Innlent

Reykjavíkurflugvöllur 60 ár undir íslenskri stjórn

Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. Þá tók Ólafur Thors, forsætisráðherra, við flugvellinum við athöfn. Nú er að hefjast athöfn á flugvellinum til að minnast þessara tímamóta. Skömmu fyrir fimm munu flugvélar fljúga lágflug yfir flugvallarsvæðið og verður sýnt frá því á NFS í fimmfréttum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×