Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fíkniefnafundur á Dalvík Lögreglan á Akureyri sleppti í gær tveimur mönnum sem handteknir voru á Dalvík í fyrrakvöld, eftir að 25 grömm af hassi fundust í neytendaumbúðum í bíl þeirra. Við húsleit heima hjá öðrum þeirra fundust 25 grömm til viðbótar og eitthvað af hvítu efni, sem talið er vera afetamín eða kókaín. Mennirnir , sem báðir hafa áður gerst brotlegir við fíkniefnalöggjöfina, voru yfirheyrðir ítarlega áður en þeim var sleppt, en rannsókn málsins verður fram haldið.- 5.7.2006 09:57
Gistinóttum fjölgar um allt land Gistinóttum á hótelum í maí síðastliðnum fjölgaði um 17 prósnet miðað við sama mánuð í fyrra, eða um 15 þúsund. Þær urðu nú rúmlega 102 þúsund. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum, en hlutfallslega mest á Austurlandi. Fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu, þar sem lang mesta framboðið er, nam tuttugu og einu prósenti, eða tæpum þrettán þúsundum, sem er bróðuparturinn af allri fjölguninni. Alla fjölgunina og gott betur má rekja til útlendinga, því gistinóttum íslendinga fækkaði um tvö og hálft prósent. 5.7.2006 09:56
Varnarliðið hundsar allar launahækkanir Varnarliðið hefur hundsað allar launahækkanir sem nokkrir verkamenn og vélamenn á Keflavíkurflugvelli áttu að fá frá síðustu áramótum, samkvæmt ákvörðun kaupskrárnefndar varnarsvæða. Að sögn Kristjáns Gunnarssonar hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis er þetta áþekk staða og upp kom fyrir um tveimur árum þegar félagið þurfti að höfða mál á hendur utanríkisráðuneytinu fyrir umþaðbil 30 einstaklinga, sem ekki fengu laun samkvæmt ákvörðun nefndarinnar. 5.7.2006 09:16
Actavis hækkar tilboð sitt í Pliva Stjórnendur lyfjafyrirtækisins Actavís leggja ofur kapp á að kaupa króatíska lyfjafyrirtækið Pliva og hefur nú tilkynnt hlutaðeigandi um þá fyrirætlan sína að gera yfirtökutilboð í allt hlutafé fyrirtækisins. Actavis hefur tvívegis hækkað tilboð sitt í félagið og nú síðast upp í 170 milljarða króna, eftir að stjórnin mælti með að hluthafar seldu bandarísku lyfjafyrirtæki Pliva í stað Actavis. Auk þessa hefur Actavis lagt inn umsókn til samkeppnisyfirvalda á öllum markaðssvæðum sínum, þar sem leitað er eftir samþykki við samruna Pliva og Actavis. 5.7.2006 09:13
Samgönguráðherra grípi til aðgerða Talsmaður neytenda vill að samgönguráðherra grípi til mótvægisaðgerða vegna afnáms hámarkstaxta leigubíla. Hann segist þó ekki mótfallinn afnáminu sjálfu. 4.7.2006 22:43
Fríverslunarsamningur milli Íslands og Kína væri báðum löndunum í hag Viðræður milli Íslands og Kína um fríverslunarsamning þeirra á milli gætu hafist síðar á þessu ári, að sögn utanríkisráðherra. Í morgun var haldinn fundur um könnun á hagkvæmni fríverslunarsamnings milli Íslands og Kína. Fundinn sátu meðal annarra Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Yi Xiaozhun, aðstoðarutanríkisráðherra Kína. 4.7.2006 21:30
Bush fer frá Bessastöðum í laxveiði George Bush eldri, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kom til Íslands í dag til laxveiða. Hann snæddi kvöldverð með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands í kvöld. Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff forsetafrú tóku á móti George Bush á tröppunum á Bessastöðum. Bush ætlar að vera á landinu í þrjá daga, en strax eftir matinn á Bessastöðum var gert ráð fyrir að hann færi til laxveiða í fylgd með Orra Vigfússyni, formanni verndarsjóðs villtra laxastofna. 4.7.2006 21:25
Ísland mun taka þátt í að fella niður skuldir fátækustu ríkja heims Ríkisstjórnarfundur var haldinn í dag. Samþykkt var að Ísland tæki þátt í að fella niður skuldir fátækustu ríkja heims, en G8 ríkin tóku ákvörðun um að gera það í fyrra. Ísland mun leggja til fjármagn í samræmi við hlut landsins í Alþjóðaframfararstofnuninni sem er undir Alþjóðabankanum. Næstu tvö árin er um að ræða 23 milljónir króna og nálægt um 180 milljónir næstu átta árin á eftir. Þetta fé rúmast í fjárlagaramma utanríkisráðuneytisins vegna þróunarsamvinnu. 4.7.2006 21:08
Lög til styrktar foreldrum langveikra barna gagnast ekki öllum Ný lög hafa tekið gildi sem tryggja foreldrum langveikra barna lágmarkstekjur í allt að níu mánuði. Faðir barns, sem þjáist af sjaldgæfum heilahrörnunarsjúkdómi, mun ekki njóta góðs af lagasetningunni þar sem barn hans var greint áður en lögin voru sett. 4.7.2006 19:13
Minntust Heiðars Þórarins Minningaathöfn um Heiðar Þórarinn Jóhannsson var haldin í gærkvöldi en hann lést í bifhjólaslysi í Öræfasveit í fyrradag. Athöfnin var haldin við minnisvarða um látna bifhjólamenn sem Heiðar bjó til og hannaði. Tveir hafa látist í bifhjólaslysum það sem af er árinu 4.7.2006 18:45
Of margir nota ekki belti Það að farþegi í aftursæti notaði ekki bílbelti er talið hafa átt þátt í að tveir biðu bana í bílslysi á síðasta ári að mati Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík segir lögreglumenn um allt land daglega sjá mikilvægi bílbeltanotkunar. 4.7.2006 18:45
Bowen tækni við verkjum Dæmi eru um að átröskunarsjúklingar, íþróttamenn, gigtarsjúklingar og fleiri sem þjáðst hafa af verkjum hafi fengið bót sinna meina með Bowen-tækni að sögn upphafsmanns meðferðarinnar hér á landi. Hann telur líklegt að næsti landsliðsþjálfari Englendinga í fótbolta muni nýta sér tæknina fyrir sína menn. 4.7.2006 18:45
Melabúðin 50 ára Ein rótgrónasta matvöruverslun Reykjavíkur, Melabúðin, fagnaði í dag hálfrar aldar afmæli sínu. Mikill fjöldi gesta var samankominn í búðinni við þetta tilefni og tóku feðgarnir þrír, sem reka búðina, vel á móti gestum og gangandi sem endranær. 4.7.2006 18:30
Ríkisstjórnin bakkar ekki segir samgönguráðherra Ríkisstjórnin ætlar ekki að bakka með frestun vegaframkvæmda ef það verður til þess að verðbólgan fari af stað. Þetta segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. 4.7.2006 17:45
Stúlkurnar á batavegi Stúlkurnar tvær, sem slösuðust alvarlega í bílslsysi í Varmahlíð Í Skagafirði um helgina, eru báðar á batavegi og er önnur þeirra komin úr öndunarvél. Ein stúlka lést í slysinu en tveir aðrir farþegar hlutu minniháttar áverka. 4.7.2006 15:41
Tveir sóttu um embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins Tveir sóttu um embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, þeir Ingimundur Einarsson, varalögreglustjóri í Reykjavík, og Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Skipun í embættið er í samræmi við frumvarp dómsmálaráðherra um nýskipan lögreglumála. Þar er meðal annars gert ráð fyrir fækkun lögregluumdæma á landinu úr 26 í 15 en sjö af embættunum verða skilgreind sem lykilembætti. 4.7.2006 15:19
Velti fjórhjóli og slasaðist Kona slasaðist þegar hún velti fjórhjóli nálægt Sænautaseli á Jökuldalsheiði um klukkan ellefu í morgun. Björgunarsveitirnar Hérað, Jökull og Vopni, voru kallaðar út auk hjálparsveit Skáta á Fjöllum. Sjúkrabíll flutti konuna til aðhlynningar en ekki er vitað um meiðsl konunnar að svo stöddu. 4.7.2006 14:21
Dómsmálaráðherra skipar héraðsdómara Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Ástríði Grímsdóttur í embætti héraðsdómara við héraðsdóm Suðurlands frá og með 1. júlí. Ástríður gengdi áður starfi sýslumanns á Ólafsfirði. 4.7.2006 13:22
Enn á gjörgæslu Unga manninum, sem slasaðist eftir að hafa misst stjórn á vélhjóli sínu á Kirkjubraut á Akranesi í gær, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu. Að sögn lögreglunnar á Akranesi er ekki fullvitað um tildrög slyssins en málið er í rannsókn. 4.7.2006 13:16
Búist við frekari samdrætti á fasteignamarkaði Um það bil 30% samdráttur hefur orðið í veltu á fasteignamarkaði síðan í mars, og blikur eru á lofti um enn frekari samdrátt. 4.7.2006 13:07
Slys í Jökuldal á Austurlandi Björgunarsveitarmenn og lögregla eru nú á leið upp í Jökuldal á Austurlandi vegna tilkynningar um slys, sem þar mun hafa orðið á tólfta tímanum, ekki langt frá Sænautaseli, samkvæmt fyrstu fréttum. Eftir því sem Frétastofan kemst næst mun einn maður hafa slasast, en ekki lífshættulega. Ekkert er nánar vitað um atvik. Landhelgisgæslan hefur þyrlu til taks, ef óskað verður eftir henni. 4.7.2006 12:44
Bush til landsins Georg Bush eldri, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er væntanlegur til landsins síðdegis í dag og mun snæða kvöldverð í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Hann heldur því upp á þjóðhátíðardag Bandarríkjamanna, fjórða júlí, hér á landi. Á morgun heldur hann til laxveiða í boði Orra Vigfússonar fomanns Norður- Atlantshafs fiskverndarsjóðsins. Bush hefur einu sinni áður komið hingað til lands þegar hann gengdi embætti varaforseta í forsetatíð Ronalds Regans og renndi hann þá fyrir lax í Þverá og Kjarrá. 4.7.2006 11:03
Fleiri ferðamenn lenda í umferðaróhöppum en áður Útlendingar á bílaleigubíl lentu i árekstri við annan bíl á blindhæð á Bláfellshálsi á Kjalvegi í gær, en engan í bílunum sakaði þótt bílarnir skemmdust mikið. Engin slasaðist heldur þegar bílaleigubíll með útlendingum fór út af Biskupstungnabraut í gær. 4.7.2006 11:00
Óskað eftir tilboðum í flug Ríkiskaup hafa óskað eftir tilboðum, fyrir hönd Vegagerðarinnar, í rekstur á áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Bíldudals og Reykjavíkur og Gjögurs. Á fréttavefurinn Bæjarins besta kemur fram að um er að ræða útboð á endugreiðslu kosnaðar að frádregnum tekjum vegna farþegaflutninga á áætlunarflugi á umræddum flugleiðum og vöruflutninga hluta úr ári milli Gjögurs og Reykjavík. Opnað verður fyrir tilboð næstkomandi fimmtudag. 4.7.2006 10:35
Fíkniefnafundur á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók tvo unga menn í bænum í gærkvöldi eftir að fíkniefni fundust á þeim. Í framhaldi af því fundust líka fíkniefni á heimili annars og gista báðir mennirnir fangageymslur þar til yfirheyrslum verður fram haldið í dag. Ekki liggur fyrir hversu mikið af fíkniefnum um ræðir.- 4.7.2006 10:34
Vill skerpa áherslur í umhverfismálum Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnnar kennir ósigrinum í borgarstjórnarkosningunum um fylgishrun flokksins í nýlegri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hann segir að Samfylkingin þurfi að sýna sitt rétta andlit í umhverfismálum. 4.7.2006 10:28
Á annað hundrað manns minntust hins látna Minningarathöfn var haldin í gærkvöld um Heiðar Þórarinn Jóhannsson sem lést í bifhjólaslysi í Öræfasveit í fyrradag. 4.7.2006 10:19
Öllum kríueggjum rænt af friðlýstu svæði Öllum kríueggjum í Dyrhólaey var rænt af friðlýstu svæði í síðustu viku og er öll kría farin úr eyjunni, að því er Morgunblaðið hefur eftir Þorsteini Gunnarssyni bónda í Vatnsskarðshólum. Þorsteinn telur að þetta hafi gerst í síðustu viku og hafi stórum bil verið ekið utan vegar. Lögreglan í Vík í Mýrdal hefur málið til rannsóknar, en síðast þegar eggjum var rænt í Dyrhólaey, fyrir all nokkrum árum, verpti engin kría þar í nokkur ár á eftir.- 4.7.2006 10:14
Velti bíl sólahring eftir dóm fyrir ítrekuð umferðalagabrot Karlmaður á þrítugsaldri, sem velti bíl sínum skammt frá Geysi í Haukadal um helgina, hafði aðeins sólarhring áður verið dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og ölvunarakstur. Og enn er hann grunaður um ölvunarakstur um helgina,á meðan hann beið þess að afplána dóm fyrir fyrri ölvunarakstur. Hann var fluttur á sjúkrahús ásamt tveimur farþegum en engin þeirra reyndist alvarlega slasaður. 4.7.2006 09:55
Meintir skotmenn enn í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfr tveimur af þrem mönnum sem áttu þátt í skotárás á hús í Hafnarfirði. Fram kemur í úrskurðinum að íbúi hússins í Vallarhverfinu hafi orðið fyrir skoti þegar mennirnir keyrðu að húsinu þann 21. júní síðastliðinn og skutu á það. Mennirnir tveir sem sitja enn í gæsluvarðhaldi eru hinn meinti skotmaður og ökumaðurinn. Þeir eru taldir geta skemmt fyrir rannsókninni verði þeim sleppt. Haglabyssan sem notuð var í árásinni er enn ófundin. 4.7.2006 09:52
Um 30% samdráttur á fasteignamarkaði Um það bil 30% samdráttur hefur orðið í veltu á fasteignamarkaði síðan í mars, samkvæmt útreikningum KB banka. Þá var þinglýst um það bil 200 kaupsamningum í viku, en sú tala var fallin niður í 117 í síustu viku. Verðið lækkaði líka um 0,2% að nafnvirði í mái og um rösklega 1,5% að raunvirði, vegna verðbólgunnar. Ekki eru í sjónmáli horfur á að það lifni yfir markaðnum í bráð því Húsnæðislánasjóður hefur hækkað vexti sína upp fyrir bankavextina og lækkað hámarkslán. 4.7.2006 09:28
Minningarathöfn um Heiðar Þórarinn við minnisvarða hans Minningarathöfn var haldin í kvöld um Heiðar Þórarinn Jóhannsson sem lést í bifhjólaslysi í Öræfasveit í gær. Athöfnin fór fram við minnisvarða um látna bifhjólaökumenn við Varmahlíð en Heiðar Þórarinn hannaði sjálfur og bjó til minnisvarðann. Minnisvarðinn heitir "Fallinn" og var vígður 17. júní í fyrra á 100 ára afmæli bifhjólsins á Íslandi. Talið er að á annað hundrað manns hafi komið saman við minnisvarðann í kvöld til að heiðra minningu Heiðars. 3.7.2006 22:30
Lögreglubílvelta Bílvelta varð á Reykjanesbrautinni til móts við Álverið í Straumsvík á áttunda tímanum í kvöld. Lögreglubíll, með tveimur lögreglumönnum innanborðs, var á leið í útkall í hús sem stendur til móts við geymslusvæði álversins. Til slagsmála hafði komið í húsinu. Lögreglumennirnir voru rétt ókomnir þangað þegar bifreið þeirra rann útaf veginum. Hvorugan lögreglumannin sakaði. 3.7.2006 22:00
Héldu áfram för sinni eftir bílveltu Í umdæmi lögreglunnar á Selfossi voru þrír kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina og 52 fyrir hraðakstur. Auk þessa varð bílvelta snemma á sunnudagsmorgun á Biskupstungnabraut skammt neðan við Geysi í Haukadal. Þrennt var í bifreiðinni, tveir ungir karlar og unglingsstúlka. Fólkið var á leið frá Gullfossi að Laugarvatni þegar ökumaður missti stjórn á bílnum og hann fór út af veginum. Talið er að bíllinn hafi farið eina og hálfa veltu. 3.7.2006 21:00
Viðræður hefjast að nýju um Landsvirkjun Viðræður um kaup ríkisins á eignarhlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun eru að hefjast að nýju. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri vonast til að borgin selji fyrir haustið. 3.7.2006 19:05
Samgöngunefnd Alþingis boðuð til aukafundar vegna niðurskurðar í vegamálum Formaður samgöngunefndar Alþingis, sjálfstæðismaðurinn Guðmundur Hallvarðsson, segir óskynsamlegt að fresta vegagerð í dreifbýli. Hann hefur ákveðið að kalla þingnefndina saman til aukafundar vegna málsins síðar í vikunni, að ósk stjórnarandstæðinga. 3.7.2006 18:57
Tafir á Kastrup Miklar tafir hafa orðið á flugi frá Kastrup flugvelli síðustu tvo daga. Að sögn langþreytts farþega biðu hundruð viðskiptavina Icelandair og Iceland Express klukkustundum saman eftir að komast heim í gær. Upplýsingafulltrúi Flugleiða segir að þessar tafir stafi annars vegar af verkfallsdeilum þjónustuaðila á flugvellinum og hins vegar af bilunum í færiböndum fyrir töskur. Borið hefur við að farþegar hafi fengið töskur sínar með seinna flugi af þessum sökum. Leyst hefur verið úr launadeilum dönsku starfsmannanna en hins vegar er hægt að búast við að tæknileg vandamál geri vart við sig eitthvað áfram. 3.7.2006 18:45
Rigningarlaust í sex daga í júní Aðeins sex alþurrir dagar voru í Reykjavík í júní og Reykvíkingar því orðnir nokkuð sólsveltir. Sundlaugagestir í Laugardalnum létu sólarleysið þó ekki á sig fá á meðan sólbekkirnir lágu ónotaðir í stöflum. 3.7.2006 18:30
Innflytjendaflokkur stofnaður á næstu dögum Innflytjendaflokkurinn, stjórnmálaflokkur með áherslur á málefni innflytjenda, verður stofnaður á næstu dögum. Stofnandi flokksins segir að tími sé kominn til að raddir innflytjenda heyrist í þjóðfélaginu. Paul F. Nikolov, blaðamaður á Reykjavík Grapevine, skrifaði pistil í nýjasta tölublaði blaðsins sem kom út á föstudaginn var. Hann segir að niðurstöður sveitastjórnarkosninganna hafi verið mörgum vonbrigði. Þeir flokkar sem buðu fram hafi lagt litla áherslu á málefni innflytjenda. 3.7.2006 18:30
Umferðaróhöpp við Selfoss Tvö umferðaróhöpp urðu í nágrenni Selfoss í dag. Það fyrra varð þegar fólksbíll og lítil jeppi skullu saman á blindhæð á Bláfellshálsi á Kjalvegi um klukkan tvö í dag. Það seinna varð við Múla í Biskupstungum en þar missti ökumaður stjórn á bíl sínum og lenti utan vegar. Engin slys urðu á fólki en töluverðar skemmdir urðu þó á bílunum. Í báðum óhöppunum var um erlenda ferðamenn að ræða sem að sögn lögreglu áttuðu sig ekki á íslenskum aðstæðum. 3.7.2006 17:11
Nærri 90% Íslendinga nota tölvu og netið Nærri níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16-74 ára nota tölvu og netið. Þetta kemur fram í könnun Hagstofunnar á notkun landsmanna á tæknibúnaði og netinu. Engin Evrópuþjóð er með jafn hátt hlutfall nettenginga og Íslendingar. 3.7.2006 17:07
Á gjörgæslu eftir vélhjólaslys Ungur maður slasaðist í dag eftir að hafa misst stjórn á vélhjóli sínu á innanbæjar á Akranesi rétt fyrir klukkan tvö í dag. Hann var fluttur á gjörgæslu Landspítalans þar sem hugað er að líðan hans. 3.7.2006 16:59
Fyrrverandi samgönguráðherra sendir þeim núverandi tóninn Halldór Blöndal, fyrrverandi samgöngumálaráðherra, sendir Sturlu Böðvarssyni, samgöngumálaráðherra, tóninn í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að leið einkaframkvæmdar, sem Sturla vilji fara, sé engin töfralausn heldur til þess gerð að fela lántökur ríksins. Í grein Halldórs minnist hann sérstaklega á fyrirhugaðar framkvæmdir við veg úr Reykjavík austur að Þjórsárbrú. Hann segir að slíkur vegur yrði fjármagnaður með svokölluðum skuggagjöldum; aðferð sem bæði hann og Steingrímur J. Sigfússon hafi afskrifað á sínum tíma. Skynsamlegra sé að nýta þá þekkingu og reynslu sem vegagerðin býr að. 3.7.2006 16:34
Vonast eftir góðu gengi geimferjunar Bjarni Tryggvason geimfari segir mikilvægt fyrir bandarísku geimvísindastofnunina NASA að ferð geimferjunnar Discovery takist vel. Geimskoti hefur verið frestað tvisvar en vonast er til að ferjan fari á loft á morgun. 3.7.2006 16:24
Miklar tafir á Kastrup Miklar tafir hafa orðið á flugi frá Kastrup flugvelli síðustu tvo daga eða svo. Að sögn langþreytts farþega biðu hundruð viðskiptavina Icelandair og Iceland express klukkustundum saman eftir að komast heim í gær. Upplýsingafulltrúi Flugleiða segir að þessar tafir stafi annars vegar af verkfallsdeilum þjónustuaðila á flugvellinum og hins vegar af bilunum í færiböndum fyrir töskuflutninga. Borið hefur við að farþegar hafi fengið töskur sínar með seinna flugi af þessum sökum. Leyst hefur verið úr launadeilum dönsku starfsmannanna en hins vegar geta tæknileg vandamál gert vart við sig eitthvað áfram. 3.7.2006 16:13