Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Félagar í Herði riðu til kirkju í dag Félagar í Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ tóku í dag upp gamlan sið þegar þeir riðu til kirkju í Mosfellsdalnum. Sú hefð varð til á sjöunda áratugnum að ríða til Mosfellskirkju einu sinni að vori en það lagðist af fyrir tólf árum. 14.5.2006 18:50
Eyþór Arnalds handtekinn fyrir ölvunarakstur Eyþór Arnalds, oddviti á lista sjálfstæðismanna í Árborg, var handtekinn ásamt unnustu sinni í nótt, en þau eru grunuð um að ekið ölvuð á ljósastaur og flúið af vettvangi. Eyþór gisti fangageymslur í nótt en var sleppt í dag eftir að játning lá fyrir. 14.5.2006 18:32
Leitað að manni í nágrenni Grímsstaða á fjöllum Björgunarsveitir frá Húsavík og nágrenni leita nú ungs manns sem saknað hefur verið síðan í nótt. Síðast sást til mannsins í teiti á Grímsstöðum á fjöllum í nótt en síðan hefur ekkert til hans spurst. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru þrjár björgunarsveitir ásamt hundasveit á staðinn og ættu að ná þangað næsta klukkutímann. 14.5.2006 16:06
Samningar vegna sambýla nást væntanlega í kvöld Reikna má með að samningar takist í kjaraviðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra í kvöld. Samningsaðilar hafa fundað um helgina með góðum árangri, en um er að ræað launahækkanir fyrir starfsmenn á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða innan svæðisskrifstofanna, á Skálatúni og hjá Styrktarfélagi vangefinna. 14.5.2006 14:11
Samfylkingin bætir við sig fylgi í Hafnarfirði Samfylkingin bætir við sig sjöunda manni í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samkvæmt nýrri könnun Gallups á fylgi flokka í bæjarfélaginu. Greint var frá niðurstöðum könnunarinnar í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. 14.5.2006 13:45
Ók niður ljósastaur og flýði af vettvangi Lögreglan í Reykjavík hafði í nótt upp á ökumanni sem ekið hafði á ljósastaur á Kleppsvegi og stungið af. Maðurinn ók jeppa á staurinn með þeim afleiðingum að hann lagðist á hliðina og flýði svo af vettvangi á bílnum. Hann náðist hin svegar í Ártúnsbrekkunni og var færður á lögreglustöð ásamt farþega þar sem þeir gistu fangageymslur. 14.5.2006 13:15
Veltikarl í miðborg Reykjavíkur í gær Skringilegur veltikarl vakti óskipta athygli í miðborg Reykjavíkur í gær. Hér var á ferðinni einn af gestum Listahátíðar, franskur götulistamaður, Culbuto að nafni. Hann er lifandi leikfang sem veltir sér um strætin og vekur upp hlátur enda stöðugt við það að skella með höfuðið í götuna en tekst jafnan að bjarga sér. 14.5.2006 13:00
Bílveltur á Mýrum og Hrútafjarðarhálsi Tvennt var flutt á slysadeild á Akranesi eftir að bíll valt á Snæfellsnesvegi á Mýrum skammt frá bænum Álftá í morgun. Alls voru þrír bílnum og er talið að ökumaður hafi misst stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann fór tvær eða þrjár veltur. Fólkið mun ekki vera mikið slasað. Þá valt bíll við þjóðveg eitt á Hrútafjarðarhálsi í nótt eftir að ökumaður hafði ekið honum út af. 14.5.2006 12:45
Lagðist til sunds við Gróttu í nótt Slökkviliði þurfti ekki aðeins að sinna fjölmörgum brunaútköllum í gærkvöld og nótt því um eittleytið barst tilkynning um mann sem lagst hafði til sunds úti við Gróttu á Seltjarnarnesi. Bátur var sendur á vettvang og það var kafari á vegum slökkviliðsins sem náði manninum úr sjónum. 14.5.2006 12:30
Þrír handteknir vegna hnífsstungu í Hafnarfirði Unglingur var stunginn með hnífi nú undir morgun í Hafnarfirði og var hann fluttur á slysadeild en hann liggur nú á Barnaspítala Hringsins. Að sögn lögreglunnar er rannsókn málsins á viðkvæmu stigi en þrír hafa verið handteknir í tenglsum við verknaðinn. 14.5.2006 12:00
Krefjast dauðarefsingar yfir morðingja Turner Fjölskylda Ashley Turner, flugliða Varnarliðsins sem myrt var í Keflavíkurstöðinni síðasta sumar, vill að herinn krefjist dauðarefsingar yfir meintum morðingja hennar. Fjölskyldan skoðaði vettvang glæpsins í vikunni en þá lauk dómsrannsókn yfir hinum grunaða. 14.5.2006 10:45
Þjóðminjasafnið hlaut viðurkenningu Þjóðminjasafn Íslands var meðal safna sem hlutu viðurkenningu í samkeppni Evrópuráðs safna um safn Evrópu árið 2006! Listasafn í Barcelona hlaut verðlaunin en auk þess hlutu þrjú söfn sérstakar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur; Þjóðminjasafn Íslands, Listasafn í Árósum og Náttúrsafn í Austurríki. Safn í Svíþjóð hlaut Micheletti-verðlaunin. 14.5.2006 10:30
Þrír fluttir á slysadeild eftir bruna á Rauðarárstíg Þrír voru fluttir á sjúkrahús með reykeitrun eftir bruna í þriggja hæða húsi við Rauðarárstíg í Reykjavík og er íbúðin þar sem eldurinn kom upp talin ónýt. Mikill erill hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðastliðinn hálfan sólarhring. 14.5.2006 10:05
Hópslagsmál í Keflavík Lögreglan í Keflavík handtók í nótt fimm menn á skemmtistað í bænum vegna slagsmála við dyraverði staðarins. Þrír dyraverðir slösuðust í slagsmálunum og þurftu tveir þeirra að leita læknis. Að sögn lögreglunnar kinnbeinsbrotnuðu þeir báðir en annar þeirra var líka nefbrotinn og fékk skurð í andlit sem í þurfti að sauma nokkur spor. 14.5.2006 10:00
Hnífsstunga í Hafnarfirði Unglingur var stunginn með hnífi nú undir morgun í Hafnarfirði og var hann fluttur á slysadeild og lagður inn í kjölfarið á Barnaspítala Hringsins. Að sögn lögreglunnar eru ekki öll kurl komin til grafar í málinu og verst hún allra frétta. Heimildir fréttastofu herma að unglingurinn hafi verið að gangi þegar farþegi í bíl sem átti leið hjá hafi stokkið út úr bílnum og stungið hann og lítur út fyrir að sá hafi verið meðlimur í einni unglingaklíku bæjarins. 14.5.2006 09:47
Verðmæti húsa undir skuldum Verðmæti fasteignar, sem keypt var með níutíu prósent láni síðasta haust, verður eftir ár orðið mun minna en lánin sem hvíla á eigninni - gangi eftir spár um verðbólgu og verðlækkun á fasteignamarkaði. Misgengið getur skipt milljónum króna ´z stærri eignum. 13.5.2006 19:17
Efasemdir um "hátæknisjúkrahús" Oddvitar Sjálfstæðisflokks og vinstri grænna í borginni hafa efasemdir um byggingu svokallaðs "hátæknisjúkrahúss" við Hringbraut, en leiðtogi Samfylkingar telur staðsetninguna enn góðan kost. Áætlaður kostnaður við framkæmdina er 36 milljarðar króna. 13.5.2006 19:10
Tilkomumikil byssusýning í Digranesi Byssur, rifflar, fallbyssur og fleiri vopn fylla nú kjallara íþróttahúss Digraness. Auk þekktra vopna, eins og Smith and Wesson, Luger og Clock, má sjá þar athyglisverð skotvopn úr seinni heimsstyrjöldinni og eitt stærsta byssusafn í einkaeigu. 13.5.2006 19:07
Fjarskiptum ábótavant Fjarskipti gengu ekki sem skildi á flugslysaæfingu á Höfn í Hornafirði í dag. Augljóst er að fjarlægðin milli flugvallarins og Hafnar hefur sitt að segja þegar bjarga þarf mannslífum. 13.5.2006 19:00
Ísland fjölmeningarlegt land en ekki ríki Ísland er fjölmenningarlegt land en ekki fjölmenningarlegt ríki þar sem stjórnvöld hafa ekki markað sér eiginlega fjölmenningarstefnu, segir dósent í mannfræði við Háskóla Íslands. Jafnframt sé mikilvægt að auka fé til íslenskukennslu þar sem tungumálið sé helsta hindrunin í aðlögun innflytjenda hér á landi. 13.5.2006 18:47
Gripinn eftir hraðakstur gegnum borgina og upp í Hvalfjörð Lögreglan í Reykjavík handtók í dag ökumann bíls eftir eftirför sem hófst á Miklubrautinni en endaði uppi í Hvalfirði. Lögregla mældi bílinn á 140 kílómetra hraða á leið austur Miklubraut um hádegi í dag en þar sem lögregla þurfti að snúa sínum bíl við missti hún sjónar af bílnum. 13.5.2006 16:45
Framsókn tapar miklu fylgi í Kópavogi Framsóknarflokkurinn hefur tapað ríflega tveimur þriðju af fylgi sínu í Kópavogi ef marka má könnun Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Framsókn mælist nú með átta prósenta fylgi en var með 28 prósent í síðustu kosningum árið 2002. 13.5.2006 16:15
Verður Þjóðminjasafnið safn Evrópu í ár? Það ræðst í kvöld hvort Þjóðminjasafnið verður valið safn Evrópu árið 2006. Þjóðminjasafnið er í hópi 20 safna sem komin eru í úrslit í samkeppni Evrópuráðs safna en niðurstöður hennar verðar kynntar á aðalfundi ráðsins í Lissabon í kvöld. 13.5.2006 16:00
Litla hryllingsbúðin sýnd í Íslensku óperunni í kvöld Söngleikurinn Litla Hryllingsbúðin verður tekin til sýninga í Íslensku óperunni í kvöld. Það er leikfélag Akureyrar sem setur upp sýninguna en hún hefur verið sýnd norðan heiða við góðar undirtektir 13.5.2006 15:15
Tíu særðust í mótmælum við aðskilnaðarmúr Tíu manns hlutu sár í morgun þegar ísraelski herinn réðst til atlögu gegn Palestínumönnum sem voru að mótmæla aðskilnaðarmúrnum í nágrenni Jerúsalem. 13.5.2006 15:00
Samningar takast líklega um helgina Líklegt má telja að samningar takist um helgina í kjaraviðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra. Viðræðurnar snúast um launahækkanir til handa starfsmönnum á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða innan svæðisskrifstofanna, á Skálatúni og hjá Styrktarfélagi vangefinna. 13.5.2006 12:58
Flugslysaæfing á Höfn í Hornafirði í dag Flugslysaæfing verður haldin á Höfn í Hornafirði í dag. Þar verður sett á svið flugslys þar sem stór farþegaflugvél brotlendir við flugvöllinn á Höfn. Um 30 sjálfboðaliðar taka þátt í æfingunni sem lemstraðir sjúklingar en ríflega þrjátíu manns koma að björgunarstörfum og samhæfingu á staðnum. 13.5.2006 11:30
Á 191 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Lögreglan í Keflavík veitt bíl eftirför í nótt sem mældist á 191 kílómetra hraða á klukkustund á leið vestur Reykjanesbraut. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og reyndi að komast undan með því að slökkva öll ljós á bílnum. 13.5.2006 11:00
Leituðu aðstoðar vegna hundsbits Fjögur ungmenni þurftu að leita á slysadeild á Akureyri eftir að hundur hafði bitið þau í nótt. Ungmennin voru að fagna próflokum í Kjarnaskógi þegar einn af góðkunningjum lögreglunnar fyrir norðan kom á staðinn með hund sinn. Hundurinn var svo skilinn eftir í vörslu annars fólks sem á endanum leiddi til þess að hann beit fjóra. 13.5.2006 10:45
Eldur í gámi og brettum við Grandagarð í nótt Töluverðan reyk lagði yfir Reykjavíkurhöfn þegar eldur kom upp í gámi við Grandagarð 16-18 um klukkan eitt í nótt. Slökkvilið kom á vettvang og þá hafði eldurinn læst sig í nærliggjandi trébretti og var farinn að teygja sig í upp í glugga í nærliggjandi húsi og að tunnum með þynni. Kæla þurfti tunnurnar og lauk slökkvistarfi um tvöleytið. Eldsupptök eru ókunn en rannsókn stendur yfir. 13.5.2006 10:15
Á þriðja þúsund manns í framboði Einn af hverjum áttatíu landsmönnum á kosningaaldri getur kosið sjálfan sig í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram undir lok mánaðarins. Svo margir eru frambjóðendurnir. Heildarfjöldi þeira jafngildir því að nær allir Grindvíkingar væru í framboði. 12.5.2006 21:11
Miðbær í myndum Ljósmyndssýningin Miðbær í myndum verður opnuð á Listahátíð á morgun. Á sýningunni eru 70 myndir sem sýna miðborg Reykjavíkur eins og hún leit út fyrir um hundrað árum síðan. 12.5.2006 21:04
Þjónusta við börn og aldraða í hávegi höfð Þjónustu við aldraða hefur hrakað mikið á síðustu sextán árunum segir oddviti Vinstri-grænna í Kópavogi. Flokkurinn kynnti stefnuskrá sína í dag og er þjónusta við aldraða og börn í hávegi höfð í stefnuskránni. 12.5.2006 20:06
Sjóræningjaveiðar á Reykjaneshrygg Átta skip eru að ólöglegum veiðum á Reykjaneshrygg, rétt utan lögsögunnar, í hópi tæplega sjötíu skipa sem þar stunda löglegar veiðar. Samtökin Greenpeace hafa skorið upp herör gegn ólöglegum sjóræningjaveiðum, sem stundaðar eru víða um heim. 12.5.2006 19:20
Yfir eitt prósent atkvæðabærra manna í framboði Einn af hverjum áttatíu einstaklingum á kosningaaldri er í framboði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Sjálfkjörið er í sveitarstjórn í Breiðdalshreppi og Tjörneshreppi en listakosning fer fram í 58 sveitarfélögum. Þar eru tæplega 2.600 manns í framboði á 170 listum. 12.5.2006 17:32
Mótmæltu byggingu Kárahnjúkavirkjunar Tvö til þrjú hundruð manns komu saman á Austurvelli á sama tíma og hornsteinn var lagður að Kárahnjúkavirkjun til að mótmæla byggingu hennar. 12.5.2006 17:04
Leggur áherslu á nýtingu jarðhita Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra lagði áherslu á aðkomu alþjóðlegra fjármálastofnana að nýtingu jarðhita á fundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í New York í gær. Í ræðu sinni sagði ráðherra að fólk væri almennt ekki nógu meðvitað um möguleika jarðhita sem orkugjafa. 12.5.2006 16:40
KB banki bakhjarl Listahátíðar KB banki undirritaði í dag samstarfssamning við Listahátíð í Reykjavík til næstu þriggja ára. Í samningnum felst að bankinn verður fjárhagslegur bakhjarl hátíðarinnar. Samningurinn er í raun framlenging á samstarfi Listahátíðar og KB banka, þar sem bankinn hefur verið bakhjarl hátíðarinnar um nokkurra ára skeið. 12.5.2006 15:08
Slökkvistarfi lokið við Hvaleyrarvatn Ræktarland Lækjarskóla við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði er illa farið eftir sinubruna sem kom upp á ræktunarsvæði Skógræktar Hafnarfjarðar fyrr í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um brunann klukkan eitt í dag og barðist við eldinn í um klukkustund en hann hafði læst sig í tré á svæðinu. 12.5.2006 15:01
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur slökkt sinueld við Hvaleyrarvatn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði rétt í þessu að slökkva mikinn sinueld við Hvaleyrarvatn. Allt titækt lið var kallað út enda logaði mikið. Trjágróður var í hættu en eldurinn ógnaði ekki byggingum. Ekki er vitað um tildrög þess að eldurinn kviknaði. 12.5.2006 13:58
Mikill sinubruni við Hvaleyrarvatn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst þessa stundina við mikinn sinueld við Hvaleyrarvatn. Allt titækt lið er á staðnum og logar mikið. Samkvæmt heimildum NFS er trjágróður í hættu. Ekki er vitað um tildrög þess að eldurinn kviknaði. Við segjum nánar frá þessu eftir því sem upplýsingar berast. 12.5.2006 13:47
Í mótmælahug eftir lestur Draumalandsins Tveir ungir starfsmenn Landspítalans urðu svo heillaðir við lestur bókarinnar Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnason að þeir ákváðu að standa fyrir mótmælum á Austurvelli. Þeir hafa sent skilaboð á fjölda fólks og vilja að fólk sýni innihaldi bókarinnar viðbrögð í verki. 12.5.2006 13:45
Stór sinueldur við Hvaleyrarvatn Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins var kallað út um eitt leitið vegna sinubruna við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliðinu er hér um stór bruna að ræða, en nánari upplýsingar verða birtar á Vísir og NFS um leið og þær berst. 12.5.2006 13:32
Sláandi lágt hlutfall þeirra sem stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi Sláandi lágt hlutfall þeirra sem stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi hefur lokið háskólanámi í samanburði við önnur hátekjulönd að því er lesa má úr niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar á frumkvöðlastarfsemi sem kynntar voru í morgun. Þá eru karlar tvöfalt líklegri en konur til að stunda slíka starfsemi. 12.5.2006 13:17
Góður gangur í viðræðum SFR og svæðisskrifstofa Góður gangur er í viðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra. Jafnvel er búist við að samningar náist um helgina og þannig verði hægt að afstýra setuverkföllum á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða. 12.5.2006 12:30