Íslenska krónan er dýr og á undanhaldi 2. janúar 2007 18:46
Íslenska krónan er of dýr og fyrirtæki taka í vaxandi mæli stöðu með evrunni. Líkur eru á að þau muni einnig hefja skráningu hlutabréfa sinna í evrum. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, efast um að krónan eigi framtíð fyrir sér og er enn þeirrar skoðunar að Ísland verði komið í Evrópusambandið innan tveggja kjörtímabila.Halldór Ásgrímsson var gestur í hádegisviðtalinu á gamlársdag. Þar bar krónan og staða hennar gagnvart evrunni m.a. á góma."Það sem skiptir okkur mestu máli núna að mínu mati og í framtíðinni, það er hvernig við getum haldið sjálfstæðum gjaldmiðli í þessari miklu alþjóðavæðingu og frelsi á peningamörkuðum. Er það líklegt að við getum rekið íslensku krónuna til langrar framtíðar? Ég hef miklar efasemdir um það, sagði Halldór Ásgrímsson.Halldór ítrekaði einnig fyrr spá sína um að Ísland verði komið í Evrópusambandið fyrir árið 2015 eða nákvæmlega eftir tvö kjörtímabil. En svo virðist sem atvinnulífið sé komið langt á undan stjórnmálamönnunum. Samningurinn um Evrópska efnahagslífið tryggði íslenskum fyrirtækjum að Evrópumarkaðnum, einum stærsta markaði heims, og vaxandi fjöldi þeirra gerir viðskipti sín í evrum. Það er mun ódýrara fyrir útflutningsfyrirtækin.Hörður Arnarson, forstjóri Marels, segir að hjá Marel sé það einkum vegna þess að fyrirtækið er með lang stærstan hluta tekna sinna í erlendir mynt. "Um 98 prósent teknanna koma erlendis frá og þar er evran sterkust. Og það er í raun lang best fyrir fyrirtæki að gera upp í starfsræsklu gjaldmiðlinum, eða þeirri mynt þaðan sem menn hafa tekjurnar," segir Hörður.Íslenska kauphöllin varð hluti af Norrænu kauphöllinni um áramót og um leið má segja að markaðssvæði íslenskra fyrirtækja hafi stækkað. Reikna má með að einhver þeirra muni skrá hlutabréf sín í evrum á árinu til að auka áhuga erlendra fjárfesta.Hörður bendir á að fjárfestar sem ætli að kaupa íslensk hlutabréf þurfi fyrst að kaupa sér íslenskrar krónur. Síðan þurfi þeir að fylgjast með sveiflunum upp og niður. Ef þeir ætla svo að selja bréfin verði þeir aftur að selja með viðskiptakostnaði og áhættu. Þetta sé mjög óhagkvæmt fyrir þá fjárfesta. Krónan sé einnig allt of dýr fyrir íslensk útflutningsfyrirtæki og íslenskan almenning.Straumur Burðarás fékk nýlega sérstaka heimild frá Seðlabankanum, fyrstur íslenskra banka, til að hafa aukinn gjaldeyrisjöfnuð, sem þýðir að bankinn gerir upp í evrum, enda meira en helmingur tekna og eigna bankans í erlendri mynt.Friðrík Jóhannsson, forstjóri Straums Burðaráss, segir þessa ákvörðun tekna með langtíma hagsmuni bankans og hluthafa að leiðarljósi."Við stefnum að því að verða leiðandi norrænn fjárfestingabanki og þess vegna teljum við þessa breytingu nauðsynlega, segir Friðrik. Þessi breyting muni væntanlega einnig höfða til erlendra fjárfesta og auka áhuga þeirra á bankanum.Þá eru fyrirtæki farin að auglýsa verð á vöru sinni í evrum. Þannig mátti sjá slíka auglýsingu frá Kraftvélum í Fréttablaðinu á gamlársdag. Fyrirtækið selur og kaupir þungavélar. Ævar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir þetta gert til að komast hjá gengisáhættu.
Mest lesið Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent Maðurinn fundinn Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Ekið á konu á Langholtsvegi Innlent Fleiri Epstein-skjöl birt: Prinsinn bað um „óviðeigandi vinkonur“ Erlent Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Undrandi á ráðningu ráðgjafa Innlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Fleiri fréttir Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Sjá meira