að Fannafelli Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að íbúð í Fannafelli í Breiðholti rétt fyrir sex í kvöld. Íbúi í húsinu hringdi í neyðarlínuna þegar vart varð við reyk í stigagangi og reykskynjari fór í gang. Enginn eldur var hins vegar laus og hefur flugeldur líklega valdið reyknum. 1.1.2007 18:03
Sinnaðist út af konu Áramótagleðin fór úr böndunum í vinnubúðum Impregilo í nótt þegar starfsmaður frá Kína stakk samstarfsmann sinn frá Ítalíu þrisvar sinnum með hnífi. Maðurinn er enn í yfirheyrslu hjá lögreglu en hefur játað verknaðinn. Svo virðist sem mönnunum hafi sinnast eftir að stjakað var við konu sem var í veislunni. 1.1.2007 17:57
15 fleiri létust í slysum árið 2006 en 2005 Árið 2006 létust 49 einstaklingur í slysum hér á landi samanborið við 31 árið 2005 og skýrist aukningin aðallega á fjölda banaslysa í umferðinni, þar sem létust 30 manns í 27 slysum. Næstflest urðu slysin í flokknum heima- og frítímaslys þar sem létust sjö og þar á eftir í vinnuslysum þar sem sex létust. 1.1.2007 16:01
Höfuðkúpubrotinn en ekki í lífshættu Maður á þrítugsaldri, sem ráðist var á í vesturbæ Reykjavíkur í nótt er ekki í lífshættu, en er höfuðkúpubrotinn og sárþjáður. Hann hefur haldið meðvitund allan tímann og er ekki í öndunarvél, að sögn læknis á heila- og taugaskurðdeild, en hugsanlegt er að hann þurfi að fara í skurðaðgerð. 1.1.2007 15:44
Fjórtán fengu fálkaorðu Forseti Íslands sæmdi 14 Íslendinga riddarakrossi fálkaorðunnar á Bessastöðum í dag fyrir framlag sitt til íslenskrar menningar og þjóðlífs, eins og siður er á nýársdag. Þeirra á meðal eru Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og Helga Steffensen brúðuleikstjóri. Enginn fékk stórriddarakross að þessu sinni. 1.1.2007 14:49
Biskup harðorður um aftöku Saddams Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, var harðorður um aftöku Saddams Husseins, í nýárspredikun sinni í Dómkirkjunni í morgun. Hann sagði aftökuna vera einn viðbjóðslegan þátt í þeirri ömurlegu atburðarás í keðjuverkun ofbeldis sem virtist engan endi taka. Karl sagði aftökuna eflaust verða vatn á myllu hermdarverkamanna til að réttlæta enn meiri dráp. 1.1.2007 14:44
Þykkara launaumslag Launafólki verður hægara um vik að greiða niður kortareikningana eftir jólin eftir skattalagabreytingar sem tóku gildi um áramótin. Tekjuskattur hefur lækkað um eina prósentu og skattleysismörk hækka úr 78 þúsundum í 90 þúsund. Þá taka einnig gildi sérákvæði um kjör aldraðra og öryrkja. 1.1.2007 14:21
Höfuðkúpubrotinn eftir árás í Vesturbænum Ungur maður liggur þungt haldinn og höfuðkúpubrotinn á gjörgæsludeild eftir að tveir menn réðust á hann í vesturbæ Reykjavíkur í nótt. Mennirnir réðust á fórnarlambið að því er virðist upp úr þurru en vitni voru að árásinni sem gátu gefið greinargóða lýsingu á mönnunum. Þeirra er nú leitað. 1.1.2007 12:24
Stunginn þrisvar á Kárahnjúkum Kínverskur starfsmaður á Kárahnjúkum særði annan starfsmann frá Ítalíu með hnífi upp úr miðnætti í nótt. Ítalinn særðist ekki alvarlega, hann fékk tvö stungusár á hendur og arma sem hann bar fyrir sig og eitt stungusár á kvið, sem ekki mun þó hafa verið mjög djúpt. Árásarmaðurinn var tekinn höndum í nótt og er enn í haldi lögreglu. 1.1.2007 11:37
Metár hjá Landsbjörgu Flugeldasala björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar gekk mjög vel nú fyrir áramótin. Salan jókst nokkuð frá síðasta ári sem þó var metár. Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, reiknar með að söluaukningin sé einhvers staðar í kringum 20% og jafnvel meira. 1.1.2007 10:42