Fleiri fréttir

Símafyrirtækin brugðust

Verulegu fé var nýverið stolið úr heimabanka íslendings með því að bandarískir tölvuþrjótar sendu SMS skilaboð til mannsins, sem hann fór eftir, en þannig komust þeir inn í tölvu mannsins og gátu millifært út úr einkabanka hans. OgVodafone og Síminn hefðu getað komið í veg fyrir þetta, segir Friðrik Skúlason, tölvufærðingur, en hann rekur fyrirtæki, sem sérhæfir sig í Vírusvörnum. Lögreglan hefur málið til rannsóknar .

Sigurjón M. Egilsson hættur sem fréttaritstjóri Fréttablaðsins

Sigurjón M Egilsson, fréttastjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á fundi í morgun. Mikill sjónarmissir verður af Sigurjóni sem verið hefur fréttaritstjóri Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. Þá er ljóst að samkeppni á fríblaðsmarkaðnum mun harðna mjög komu Sigurjóns á Blaðið. Samkvæmt heimildum NFS mun Sigurjóni verða gefna frjálsar hendur með það hvernig hann þróar Blaðið. Ekki liggur fyrir hvað verður um Ásgeir Sverrisson, núverandi ritstjóra Blaðsins.

Drengur missti meðvitund við inntöku helíums

Drengur missti meðvitund og hlaut áverka á höfði eftir að hafa leikið sér að því að anda að sér helíum. Sjóvá Forvarnarhús vill brýna fyrir foreldrum að útskýra fyrir börnum sínum hætturnar sem fylgt geta misnotkun á helíumblöðrum.

Heiðars Þórarins minnst í Heiðmörk

Minningarathöfn var haldin í Heiðmörk í kvöld um látna mótorhjólamenn. Mikill fjöldi fólks var samankominn á vökunni og langflestir á hjólum. Athöfnin hófst um níuleytið en tilefni athafnarinnar var lát Heiðars Þórarins Jóhannssonar í bifhjólaslysi í Öræfasveit annan júlí síðastliðinn.

Offituaðgerðir borga sig fyrir samfélagið

Ríkið sparar verulega á offituaðgerðum. Aðgerðin borgar sig upp á nokkrum árum, þrátt fyrir að henni fylgi fimm vikna meðferð hjá hópi sérfræðinga og í aðgerðinni sjálfri sé notast við rándýr einnota tæki.

Ferðamaður sleit vöðva í Jökulsárgljúfri

Erlend kona komst í hann krappann í Jökulsárgljúfri um hádegisbilið í dag. Hún var með gönguhópi rétt norðan Dettifoss þegar hún datt og sleit vöðva. Björgunarsveitir voru kallaðar út og komu konunni undir læknishendur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru um 30 björgunarsveitarmenn á staðinn.

Bílvelta á Uxahryggjum

Bílvelta varð nú laust eftir klukkan fjögur á Uxahryggjum ofan við Þingvelli. Talið er að bíllinn hafi farið tvær veltur og var sjúkrabíll sendur á staðinn. Farþegarnir tveir, erlendir ferðamenn, reyndust þó einungis lítilsháttar meiddir.

Davíð Oddsson segir samkomulag aðila vinnumarkaðarins auka á verðbólguþrýstinginn

Verðbólguhorfur hafa versnað að mati Seðlabanka Íslands, sem telur því nauðsynlegt að hækka stýrivexti um 0,75 prósentur. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir nýlegt samkomulag aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins auka á verðbólguþrýstinginn og hætta sé á að launahækkanir til hinna lægst launuðu skríði upp allan launastigann.

Reykjavíkurflugvöllur 60 ár undir íslenskri stjórn

Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. Þá tók Ólafur Thors, forsætisráðherra, við flugvellinum við athöfn. Nú er að hefjast athöfn á flugvellinum til að minnast þessara tímamóta. Skömmu fyrir fimm munu flugvélar fljúga lágflug yfir flugvallarsvæðið og verður sýnt frá því á NFS í fimmfréttum.

Faxaflóahafnir dæmdar til að greiða starfsmanni rúmlega 5 milljónir í skaðabætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Faxaflóahafnir hf. til að greiða Sigurði Ólafssyni skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir við vinnu sína. Sigurður var þann 20. júlí 2004, sem starfsmaður hjá Skipaþjónustu Reykjavíkurhafnar, að binda olíuskip við Eyjagarð. Landfesti, sver kaðall með nælonkjarna slóst í Sigurð með þeim afleiðingum að hann hlaut höfuðáverka, meiddist í andliti og ökklabrotnaði.

Ný tegund símaþjónustu á markaðinn

Ný tegund símaþjónustu býður upp á að hægt er að hafa sama símanúmerið hvar sem maður er staddur í heiminum. Viðskiptavinur fær íslenskt símanúmer sem í öllum atriðum er sambærilegt hefðbundnu símanúmeri aðeins óháð staðsetningu. Þannig greiða viðskiptavinir fast mánaðargjald fyrir þjónustuna en ekki mínútugjald fyrir símtöl í heimasíma.

Grikklandsforseti í veðurblíðu á Bessastöðum

Karolos Papoulos Grikklandsforseti taldi sig vera kominn til Eyjahafsins, slík var veðurblíðan á Bessastöðum í morgun þegar íslensku forsetahjónin tóku á móti forsetanum og föruneyti hans. Grikklandsforseti er hér á landi í opinberri heimsókn í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Grískii forsetinn hafði á orði að spegilsléttur sjórinn og dimmblá fjöllin minntu hann helst á eyjarnar í Eyjahafinu og íslenski starfsbróðir hans virtist sama sinnis.

Okrað á Pólverjum sem bjuggu sjö saman í íbúð

Sjö Pólverjar sem bjuggu saman í 80 fermetra íbúð greiddu á mann 35 þúsund krónur í leigu á mánuði, eða 245 þúsund krónur samanlagt. Mennirnir leita nú réttar síns eftir að leigusali þeirra lét bera eigur þeirra út á meðan þeir voru í vinnu.

Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur

Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur vegna manneklu frá og með morgundeginum. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur gengið erfiðlega að fá afleysingarbílstjóra til starfa hjá Strætó bs yfir sumarleyfistímann, sem er bein afleiðing mikillar þennslu í þjóðfélaginu og manneklu á vinnumarkaði. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda öllum leiðum Strætó gangandi til þessa, segir í tilkynningu frá Strætó b.s.

650 tonna krani fluttur til Reyðarfjarðar

Stórt flutningaskip kom til Reyðarfjarðar í morgun með uppskipunarkrana, sem vegur 585 tonn, eða talsvert meira en fullhlaðin júmbóþota. Þetta mun vera þyngsti einstaki hlutur sem fluttur hefur verið til landsins.

Sextíu ár liðin frá því Íslendingingar fengu yfirráð yfir Reykjavíkurflugvelli.

Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946.

KB banki hækkar vexti

Fyrstu viðbrögð við stýravaxtahækkun Seðlabankans í morgun voru að KB banki hefur þegar ákveðið að hækka vexti og aðrar lánastofnanir munu að öllum líkindum fylgja fast á eftir í dag eða á morgun, eins og við síðustu stýrivaxtahækkun

Tafarlaus lækkun á tollum

Neytendasamtökin taka undir þau sjónarmið ASÍ um að lækka eigi tolla á innfluttum landbúnaðarvörum. ASÍ telur að samningaviðræður innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar hafi siglt í strand um síðustu helgi og gæti tekið nokkur ár til viðbótar að ljúka þessum viðræðum. Því sé ekki ástæða til að bíða eftir niðurstöðum úr þeim viðræðum heldur að snúa sér að því að lækka tolla á innfluttum landbúnaðarvörum.

Fíkniefni í Kópavogi

Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar i Kópavogi í gærkvöldi og í nótt, en ekkert þeirra var meiriháttar og í engu tilviki leikur grunur á að efnin sem fundust, hafi verið ætluð til sölu. Öll málin hófust með þvi að lögreglan stöðvaði bíla til að kanna ástand ökumanna og ökutækja. Fundust þá fíkniefni ýmist á fólki í bílunum eða falin í bílunum. Öllum var sleppt að yfirheyrslum loknum.

Lækkun matvælaverðs

Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, segir að skapa verði þjóðarsátt um lækkun matvælaverðs á Íslandi. Ekki dugi að ná samkomulagi um verð á innlendum matvælum, heldur verði líka að grípa til aðgerða til að lækka verð á innfluttum matvælum.

Kárahnjúkum mótmælt

Lögreglan á Seyðisfirði mun hafa sérstaka gát á farþegum , sem koma með Norrænu fyrir hádegi, þar sem búist er við fólki, sem hyggst efna til mótmæla gegn Kárahnjúkavirkjun, líkt og gerðist í fyrrasumar. Tveir þeirra,sem lögregla hafði afskipti af í fyrra vegna mótmæla, komu með síðustu ferð skipsins til landsins, en ekki er vitað til að mótmælendur hafi enn slegið upp tjaldbúðum á hálendinu.

Leitað að eiganda dóps

Lögreglan í Keflavík leitar að eiganda að 170 grömmum af hassi, sem hún fann falin undir steini úti í móa fyrir ofan Bolafót í Njarðvík, aðfararnótt þriðjudags. Hassið fanst vegna ábendingar um grunsamlegar mannaferðir á svæðinu. Lögregla telur víst að efnið hafi verið ætlað til sölu . Miðað við smásöluverð á götunni nemur andvirði hassins yfir fjögur hundruð þúsundum króna.

Queen Elísabet II í Reykjavík

Hið sögufræga skemmtiferðaskip Queen Elísabet- önnur, lagðist að Skarfabakka við Sundahöfn í Reykjavík, í blíðskaparveðri í morgun. Hún er lengsta skip sem hefur viðkomu hér í sumar, eða rétt tæpir 300 metrar að lengd. Hún hefur komið hingað áður en ekki getað lagst við bryggju, þar sem engin bryggja hefur verið nógu löng þartil Skarfabakki var tekin í notkun í vor.

Drukkinn ökumaður

Lögreglumenn úr Keflavík trúðu ekki sínum eigin augum þegar kvarðinn í öndunarsýnatæki þeirra rauk upp úr öllu valdi þegar ökumaður, grunaður um ölvun, var að blása í það, undir kvöld í gær. Var því þegar farið með manninn á heilsugæslustöð til að taka úr honum blóðsýni.

Hjálmur bjargar

Lögreglumenn telja víst að reiðhjólahjálmur hafi komið í veg fyrir að níu ára stúlka slasaðist alvarlega, þegar hún hjólaði utan í bíl á Selfossi undir kvöld og féll í götuna. Hún hruflaðist hér og þar við fallið, en hlaut enga höfuðáverka. Þá varð henni líka til happs á bíllinn var á lítilli ferð.

Ristruflanir hjá þriðjungi karlmanna

Yfir þriðjungur íslenskra karlmanna á aldrinum 45 til 75 ára hafa fundið fyrir ristruflunum. Niðurstöður fyrstu almennu könnunarinnar á ristruflunum hér á landi voru birtar á dögunum.

Frystitogari strandaði við Neskaupstað

Frystitogarinn Björgvin EA lenti á sand-grynningum við innsiglinguna í Neskaupstað í morgun, þegar skipið var að koma úr veiðiferð. Gott veður var á staðnum og losnaði skipið strax og togarinn Barði togaði í það. Að sögn skipstjórans á Björgvin var engin hætta á ferðum, engar skemmdir urðu á skipinu og tafði þetta förina um aðeins hálftíma. Dýpkunarskip hefur verið að færa til efni í innsiglingunni að undanförnu og hefur rennan inn í höfnina að líkindum eitthvað breyst.

Bush kærður til íslenskra yfirvalda fyrir stríðsglæpi

George Bush eldri hefur verið kærður til íslenskra yfirvalda fyrir glæpi gegn mannkyni og árásarstríð. Á heimasíðunni aldeilis.net birtist kæran í heild sinni. Hún er gefin út af hópi áhugafólks um mannréttindi og réttlæti. Kæran var afhent ríkislögreglustjóra á mánudaginn.

Forseti Grikklands kominn til landsins

Forseti Grikklands kom í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Hann mun ekki munda veiðistöng í heimsókn sinni líkt og fyrrverandi Bandaríkjaforseti, en er þó afreksmaður þegar kemur að annars konar stöng.

Skapa verður þjóðarsátt um lækkun matvælaverðs

Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, segir að skapa verði þjóðarsátt um lækkun matvælaverðs á Íslandi. Ekki dugi að ná samkomulagi um verð á innlendum matvælum, heldur verði líka að grípa til aðgerða til að lækka verð á innfluttum matvælum.

Hátæknisjúkrahúsi og Sundabraut frestað?

Fjöldi þingmanna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks er hlynntur því að byggingu hátæknisjúkrahúss og lagningu Sundabrautar verði slegið á frest. Formaður Samfylkingarinnar segir flokkinn tilbúinn til að slást í lið með ríkisstjórninni, vilji hún verja andvirði Símans í að viðhalda stöðugleikanum.

Fleiri íhuga uppsagnir

Háskólamenntaðir starfsmenn hjá Styrktarfélagi vangefinna íhuga uppsagnir náist ekki viðunandi samningar á milli forsvarsmanna svæðisskrifstofu málefna fatlaðra og samninganefndar BHM.

Myndir af Unni Birnu á stefnumótasíðu

Andlit Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur er notað á rússneskri stefnumótasíðu á internetinu, þar sem hún er sögð frá Úkraínu í leit að eiginmanni.

Grétar Már ráðuneytisstjóri

Grétar Már Sigurðsson skrifstofustjóri á viðskiptaskrifstofu tekur við stöðu ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu 21. júlí. Grétar Már tekur við af Gunnari Snorra Gunnarssyni, sem verið hefur ráðuneytisstjóri undanfarin fjögur ár. Gunnar Snorri flyst í haust til starfa erlendis fyrir utanríkisþjónustuna.

Kærir Bush fyrir stríðsglæpi

George Bush eldri hefur verið kærður til íslenskra yfirvalda fyrir glæpi gegn mannkyni og árásarstríð. Á heimasíðunni aldeilis.net birtist kæran í heild sinni. Hún er gefin út af hópi áhugafólks um mannréttindi og réttlæti. Höfundur kærunnar er Elías Davíðsson og skrifar hann undir fyrir hönd kærenda. Kæran var afhent ríkislögreglustjóra á mánudaginn. Bush er kærður fyrir margvíslega alþjóðaglæpi og þess er krafist að hann verði kyrrsettur hér á landi á meðan aðild hans að glæpunum er rannsökuð. Bush er sagður hafa gerst sekur um brot gegn alþjóðlega vernduðum einstaklingi, brot gegn almennum borgurum, árásarstríð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi. Glæpina hafi hann framið þegar hann fyrirskipaði innrásina í Panama 1989 þar sem skipt var um stjórnvöld og í Persaflóastríðinu. Kæran er ítarlega rökstudd og er þar tekið fram að glæpir Bush séu alþjóðlegir glæpir. Þannig sé skylda hvers ríkis að rétta yfir einstaklingum sem gerast sekir um slíka glæpi eða framselja þá einhverjum sem vill gera það. Frekari fylgiskjöl hafa verið send ríkislögreglustjóra en hópurinn býst þó hvorki við mjög skjótum eða góðum viðbrögðum. Elías Davíðsson er nokkurs konar sjálfmenntaður sérfræðingur í alþjóðarétti. Greinar hans hafa birst í erlendum lagatímaritum og hann beðinn um að halda fyrirlestra á ráðstefnum víða um heim.

Undanþága á hámarksgjaldi

Samkeppniseftirlitið hefur veitt bæði leigubifreiðastöðinni Hreyfli og BSR í Reykjavík, undanþágu til að setja hámarksgjald fyrir akstur með bílum þeirra. Samkeppniseftirlitið hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að það væri ekki í verkahring þess að samþykkja hámarkstaxta fyrir leigubifreiðar. Leigubílstjórar óttuðust margir að þetta myndi leiða til öngþveitis, þegar einstakir bílstjórar færu að setja upp verð fyrir þjónustu sína. Undanþágan er háð þeim skilyrðum að hagsmunafélag bílstjóra hjá leigubifreiðastöðvunum samþykki hámarksgjaldið. Þá verði verðskráin birt með áberandi hætti í leigubifreiðunum.

Skapa verður þjóðarsátt um matvælaverð

Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, segir að skapa verði þjóðarsátt um lækkun matvælaverðs á Íslandi. Ekki dugi að ná saman um verð á innlendum matvælum, heldur verði líka að grípa til aðgerða til að lækka verð á innfluttum matvörum.

Von á fleiri aðgerðum

Rúmlega þrjátíu starfsmenn hafa sagt upp störfum hjá Svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra til að mótmæla hægagangi í kjaraviðræðum við ríkið. Sarfsmenn Styrktarfélags vangefinna hyggja einnig á aðgerðir.

Verslunareigendur óánægðir með ábyrgðartíma

Verslunareigendur eru verulega óánægðir með nýleg lög um breyttan ábyrgðartíma söluvöru. Á fundi í morgun kom fram að þeim þyki lögin ganga of langt. Þeir segja starfsfólk sett í afar erfiða stöðu þegar óánægðir viðskiptavinir krefjast endurborgunnar og vitna í lögin. Hin svo kallaða fimm ára kvörtunarregla á aðeins við um vörur sem ætlaður er langur endingartími. Einnig á ábyrgðin aðeins við ef um framleiðslugalla á vörunni er að ræða. Samtök verslunar og þjónustu boðuðu til fundar í morgun, þar sem farið var yfir áhrif laganna, en þau hafa verið í gildi í þrjú ár. Ekki eru allir á eitt sáttir við áhrif laganna. Ingvi I Ingason verslunareigandi Rafha segir lögin einfaldlega ekki ganga upp. Verslunareigendur telja að þeir beri skaða af lögunum. Þeir fái ekki sömu ábyrgð hjá erlendum framleiðendum og þeir þurfi að veita hér. Venjulegur ábyrgðartími sé eitt ár. Ólöf Embla Einarsdóttir, lögfræðingur iðnaðar-og viðskiptaráðuneytisins bendir hins vegar á að tilgangur laganna sé að styrkja stöðu neytenda og tryggja að þeir geti sótt bætur vegna gallaðrar vöru. Samtök verslunar og þjónustu hafa áhyggjur af þróun mála. Sérstaklega í ljósi þess að neytendur virðis oft ekki gera sér grein fyrir að ábyrgðin verði aeins virk ef um gallaða vöru sé að ræða. Verslunarmenn segja þennan miskilning koma æ meira í ljós í viðskiptum. Iðnaðar-og viðskiptaráðuneytið hefur skipað sérstaka úrskurðarnefnd sem ætlað er að skera úr álitamálum en óhætt er að reikna með mörgum slíkum þar sem kaupendur og seljendur eru sjaldnast sammála.

Tveir í áfram gæsluvarðhaldi vegna skotárásar

Tveir voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 29. næsta mánaðar í tengslum við rannsókn á skotárás í Hafnarfirði í júní. Einum manni var sleppt úr haldi. Skotárásin átti sér stað þann 21. júní síðastliðinn en þá var tveimur skotum hleypt af inn í íbúðarhús en þrír voru innandyra.

Landsbankinn að taka um 29 milljarða króna lán

Landsbanki Íslands er að vinna að töku þriggja ára sambankaláns en upphæð lánsins er 300 milljón evrur eða um 29 milljarðar íslenskra króna. Í tilkynningu frá bankanum segir að eftirspurn eftir þáttöku í láninu hafi verið mikil strax á fyrstu stigum. Gert er ráð fyrir að lántöku ljúki fyrir lok júnímánaðar.

Actavis markaðssetur ný lyf í Bandaríkjunum

Actavis hefur sett á markað fimm ný samheitalyf í Bandaríkjunum. Lyfin munu styðja vel við vöxt félagsins á markaðnum. Bandaríkjamarkaður er í dag stærsti lyfjamarkaður heims og samsvarar sala þar um helming af allri neyslu lyfja í heiminum.

Sjá næstu 50 fréttir